Vitum lítið um hvernig verðbólgan snertir ólíkt fólk

Heimili geta upp­lifað mun hærri verð­bólgu en opin­berar mæl­ingar gefa til kynna, allt eftir því hvernig neyslu þeirra er háttað. Lítið er hins vegar vitað um hvernig verð­hækk­anir og við­brögð við þeim snerta ólíka hópa.

Vitum lítið um hvernig verðbólgan snertir ólíkt fólk
Yfir og allt um kring Verð­bólgu­draug­ur­inn blæs stundum hressi­lega á heim­ili sem skulda fast­eigna­lán. Vaxta­hækk­anir Seðla­banka Íslands, sem beitt er til að halda aftur af eða ýta undir neyslu snertir sama hóp tölu­vert. Mynd: Hlíf Una

Verð­bólgan snertir fólk með mis­jöfnum hætti og er það ekki síst þess vegna sem fólk hefur ólíkar vænt­ingar til þess hvernig hún þró­ist til fram­tíðar. Sá sem greiðir vísi­tölu­tengda leigu eða borgar breyti­lega vexti af óverð­tryggðu íbúða­láni finnur mjög mikið fyrir verð­lags­breyt­ing­unum og við­brögðum Seðla­bank­ans við þeim, á meðan sá sem lítið eða ekk­ert skuldar tekur helst eftir því að geta lagt minna fyrir um hver mán­aða­mót, fremur en að þurfa að fara í gagn­gerar breyt­ingar á eigin neyslu­hegðun. 

Fylgist meðRannveig Sig­urð­ar­dóttir, vara­seðla­banka­stjóri pen­inga­stefnu, situr í pen­inga­stefnu­nefnd sem ákvarðar stýri­vexti Seðla­banka Íslands.

„Mæli­kvarð­arnir eru með kostum og göllum og ég get alveg hugsað mér ein­hverja betri en maður lærir smám saman hvað þeir segja, miðað við hvað gerð­ist síðan. En til dæmis verð­bólgu­vænt­ingar heim­ila, þær eru yfir­leitt miklu hærri en ann­arra, en það er bara af því að heim­ilin eru með mis­mun­andi neyslukörfu. Þau horfa kannski …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íslenski verðbólgudraugurinn

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár