Skatttekjur af sölu Kerecis dugi fyrir vegabótum til Ísafjarðar

Guð­mundur Fertram Sig­ur­jóns­son, stofn­andi og for­stjóri Kerecis, ritar harð­orða umsögn um sam­göngu­á­ætlun stjórn­valda og segir Vest­firð­inga sitja eftir sem jað­ar­settan hóp þjóð­ar­innar, sem ekki njóti boð­legra sam­gangna, þrátt fyrir að skila fram­lagi til þjóð­ar­fram­leiðsl­unnar langt umfram íbúa­fjölda. Hann vill sjá „Vest­fjarða­línu“ verða að veru­leika.

Samgöngumál
Sam­göngu­mál Guð­mundur Fertram Sig­ur­jóns­son, stofn­andi og for­stjóri Kerecis.

Guð­mundur Fertram Sig­ur­jóns­son, stofn­andi og for­stjóri Kerecis, segir í umsögn fyrir hönd fyr­ir­tæk­is­ins um sam­göngu­á­ætlun áranna 2024-2038, að ef áætl­unin nái fram að ganga verði Vest­firð­ingar áfram „jað­ar­settur hópur þjóð­ar­innar sem ekki nýtur sömu sam­gangna og aðrir þegnar lands­ins“.

Í umsögn fyr­ir­tæk­is­ins, sem send var inn í sam­ráðs­gátt stjórn­valda, segir að lág­lendis­vegur milli megin byggð­ar­laga Vest­fjarða og höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, svokölluð „Vest­fjarða­lína“, sé nauð­syn­leg fyrir áfram­hald­andi vöxt Kerecis og ann­arra vaxt­ar­sprota á Vest­fjörðum.

Með Vest­fjarða­lín­unni er átt við gerð þriggja meg­in­jarð­gangna um Bröttu­brekku, Kletts­háls og Dynj­and­is­heiði og svo þremur bæj­ar­fé­laga­jarð­göngum sem tengi Pat­reks­fjörð, Tálkna­fjörð, Bíldudal og Súðavík með lág­lendis­vegi við „Vest­fjarða­lín­una“.

Fram kemur í umsögn Guð­mundar að færa megi rök fyrir því að „skatt­greiðslur í kjöl­far nýlegrar sölu Kerecis dugi einar og sér til að koma vega­sam­göngum milli Ísa­fjarðar og Reykja­víkur í við­un­andi horf“ og að „jarð­gangafeimni Íslend­inga“ hafi verið vand­ræða­leg svo ára­tugum skipti.

„Eitt svæsn­asta dæmið er gerð Bol­ung­ar­vík­ur­ganga þar sem stjórn­völd voru alltof lengi að taka af skarið og mok­uðu í stað­inn pen­ingum í von­lausan veg um Óshlíð sem allir vissu að yrði aldrei annað en stór­hættu­leg og botn­laus pen­inga­hít. Það lítur út fyrir að end­ur­taka eigi þau mis­tök með því að gera ekki einu sinni ráð fyrir und­ir­bún­ings­vinnu fyrir jarð­ganga­gerð sem myndi tryggja lág­lendis­veg frá Ísafirði til Reykja­víkur, að ónefndum nauð­syn­legum veg­bótum í öðrum lands­hlutum,“ segir í umsögn­inni.

Aukin umsvif kalli á betri samgöngur

Í umsögn­inni kemur einnig fram að aukin umsvif sem fyr­ir­huguð eru í starf­semi Kerecis auki mik­il­vægi greiðra sam­gangna, enda sé það „lyk­il­for­senda að vörur kom­ist með greiðum hætti að vestan og á erlenda mark­aði með skjótum og fyr­ir­sjá­an­legum hætti“.

„Þá er ljóst að mann­afla­þörf Kerecis á Ísafirði verður tæp­ast mætt ef mann­líf á Vest­fjörðum þró­ast ekki í takt við tím­ann – ef fólk kemst ekki ferða sinni þegar því hentar í leit að menn­ingu, afþr­ey­ingu eða lækn­is­þjón­ustu, sam­skiptum við ást­vini í öðrum lands­hlutum eða þarf að erind­ast erlendis,“ segir einnig í umsögn Guð­mundar Fertrams um sam­göngu­á­ætlun.

„Sorglegt“ að annað flugvallarstæði fyrir Ísafjörð sé ekki til skoðunar

Í umsögn­inni segir Guð­mundur einnig að það sé eðli­leg krafa að sam­göngur til Ísa­fjarðar séu sam­bæri­legar sam­göngum til Akur­eyrar. Þessi höf­uð­staðir lands­hlut­anna gegni mik­il­vægu hlut­verki og brýnt sé að opin­berir aðilar gæti jafn­ræðis við úthlutun fjár sem eigi að auka lífs­gæði íbúa.

„Sam­göngu­sam­an­burður við Akureyri er afar óhag­stæður fyrir Ísafjörð, bæði varð­andi vega- og flug­sam­göngur. Flug­sam­göngur vestur eru ótryggar af þeirri ein­földu ástæðu að flug­vall­ar­stæðið stenst ekki kröfur flug­mála­yf­ir­valda nútím­ans nema í mjög góðu veðri. Það er vin­sælt að kenna veðri um það þegar flug fellur niður, en stað­reyndin er sú að í þeim vindi og skyggni þar sem flug fellur niður á Ísafirði væri vel flug­fært á öðrum áætl­un­ar­flug­völlum lands­ins. Það er sorg­legt að ekki sé gert ráð fyrir skoðun á öðru flug­vall­ar­stæði í sam­göngu­á­ætlun, en það er full þörf á að opna umræðu um málið ekki síðar en núna,“ segir í umsögn Kerecis um sam­göngu­á­ætl­un­ina.

Tekjur af einu þorskflaki séu allt að 10 þúsund dalir

Í umsögn Guð­mundar kemur fram að fram­lag Vest­fjarða til þjóð­ar­fram­leiðsl­unnar sé langt umfram íbúða­fjölda og segir hannn að verð­mætin sem vest­fisk fag­þekk­ing skapi sé að sumu leyti for­dæma­laus. „Starfs­fólk Kerecis er gott dæmi um það, því þorsk­flak sem áður fór í ruslið er nú selt úr landi fyrir allt að tíu þús­und doll­ara stykkið,“ skrifar Guð­mundur.

Það er ógn­arhá upp­hæð, en Heim­ildin sagði frá því fyrir skemmstu að fyr­ir­tækið skap­aði tekjur upp á 400-500 doll­ara, 50-70 þús­und krónur, úr hverju þorskroði sem fyr­ir­tækið not­aði til þess að fram­leiða lækn­inga­vörur sínar. 

Í svari sem Kerecis veitti Heim­ild­inni þá kom fram að erfitt væri að setja nákvæma tölu á tekj­urnar af hverju þorskroði. Hins vegar lægi fyrir að tekjur Kerecis auki útflutn­ings­verð­mæti af þorskaf­urðum um gróf­lega 10 pró­sent. Í fyrra voru fluttar út þorska­af­urðir fyrir um 141 millj­arð króna.

Orðrétt sagði um tekj­urnar af hverju þorskroði í svari Kerecis til Heim­ild­ar­innar: „Svarið við þessu er svo­lítið flókið, enda nýt­ist roðið mis­vel og svo eru fram­leiddar margar mis­mun­andi vörur til útflutn­ings (þótt hrá­efnið og tæknin sé ávallt sú sama). Stóra myndin er hins vegar sú, að fyr­ir­tækið er að nýta 0,01% af því roði sem fellur til vegna vinnslu á íslenskum þorski. Með þessu litla hlut­falli er Kerecis að auka útflutn­ings­verð­mætin af þorsk­stofn­inum um ca 10% þannig að fram­legðin af hverju roði er umtals­verð. Kostn­aður við fram­leiðslu, dreif­ingu og sölu er á hinn bóg­inn líka umtals­verður og umbreyt­ing­ar­ferlið, frá því að þorskur er dreg­inn úr hafi og sára­roð kemst í hend­urnar á sam­starfs­að­ilum í USA, er kannski um 3 mán­uðir.“ 

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Brynjúlfur Sæmundsson skrifaði
    Góð og vekjandi grein. Þar er t.d. haldið fram að skatttekjur af sölu Kerecis gætu dugað til að koma vegasamgöngum frá Ísafirði til Reykjavíkur í viðunandi horf. En hvað gera misvitur stjórnvöld við þennan óvænta glaðning?
    0
    • Jón Eiríksson skrifaði
      Samgöngur eru einhver mikilvægast grunnstoð hvers samfélags. Það skildu Rómverjar, sem byrjuðu venjulega á varanlegri vegagerð - og svo komu vatnsveitur (heilbrigðismál). Þannig er mikilvægi þessara málaflokka ekki nýtt af nálinni. Það þarf að efla skilning og vilja stjórnvalda hér í þssum málaflokkum. Þau mega ekki stjórnast af hreppapólitík og atkvæðaveiðum til eins kjörtímabils. Það er búið að tala um samgönguáætlun fyrir Vestfirði í að minnsta kosti þrjá aldarfjórðunga, þvarga um Teigssók í áratugi, og það hefur aldrei verið farið í alvöru yfir besrtu lausnina, jarðgöng. Tímann hefði mátt nota til jarðgangagerðar. Hún er kannske ekki ódýrust til skamms tíma, en við munum líklega sitja uppi með aðeins ódýrari lausn með umhverfisspjöllum og tökum umhverfisáhættu með firðina í Barðastrandasýslum. Fyrst Færeyingar geta fjármagnað sín jarðgöng sjálfir án framlags frá Dönum, hvers vegna er það ekki hægt hér? Kannske eru lögfræðingar og dýralæknar ekki endilega með góða heildarsýn í þessum málaflokki þó þeir geti séð um bókhald og almennan rekstur, en ábyrgðin liggur auðvitað hjá stjórnmálamönnum á Alþingi.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár