Starfsmenn Kerecis mögulega þeir einu sem borga skatt vegna sölunnar

Skatta­sérfræðingur segir fátt hægt að fullyrða um skatt­heimtu ríkisins vegna sölu­hagnaðar hluthafa Kerecis. Hluta­félög geti frestað skatt­greiðslum vegna sölu­hagnaðar af hluta­bréfum og ef hluthafar séu erlendis sé afar ólíklegt að skattur af sölu­hagnaði rati í fjár­hirslur íslenska ríkisins. Forstjóri Kerecis hélt því fram að færa mætti rök fyrir því að skatt­tekjur af sölunni gætu dugað til vegabóta til Ísafjarðar. Það er hæpið.

Forstjórinn
For­stjór­inn Guð­mundur Fertram fór mik­inn í kjöl­far söl­unnar á Kerecis.

Forstjóri fyrir­tækisins Kerecis skrifaði nýlega, í umsögn sinni um drög að samgöngu­áætlun stjórn­valda, að færa mætti „rök fyrir því, að skatt­greiðslur í kjölfar nýlegrar sölu Kerecis dugi einar og sér til að koma vega­samgöngum milli Ísafjarðar og Reykja­víkur í viðunandi horf“. 

Fátt er þó hægt að fullyrða um hversu miklar skatt­tekjur íslenska ríkið kemur til með að heimta vegna sölu Kerecis, hvenær og hvort þær berast og hversu mikið væri hægt að framkvæma í vegamálum fyrir það fé sem salan á vestfirska vaxtar­sprotanum skilar í fjár­hirslur hins opinbera.

Þegar fyrirtæki eru seld fá hlut­hafarnir greiðslu fyrir hlut sinn í þeim. Það fer svo alfarið eftir því hvernig hluthafalistinn er samsettur hvort, hvar og hvenær skattur er greiddur af sölu­hagnaðinum. Einstaklingar sem áttu hluti í eigin nafni, eins og einhverjir starfs­menn Kerecis sem fengu hlut í félaginu í tengslum við störf sín, greiða skatt af sölu­hagnaðinum, en hið …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár