Árið 2019 ákvað WHO að 17. september ár hvert verði alþjóðlegur dagur öryggis sjúklinga. Alþjóðlegur dagur öryggis sjúklinga 2023 verður tileinkaður þemanu „Engaging patients for patient safety“, in recognition of the crucial role patients, families and caregivers play in the safety of health care.
Það er: „Að þátttaka sjúklinga sé mikilvæg fyrir öryggi þeirra og viðurkenning sé á mikilvægu hlutverki sem sjúklingar, fjölskyldur og umönnunaraðilar gegna í öryggi í heilbrigðisþjónustu.“ Við höfum öll ábyrgð, við þurfum að vita um mikilvægi okkar sem neytendur, sem veitendur og við þurfum að gera kröfu um að stjórnvöld sem eru að vinna í okkar þjónustu hlusti, framkvæmi mikilvæga hluti sem stuðla að bættri heilbrigðisþjónustu og séu meðvituð um hvað skiptir máli.
Við í stjórn Heilsuhags búum yfir reynslu úr heilbrigðiskerfinu, þar sem í öllum tilfellum var brugðist við með röngum hætti. Reynsla að missa barn, aðstandandi barns sem hefur hlotið varanlegt tjón, líkamsskaði í aðgerð sem ekki verður bættur og svo starfsmaður sem var ákærður fyrir að hafa valdið dauða.
Við höfum allar einnig unnið í heilbrigðiskerfinu til margra ára sem hjúkrunarfræðingar þar sem við höfum séð góða hluti gerast. En einnig höfum við orðið vitni að skelfilegri framkomu og mistökum, því var farið af stað að leita uppi verkfæri sem gætu stutt við kerfið og fækkað mistökum. Viðurkenning og rétt úrvinnsla á mistökum gæti verið sú eina „hjálp“ sem hægt er að veita þeim sem eiga um sárt að binda.
MedStar Health, stofnun sem hefur með öryggi og gæði að gera hefur búið til verkfæri sem heilbrigðisyfirvöld hér á landi gætu notað í þessum tilgangi.
CANDOR (Communication and Optimal Resolution) er grunnþáttur í alhliða öryggisáætlun fyrir sjúklinga þar sem kerfisnálgun er með áreiðanleika til að greina, skoða og bæta veikleika í heilbrigðiskerfinu. Candor öryggisáætlun kemur í veg fyrir að heilbrigðisstarfsmaður „fresti, afneiti eða fari í vörn þegar verkferlar eru notaðir í samskiptum við sjúklinga og fjölskyldur sem verða fyrir miska og leiðir til tímanlegrar úrlausnar og kerfisbóta þar sem við á.“
Af hverju CANDOR?
Óvæntur skaði sjúklinga er allt of algengur og viðbrögðin uppfylla venjulega ekki þarfir sjúklings og fjölskyldu, eða stuðla að lærdómi sem gæti komið í veg fyrir skaða í framtíðinni. Samskipta- og verkferlar (CRP), eins og CANDOR, eru grundvallaraðferð til að bregðast við skaða sjúklinga og aðstandenda. Verkferlarnir eru hluti af áhrifaríku, samúðarfullu öryggis- og gæðaumbótum sem nauðsynlegt er að innleiða í íslenskt heilbrigðiskerfi í þágu sjúklinga, starfsfólks og samfélagsins í heild til að bæta þá hnökra og þau ómarkvissu vinnubrögð sem við höfum allt of oft orðið vitni að.
Lykilupplýsingafærni í samskiptum eru líka kennd heilbrigðisfólki:
-
Sýndu samúð
-
Leyfðu sjúklingnum að tjá tilfinningar sínar.
-
Viðurkenna tilfinningar sjúklingsins.
-
Samþykktu tilfinningar sjúklingsins með því að segja að viðbrögð hans séu skiljanleg.
-
Vertu heiðarlegur.
-
Útskýrðu staðreyndir.
-
Gefðu bein svör við spurningum sjúklings, ef þú veist ekki svarið skal tilgreina það beint og gefa áætlun um hvenær hann fær það.
-
Notaðu árangursríkar samskiptaaðferðir.
-
Sýndu spurningum og áhyggjum sjúklingum einlægjan áhuga.
-
Notaðu góða tjáningu án orða (t.d. augnsamband).
-
Forðastu að nota læknisfræðileg heiti.
-
Athugaðu vel að sjúklingurinn skilji upplýsingarnar.
-
Vertu þú sjálfur.
Hvaða breytinga megum við búast við með því að nota CANDOR?
Notkun Candor hefur sýnt:
-
Að öryggi sjúklinga eykst og starfsfólk, sem verður á mistök í starfi, finnur öryggi í verkferlum sem eru til staðar.
-
Bætta andlega líðan og minnkun á streitu og draga úr áföllum hjá öllum sem málin varða.
-
Að samkvæmt rannsókn var fækkun á alvarlegum mistökum um 74%, aukning varð á atburðatilkynningum um 12%, heildarkostnaður sjúkratrygginga lækkaði um 55%, lækkun varð um 42% á tjónum og 47% fækkun varð á málaferlum.
AHRQ (Agency for Healthcare Research and Quality) segir að CANDOR verkferlarnir séu leiðbeiningar um framkvæmd til að:
-
Virkja sjúklinga og fjölskyldur í upplýsingamiðlun í kjölfar mistaka.
-
Samstarf verði við sjúklinga og fjölskyldur um öryggislausnir.
-
Viðhalda trausti við sjúklinga og fjölskyldur eftir skaða.
-
Innleiða umönnunaráætlun fyrir heilbrigðisstarfsfólk í mistökum.
-
Greining á mistökum til að læra af þeim og koma í veg fyrir endurtekningu í framtíðinni.
-
Auka starfsánægju og öryggi fyrir heilbrigðisstarfsfólk.
Heilsuhagur - hagsmunasamtök í heilbrigðisþjónustu skora á heilbrigðisyfirvöld að vinna að því að innleiða verkferla sem bæta öryggismenningu, auka fræðslu og koma á sívirkri þjónustukönnun þar sem skjólstæðingar heilbrigðiskerfisins geta verið virkir þátttakendur.
f.h. Stjórnar Heilsuhags:
Athugasemdir