Færri gistinætur á höfuðborgarsvæðinu núna en í fyrra

Ferða­mönnum fjölgar áfram en hver og einn er í styttri tíma og eyðir minna af pen­ingum en í fyrra. Það kemur þó ferða­þjón­ust­unni ekki á óvart. Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, segir síð­asta ár óvenju­legt. Gistin­óttum ferða­manna fjölg­aði utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Færri gistinætur á höfuðborgarsvæðinu núna en í fyrra
Flestar gistinætur ferða­fólks eru enn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en þar fækk­aði þeim þó á milli ára, miðað við júní, sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Fjölda gistin­átta fjölg­aði alls staðar á land­inu í júní sam­an­borið við sama mánuð í fyrra, nema á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þar fækk­aði fjölda gistin­átta í júní­mán­uði á milli ára, þrátt fyrir tölu­verða aukn­ingu ferða­manna til lands­ins. Gistin­óttum fjölg­aði mest á Suð­ur­landi, um 13 pró­sent á milli ára. Fjöldi hót­el­her­bergja á höf­uð­borg­ar­svæð­inu stóð í stað á milli ára og þýða færri gistinætur því að nýt­ing þeirra varð minni. Þetta sýna tölur Hagstofu Íslands um gistinætur í júní. 

Góður gangur Jóhannes segir að það hafi gengið vel að jafna árs­tíð­ar­sveiflur og fá ferða­menn til að fara víðar um landið en bara á höf­uð­borg­ar­svæðið.

Gistinæt­urnar eru enn lang­flestar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, jafn­vel þó þær hafi verið 5252 nóttum færri nú en í fyrra. Samtals voru gistinæt­urnar 231.849 í júní síð­ast­liðnum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Á Suð­ur­landi voru gistinæt­urnar 123.957 í júní núna en höfðu verið 109.340 í júní á síð­asta ári. Nýtingin var að sama skapi einna mest á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, 80 pró­sent, en hún væri bæði hærri á Suð­ur­landi og Aust­ur­landi, þar sem hún var 85,3 pró­sent og 82,4 pró­sent.

Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, segir þetta ekki koma á óvart. 

„Ég held að við séum að sjá í raun­inni þróun sem er að verða af nokkrum orsökum. Við erum að koma út úr ári sem var mjög óvenju­legt,“ segir hann úr eigin sum­ar­fríi, þar sem hann er trufl­aður af blaða­manni. Jóhannes segir að ferða­menn hafi hagað ferða­lögum sínum með óvenju­legum hætti í fyrra, með lengri ferðum en íslensk ferða­þjón­usta á að venj­ast. „Ferða­menn voru að gista fleiri nætur, jafn­vel upp í það að ferða­menn eins og frá Þýska­landi voru að koma í þrjár vikur frekar en tvær,“ segir hann og bætir við að „Banda­ríkja­menn voru að koma hingað og stoppa, bara sem dæmi, kannski í átta nætur í staðin fyrir fimm og í sam­hengi við það fara lengra út frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu, fara lengra um landið.“

Ferða­vilji eftir COVID og upp­safnað sparifé hafi auð­veldað ferða­fólki frá löndum sem einna helst heim­sækja Ísland að eyða meiru og vera lengur. „Svo það kemur ekki á óvart á þessu ári að sjá þetta drag­ast saman aftur. Við erum að sjá, miðað við korta­veltu­tölur, heldur minni eyðslu per ferða­mann, heldur minni dval­ar­lengd en í fyrra, og svo fram­vegis,“ segir Jóhannes.

Meira kunni þó vel að spila inn í breytta hegðun ferða­fólks.

„Verðin hafa farið tölu­vert hraðar upp hér eftir far­ald­ur­inn heldur en til dæmis í nágranna­borg­unum á Norð­ur­lönd­unum og það hefur eflaust ein­hver áhrif líka á þá sem hafa hugsað sér að koma með stuttum fyr­ir­vara.“

„Þeir sem eru að koma til Íslands ætla sér að stórum hluta að fara um landið og skoða nátt­úr­una og það er bara tölu­vert erf­ið­ara að fá gisti­rými þar sem fram­boð er minna víða um landið og það getur vel verið að fólk ákveði að koma síðar á árinu eða á næsta ári eða eitt­hvað slíkt og þess vegna gæti verið að þetta rými nýt­ist ekki jafn vel á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.“

„Verðin hafa farið tölu­vert hraðar upp hér eftir far­ald­ur­inn heldur en til dæmis í nágranna borg­unum á Norð­ur­lönd­unum“

Fjöldi gistin­átta sýnir að Suð­ur­land stekkur upp á milli ára. Er þetta afleið­ing þess að við höfum reynt að dreifa ferða­mönnum?

„Já, ég myndi segja að við höfum náð umtals­verðum árangri í því á þessum und­an­förnum árum. Það hefur verið í raun­inni frá því að Inspired by Iceland, eða Ísland allt árið, her­ferðin hófst, hefur verið eig­in­lega þessi tvö­falda mantra mark­aðs­setn­ingar á Íslandi þetta: Ísland allt árið og Ísland allt landið. Að minnka árs­tíða­sveifl­una og koma ferða­mönnum víðar um land. Og þetta hefur tek­ist ótrú­lega vel. Það er hægt að sjá á því að þegar þetta tíma­bil byrj­aði þá vorum við mesta árs­tíða­sveiflu á Norð­ur­löndum en núna erum við með minnsta, ef mig mis­minnir ekki, ef horft er á landið í heild.“

Líka á vet­urnarFerða­fólk hefur í auknum mæli sótt Ísland heim yfir vetr­ar­mán­uð­ina.

Jóhannes segir þó árs­tíða­sveifl­una meiri utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins en innan þess. Verk­efnið að ná þeim sveiflum niður gangi hraðar en að dreifa ferða­mönnum, sem þó hafi gengið ágæt­lega. 

„Það hefur gengið að mörgu leyti vel líka þó við hefðum gjarnan viljað sjá hrað­ari þróun á því,“ segir hann. 

Þó að hver og einn skuli vera að eyða minna en í fyrra og gistin­óttum fækkað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru heilt yfir fleiri gistinætur að selj­ast og fleiri að koma til lands­ins en áður. Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar eru upp­safn­aðar gistinætur í ár orðnar hátt í 4,1 milljón tals­ins sam­an­borið við 3,5 millj­ónir á sama tíma­punkti í fyrra, og útlit fyrir að gistinætur á árs­grund­velli fari í fyrsta sinn yfir 9 millj­ónir í ár. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu