Byrjuðu í tjaldi við Gullfoss

Svavar Njarðarson, sem rekur Gull­fosskaffi með eiginkonu sinni, Elfu Björk Magnúdóttur, segir síðasta ár hafa verið gott og hann sé stoltur af skatta­greiðslum sínum til samfélags.

Góður rekstur
Góður rekstur Rekstur Gull­foss­kaffi gengur vel og er stað­ur­inn afar vin­sæll meðal ferða­manna. Mynd: Tripadvisor

Hjónin Svavar Njarðarson og Elfa Björk Magnúsdóttir stofnuðu Gull­fosskaffi árið 1996. Upphaf­lega buðu þau aðeins upp á kaffi og súpu í tjaldi við Sigríðar­stofu. Reksturinn hefur vaxið ár frá ári og er Gull­fosskaffi nú viðkomu­staður meirihluta þeirra sem bera Gullfoss augum. Kaffihús er ekki lengur réttnefni heldur er þarna veitinga­staður, verslun með minja­gripi og fatnað, auk salernis­aðstöðu fyrir ferðamenn. Vefslóðin er heldur ekki amaleg: gullfoss.is

Mikil uppbygging

Svavar var með tæpar 108 milljónir í heildar­árstekjur í fyrra, þar af 102 milljónir í fjármagns­tekjur. Hann greiddi því 22,5 milljónir í fjármagns­tekjuskatt á síðasta ári og 784 þúsund krónur í útsvar. „Ég er nokkuð viss um að eitthvað af þessum tölum hafa átt að reiknast á konuna mína,“ segir hann þegar blaða­maður hefur samband. 

Hann er annars stoltur af sínum skatt­greiðslum sem hafi komið til vegna þess hvað reksturinn gengur vel. „Þetta hefur verið fínasta ár. Maður vill skila …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2023

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár