Tekjur Kerecis af vörum úr einu þorskroði allt að 70 þúsund krónur

Íslenska líf­tækni­fyr­ir­tækið Kerecis á Ísafirði var nýlega selt fyrir metfé. Kerecis fram­leiðir lækn­inga­vörur úr þorskroði. Tekjur Kerecis eru um 10 pró­sent af útflutn­ings­verð­mæti þorskaf­urða þrátt fyrir að það nýti ein­ungis 0,01 pró­sent af því roði sem fellur til við vinnslu þorsks á Íslandi.

10 milljarða tekjur af aukaafurð
10 millj­arða tekjur af auka­af­urð Fyrr­ir­tækið Kerecis skap­aði í fyrra 10 millj­arða króna tekjur með því að búa til sára­um­búðir úr þorskroði. Guð­mundur Fertram Sig­ur­jóns­son er stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri félags­ins.

Íslenska líf­tækni­fyr­ir­tækið Kerecis á Ísafirði skapar tekjur upp á 50 til 70 þús­und krónur, um 400 til 500 doll­ara, af hverju þorskroði sem fyr­ir­tækið vinnur lækn­inga­vörur úr. Þetta herma öruggar upp­lýs­ingar Heim­ild­ar­innar. Heild­ar­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins námu 10 millj­örðum króna í fyrra.

Kerecis býr til sára­um­búðir úr þorskroð­inu sem not­aðar eru í skurð­að­gerðum og til að með­höndla þrá­lát sár, meðal ann­ars eftir bruna. Miðað við tekjur fyr­ir­tæk­is­ins 2022 og virði var­anna sem unnar eru úr hverju roði skapar fyr­ir­tækið þessar tekjur með því að vinna lækn­inga­vörur úr 140 til 200 þús­und þorskroðum.

Kerecis var nýlega selt til alþjóð­lega lækn­inga­vöru­fyr­ir­tæk­is­ins Coloplast fyrir tæp­lega 180 millj­arða króna. 

Í svari frá Kerecis við spurn­ingu Heim­ild­ar­innar kemur fram að erfitt geti verið að setja nákvæma tölu á tekj­urnar af hverju þorskroði. Hins vegar liggi fyrir að tekjur Kerecis auki útflutn­ings­verð­mæti af þorskaf­urðum um gróf­lega 10 pró­sent. Í fyrra voru fluttar út þorska­af­urðir fyrir …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár