Stórmerkur fornleifafundur

Nafnið Rungholt hljómar lík­lega ekki kunn­ug­lega í eyrum nútíma­manna. Öldum saman var Rungholt í Slésvík meðal stærstu bæja í Norður- Evrópu en mikil flóð urðu til þess að bær­inn hvarf, með manni og mús. Vís­inda­menn hafa nú fundið bæinn og kalla upp­götv­un­ina stór­við­burð.

Stórmerkur fornleifafundur
Mið­alda­kirkja Lengi hefur verið vitað að bær­inn Rungholt í Norður-Frís­landi hafi horfið í hafið í miklum flóðum árið 1362. Nú, tæpum 700 árum síðar hafa forn­leifa­fræð­ingar fundið kirkj­una í Rungholt. Mynd: Facebook

Öldum saman hafa íbúar Norður-Frís­lands stað­hæft að í góðu veðri megi heyra klukkna­hljóm sem þeir segja koma frá mið­alda­kirkj­unni í Rungholt. Ekki hafa allir aðrir verið trú­aðir á þessa stað­hæf­ingu, kallað þetta þjóð­trú. Lengi hefur verið vitað að bær­inn Rungholt í Norður-Frís­landi (sem þá var hluti Suður-Jótlands) hafi horfið í hafið í miklum flóðum árið 1362. Nú, tæpum 700 árum síðar hafa forn­leifa­fræð­ingar fundið kirkj­una í Rungholt.

Ruth Blanken­feldt forn­leifa­fræð­ingur og starfs­maður forn­leifa­mið­stöðv­ar­innar í Slésvík sagði frá þessum merka fundi í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske fyrr í þessum mán­uði. Í við­tal­inu greindi Ruth Blanken­feldt frá því að kirkjan í Rungholt hafi verið um það bil 40 metra löng og 15 metra breið. 

En kirkjan er ekki það eina sem forn­leifa­fræð­ing­arnir fundu. „Við upp­göt­uðum greini­leg merki bæj­ar­fé­lags sem var um það bil tveggja kíló­metra langt, og álíka breitt, umhverfis kirkj­una. Þetta sýnir að Rungholt hefur verið stór bær, á þess tíma mæli­kvarða.“ 

Afrakstur margra ára vinnu

Fundur kirkj­unnar og svæð­is­ins í nágrenni hennar er afrakstur margra ára vinnu. Vís­inda­menn hafa rann­sakað leir­inn á svæði milli eyj­unnar Pelvorm og Nord­strand­skag­ans skammt frá bænum Husum, um það bil 40 kíló­metrum sunnan við vest­asta hluta núver­andi landamæra Dan­merkur og Þýska­lands. Vís­inda­menn­irnir hafa not­ast við nútíma mæli- og leit­ar­tækni við þessa vinnu. Kirkjan var ekki það eina sem fannst, leifar margra bygg­inga, þar á meðal voru tvær minni kirkjur, brunnar, hús­grunnar, frá­rennsl­islagnir svo fátt eitt sé nefnt.  

Atlantis norðursins

Öldum saman hafa frá­sagnir af Rungholt haft á sér eins­konar þjóð­sagna­blæ og stundum líkt við Atlantis sem Platon (um 427 f. Kr-347 f.Kr) greindi frá í einu rita sinna að hefði sokkið í sæ. 

Í byrjun síð­ustu aldar vakn­aði áhugi sagn­fræð­inga á frá­sögnum um að til hefði verið eitt­hvað sem hét Rungholt og að það hefði verið ríkt sam­fé­lag. Mikil vinna var lögð í að leita í gömlum ann­álum og þá kom margt í ljós, sem ekki var vitað um áður. Meðal ann­ars fannst við­skipta­samn­ingur sem gerður var í maí 1361 milli kaup­manna í Rungholt og Hamborg. Einnig fannst landa­kort frá árinu 1636, gert af Johannes Meyer, end­ur­gerð korts frá 1240. 

RungholtKort frá 1850 sem sýnir Rungholt á mið­öldum.

Þúsundir fórust

Aðfara­nótt 16. jan­úar 1362, ein­ungis átta mán­uðum eftir und­ir­ritun við­skipta­samn­ings­ins áður­nefnda, gerði ofsa­veður af vestri. Svæði sem nefnd­ist Strand rofn­aði frá meg­in­land­inu og varð að eyju. Bærinn Rungholt og nokkur þorp í nágrenn­inu hurfu að mestu af yfir­borði jarðar. Þetta eru ein­hverjar mestu nátt­úru­ham­farir sem um getur í Norð­ur­hluta Evrópu. Þessir atburðir ganga hjá Dönum undir nafn­inu „Den store mand­drukn­ing“. Ekki er með vissu vitað hve margt fólk fórst þessa óveð­ur­snótt en talið að það hafi verið á bil­inu 10 – 30 þús­und. 

Rétt er að nefna að 11. októ­ber árið 1634 varð annað stór­flóð á þessu sama svæði og við það fór hluti Strand svæð­is­ins undir vatn og til urðu nokkrar minni eyjar, Pelvorm (einnig ritað Pellvorm) er stærst þeirra. „Den anden store mand­drukn­ing“ nefna Danir þennan atburð, en talið er að allt að 15 þús­und manns hafi farist. Það litla sem eftir stóð af Rungholt hvarf í þessu flóði.

Miklar breytingar á veðurfari hluti skýringarinnar

Rann­sóknir á dropa­steinum og kalkút­fell­ingum í aust­ur­rísku ölp­unum hafa leitt í ljós að á 14. öld urðu miklar breyt­ingar á veð­ur­fari. Úrhelli og stormur vikum saman ollu miklum skemmdum á ökrum og öðrum rækt­un­ar­löndum. Hung­ursneyð herj­aði á íbúa margra Evr­ópu­landa og Svarti dauði varð allt að helm­ingi íbúa álf­unnar að ald­urtila. Íbúar Rungholt höfðu lengi ótt­ast flóð og höfðu reist varn­ar­garða, tveggja metra háa að talið er. Þegar flóðið brast á braut það niður varn­ar­garð­ana og æddi yfir svæðið, íbú­arnir áttu enga und­an­komu­leið.

Friðlýst verndarsvæði 

Þjóð­fræð­ing­ur­inn Hans-Peter Duerr, sem er pró­fessor við háskól­ann í Bremen, vann árum saman að rann­sóknum á Rungholt svæð­inu, ásamt nem­endum sínum. Þeir fundu alls kyns leir­muni, mynt, skart­gripi, blá­stein frá Afganistan, og enn­fremur hluta skips sem talið er að hafi verið frá Krít. Hans-Peter Duerr telur að Rungholt hafi verið versl­un­ar­staður öldum saman, jafn­vel frá því fyrir daga Krists. Hans-Peter Duerr og nem­endur hans gátu hins vegar ekki stundað upp­gröft á svæð­inu sökum þess að það er á menn­ing­arminja­skrá Sam­ein­uðu þjóð­anna og þess vegna frið­lýst.  

Fundu kirkjuna í Rungholt með hjálp tækninnar

Á allra síð­ustu árum hefur komið til sög­unnar alls kyns tækni sem gerir  forn­leifa- og jarð­fræð­ingum mögu­legt að finna og stað­setja manna­bú­staði og margt annað sem leyn­ist grafið í jörðu. Ruth Blanken­feldt forn­leifa­fræð­ingur segir fund kirkj­unnar og mann­vist­ar­leif­arnar á Rungholt svæð­inu stór­frétt. En rann­sókn­irnar á þessu svæði séu rétt að byrja.

Þess má geta að vitað er að all­stórt svæði skammt frá Esbjerg fór undir vatn í stór­flóð­inu árið 1634. Rann­sóknir á því svæði eru ekki hafnar en áður­nefnd Ruth Blanken­feldt sagði í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske að þar biði áhuga­vert við­fangs­efni.

Þess má í lokin geta að auk flóð­anna og mann­skað­anna árin 1362 og 1634, sem komið hafa við sögu í þessum pistli, hafa að minnsta kosti tvisvar til við­bótar orðið mann­skæð flóð í Danmörku. Árið 1717 varð flóð sem kost­aði mörg þús­und manns lífið, þar á meðal um tvö þús­und á Eidjer­sted skag­anum. Árið 1872 gekk mik­ill sjór á land á Lálandi, Falstri og Suð­austur-Sjálandi í óveðri sem Danir nefna Østen­stormen, Aust­an­veðrið. Að minnsta kosti 300 manns lét­ust í því óveðri.  

Kjósa
46
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár