Ganga líklega út að lokinni skýrslutöku

Konurnar sem hlekkjuðu sig við möstur tveggja hvalskipa í gærmorgun verða ekki settar í farbann þrátt fyrir að Hvalur hf. hafi lagt fram kærur á hendur þeim. „Ég reikna bara með því að þær gangi út að lokinni skýrslu­töku,“ segir Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðar­lögreglu­stjóri hjá lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu.

Ásgeir Þór
Ásgeir Þór „Lög­regl­unni ber ekki að fæða og vökva fólk sem er að fremja lög­brot,“ segir aðstoð­ar­lög­reglu­stjór­inn.

Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðar­lögreglu­stjóri hjá lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu, telur nokkuð skýrt að konurnar sem klifruðu upp í möstur tveggja hvalskipa í gærmorgun í mótmæla­skyni vegna fyrir­hugaðra hvalveiða hafi framið lögbrot. Af þeim sökum hafi lögreglunni ekki verið skylt að koma til þeirra vatni og vistum. 

Hvalur hf. hefur kært konurnar fyrir húsbrot. Spurður hvort hann telji að konurnar hafi brotið lög segir Ásgeir:

„Við teljum okkur vera með það á hreinu.“

Hann vísar í 231. grein hegningar­laga sem segir: 

„Ef maður ryðst heimildar­laust inn í hús eða niður í skip annars manns, eða annan honum óheimilan stað, eða synjar að fara þaðan, þegar skorað er á hann að gera það, þá varðar það sektum eða [fangelsi] allt að 6 mánuðum.“

Ásgeir segir samt sem áður að húsbrot séu ekki með alvarlegri hegningar­lagabrotum og því sé það ekki efni til þess að setja konurnar í farbann. 

„Ég reikna bara með því að þær gangi út að lokinni skýrslu­töku.“

Konurnar klifruðu niður úr möstrunum síðdegis í dag og voru fluttar með lögreglubíl á lögreglustöð. Þar biðu þeirra sjúkra­flutninga­menn sem skoðuðu ástand þeirra, en önnur konan hafði verið án vatns síðan eldsnemma í gærmorgun. Ásgeir telur þó ekki að heilsufar þeirra hafi verið slæmt enda hafi þær komist sjálfar niður úr möstrunum, 

„Þetta fór vel, það slasaðist enginn þó einhverjir séu kannski svangir og þyrstir.“

Telur lögregluna ekki hafa gert mistök

Mótmælendur og stuðnings­fólk þeirra hafa gagnrýnt vinnu­brögð lögreglu á svæðinu töluvert, m.a. það að lögreglan hafi tekið bakpoka annarrar konunnar svo hún var matar- og vatnslaus en ekki viljað færa henni vatn þegar eftir því var óskað.

„Lögreglunni ber ekki að fæða og vökva fólk sem er að fremja lögbrot,“ segir Ásgeir spurður um það. 

Jafnframt hafa viðbrögðin verið gagnrýnd vegna þess að sérsveitin var send á staðinn til þess að byrja með, þrátt fyrir að um frið­samleg mótmæli hafi verið að ræða. 

„Sérsveitin hefur mjög margar sérhæfingar sem snúa að björgun. Þeir eru með sérstaka þjálfun í að vinna með línur, harness, sigstóla og að tryggja fólk niður úr erfiðum aðstæðum. Það var sá eigin­leiki sveitarinnar sem við vorum að leita í í gær.“

Eruð þið í einhverri sérstakri viðbragðs­stöðu vegna mögulegra mótmæla í fram­haldinu?

„Við erum bara rétt búin að ljúka þessu svo við sjáum bara hvað dagurinn ber í skauti sér,“ segir Ásgeir.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár