Veðrið, verðbólgan og gengi KR í fótbolta

Þor­leif­ur Garð­ar Sig­urðs­son seg­ir alltaf hægt að spjalla um veðr­ið, verð­bólg­una og gengi KR-inga í fót­bolta.

„Ég heiti Þorleifur Garðar Sigurðsson og við erum stödd á bekk á Ásvallagötu 19. Ég er kominn hingað til að versla í Kjötborg sem opnar eftir nokkrar mínútur. Ég veit ekki hvort það megi segja frá því hvað ég er að fara að kaupa, það flokkast undir tóbaksvörur. 

Veðrið er mér efst í huga þessa dagana. Það er vonandi að við fáum gott sumar, sól og blíðu. Þessi dagur lítur ágætlega út en sumarið er rétt að byrja. Er það ekki siður Íslendinga að spá í veðrið? Því það er nú alls konar veður á Íslandi. Svo er verðbólgan svona dægurmál sem maður er búinn að vera að tala og hugsa um næstum því síðan maður fæddist. Þess á milli er það KR og gengi þeirra í fótbolta. Þeim gengur svona sæmilega, mætti ganga betur. Ég var liðsstjóri þarna fyrir nokkrum árum svo maður var fastur maður þarna. Það gekk vel, stundum, á meðan ég var þar. Við Vesturbæingar segjum KR vera besta liðið í Reykjavík. 

Síðan ég varð svona slæmur í fótunum, ég er með ónýta ökkla, hné og mjaðmir, er ég ekki jafn góður til gangs og það breytir auðvitað miklu. Ég var vanur að ganga mikið en í dag get ég gengið, en bara hægt og rólega og ég fer ekki eins langt. Ég næ allavega út í Kjötborg og KR, það er sárastutt út í Frostaskjól héðan, enda ef þú ert Vesturbæingur þá er allt stutt í Vesturbænum. 

Ég er fæddur og uppalinn hérna á Brávallagötunni og hef verið í Vesturbænum alla tíð síðan fyrir utan fjögur ár í flóttamannabúðum í Kópavogi, ég kallaði það flóttamannabúðir að fara úr Vesturbænum í Kópavog. Bróðir minn átti íbúð þar og var erlendis í námi og ég passaði hana á meðan. Ég stoppaði bara þar til að sofa en eyddi annars mestum tíma mínum í Vesturbænum. Vesturbæingar eru Vesturbæingar. Þeir sem eru aðfluttir lagast við það að búa hér. 

Til þess að verða alvöru Vesturbæingur er númer eitt að ganga í KR. Það eru svo alls konar lið þar, ekki bara fótbolti, það getur verið handbolti, körfubolti, frjálsar eða glíma. Það var einu sinni kúluvarp en það er víst bannað í dag. Það var bannað eftir að það urðu svo mörg höfuðslys. Númer tvö er að hugsa um allt sem er betra fyrir Vesturbæinga og KR-inga, sem er bara allt saman. 

Fólk í austurhluta bæjarins myndu kalla þetta KR-grobb ef þau myndu heyra þetta en við hlustum ekkert á svoleiðis. Brávallagatan er næstbesta gatan í Vesturbænum, maður veit náttúrlega aldrei hvað er best en hún er allavega næstbest. 

Ég bý í næsta húsi við Grund og fer þar í mat og kaffi. Það er mjög gott fólk að vinna þar og gott fólk sem er þar. Svo það er allt gott á Grund, góður matur og svona.“ 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Íslenskt kollagen framleitt á Blönduósi
1
Nýsköpun

Ís­lenskt kolla­gen fram­leitt á Blönduósi

Norð­an heiða, nán­ar til­tek­ið á Blönduósi, er ís­lenskt kolla­gen fram­leitt. Um er að ræða fyr­ir­tæk­ið Prot­is sem nýt­ir sér verk­smiðju Vil­ko þar á slóð­um, en um er að ræða sömu eig­enda­hópa að miklu leyti. Það er ým­is­legt í far­vatn­inu hjá þeim, með­al ann­ars sam­starf við drykkjar­vöru­fram­leið­end­ur er­lend­is sem eig­and­inn bind­ur mikl­ar von­ir við.
„Ef við viljum gera róttækar breytingar á hagkerfinu erum við betur sett utan ESB“
4
ViðtalHorft til Evrópu

„Ef við vilj­um gera rót­tæk­ar breyt­ing­ar á hag­kerf­inu er­um við bet­ur sett ut­an ESB“

Full­veldi Ís­lands og sjálf­stæði í pen­inga- og rík­is­fjár­mál­um þarf að vera til stað­ar ef vinstri stjórn kemst til valda og vill gera rót­tæk­ar breyt­ing­ar, seg­ir Jök­ull Sól­berg Auð­uns­son, stjórn­ar­mað­ur í Til vinstri við ESB. Hann vill horfa til BRICS-ríkj­anna og var­ar við mögu­leik­an­um á her­skyldu inn­an ESB.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár