Með atvinnulífið í DNA og elskar majones – Nærmynd af Guðrúnu Hafsteinsdóttur

Guðrún Haf­steins­dóttir er tals­kona atvinnu­lífs­ins og hefur þar komið víða við í stjórnum og nefndum. Aðeins 23 ára tók hún við sem fram­kvæmda­stjóri fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­is­ins Kjöríss þegar faðir hennar lést. Guðrún styður einka­rekstur í heil­brigð­is­kerf­inu og finnst 20 millj­ónir í skatt­frjálsan arf frá for­eldrum vera lág upp­hæð. Hún er mikil mat­kona, er vit­an­lega hrifin af ís en elskar ekki síður majo­nes og síld. Í dag tók hún við lyklunum að dóms­mála­ráðu­neyt­inu.

Með atvinnulífið í DNA og elskar majones – Nærmynd af Guðrúnu Hafsteinsdóttur
Nýr dóms­mála­ráð­herra Guðrún Haf­steins­dóttir tók við lang­þráðu emb­ætti dóms­mála­ráð­herra í dag. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Maður fær aldrei leið á ís,“ sagði Guðrún Haf­steins­dóttir, þáver­andi fram­kvæmda­stjóri Kjöríss, í sam­tali við Morg­un­blaðið árið 1994. Þar kom fram að hún væri „aðeins 24 ára“ gömul. Ári áður hafði faðir hennar, Haf­steinn Krist­ins­son, mjólk­ur­fræð­ingur og for­stjóri Kjöríss, lát­ist skyndi­lega úr heila­blóð­falli. 

„Þetta bar svo ótrú­lega brátt að. Hann hafði aldrei misst dag úr vinnu vegna veik­inda og svo var hann dáinn. Þetta var mikið áfall. Það var ekki aðeins að ég missti pabba minn og nán­asta sam­starfs­mann. Ég missti líka besta vin minn,“ sagði Guðrún við Morg­un­blaðið. 

Hún var búin að skrá sig til háskóla­náms þegar pabbi hennar lagði hart að henni að koma og starfa hjá Kjörís árið 1992. Hún sló til og hann setti upp skrif­borð fyrir hana gegnt sínu skrif­borði. Við óvænt and­lát hans tók hún við stöðu fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins 23 ára gömul. Guðrún hefur nær allan starfs­feril sinn unnið hjá fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu Kjörís í Hvera­gerði. 

Teygjanlegir 18 mánuðir

Guðrún Haf­steins­dóttir tók í dag við lyklum að dóms­mála­ráðu­neyt­inu. Loksins, segja sumir. 

Það vakti tölu­verða athygli þegar til­kynnt var að Jón Gunn­ars­son yrði dóms­mála­ráð­herra í öðru ráðu­neyti Katrínar Jak­obs­dóttur eftir að saman náð­ist um að halda stjórn­ar­sam­starfi Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks áfram eftir síð­ustu kosn­ing­ar. Fyrir það fyrsta er Jón ekki odd­viti síns kjör­dæmis heldur sat hann í öðru sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks í Krag­an­um, kjör­dæmi flokks­for­manns­ins Bjarna Bene­dikts­son­ar. Hann er eini ráð­herr­ann í rík­is­stjórn sem er ekki odd­viti. Með því að velja Jón gekk Bjarni fram­hjá tveimur odd­vitum í lands­byggð­ar­kjör­dæm­um, Guð­rúnu í Suð­ur­kjör­dæmi og Njáli Trausta Frið­berts­syni í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Jón átti þó ekki að sitja sem ráð­herra út kjör­tíma­bil­ið, heldur ein­ungis í 18 mán­uði. Svo átti Guð­rún að taka við. Hún var ekki sátt með þá ákvörð­un. Síðan urðu þessir 18 mán­uðir eitt­hvað óljósir, hvort miða ætti við tím­ann frá því kosið var eða þegar rík­is­stjórnin var mynduð. Síðan mót­mælti Jón því að hann ætti yfir höfuð að hætta sem ráð­herra. En á end­anum fór það þannig að Guðrún tók við emb­ætt­inu á kven­rétt­inda­dag­inn.

„Já, það er þrýst­ingur á að það verði fylgt sömu stefnu og Jón hefur gert í útlend­inga­málum“
Bjarni Bene­dikts­son

Guðrún seg­ist sem dóms­mála­ráð­herra ætla að leggja mesta áherslu á útlend­inga­mál, lög­gæslu og Land­helg­is­gæsl­una, en einnig vill hún bæta rétt­ar­stöðu þolenda kyn­ferð­is­of­beldis og gera end­ur­bætur í fang­els­is­málum. Útlend­inga­málin vegi hins vegar þyngst næstu árin. 

MættGuðrún mætti kát á rík­is­ráðs­fund­inn í morgun á Bessa­stöðum klukkan 10.

Eftir rík­is­ráðs­fund­inn á Bessa­stöðum í dag sagði Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála­ráð­herra, við blaða­menn að hann reikn­aði með því að Guðrún myndi fylgja stefnu Jóns í útlend­inga­málum: „Já, það er þrýst­ingur á að það verði fylgt sömu stefnu og Jón hefur gert í útlend­inga­málum.“ Þegar Guðrún var spurð hvort hún ætl­aði að fylgja stefnu Jóns í sagði hún: „Jón hefur verið að fylgja stefnu flokks­ins og ég mun fylgja stefnu flokks­ins.“

Atkvæðamikil í íslensku atvinnulífi

Guðrún er fædd 9. febr­úar 1970 og er því 53 ára gömul. Hún er í sam­búð með Hans Krist­jáni Ein­ars­syni Hagerup gull­smið og eiga þau sam­tals sex börn. Hún er með stúd­ents­próf frá Fjöl­brauta­skóla Suð­ur­lands, BA-gráðu í mann­fræði frá Háskóla Íslands 2008 og þá hefur hún lokið diplóma­námi í jafn­rétt­is­fræðum frá HÍ. 

Eftir Guðrúnu er tekið hvert sem hún fer. Hún er þykir skemmti­legur félags­skapur en getur einnig verið hörð í horn að taka. Og hún gefur lít­inn afslátt af hægri stefn­unni.

Hún hefur verið atkvæða­mikil í íslensku atvinnu­lífi, fyrst og ekki síst í  fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu Kjörís þar sem hún hefur verið fjár­mála­stjóri, fram­kvæmda­stjóri og mark­aðs­stjóri, á mis­mun­andi tímum. Hún hefur þá komið víða við í stjórnum og nefndum á vegum atvinnu­lífs­ins. Hún var þannig for­maður Samtaka iðn­að­ar­ins, vara­for­maður Samtaka atvinnu­lífs­ins, for­maður stjórnar Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna og átti sæti í stjórn Háskóla Reykja­víkur og Bláa lóns­ins. Hún tók sæti á þingi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn við kosn­ing­arnar 2021.

Fyrsti rík­is­ráðs­fund­ur­innGuðrún tók við emb­ætti dóms­mála­ráð­herra á sínum fyrsta rík­is­ráðs­fundi.

Þegar hún til­kynnti um fram­boð sitt til Alþingis sagði hún: „Suð­ur­kjör­dæmi býr yfir miklum tæki­færum sem brýnt er að efla. Ég er til­búin að taka þátt í þeirri vinnu og tel að reynsla mín og þekk­ing muni nýt­ast vel. Í Suð­ur­kjör­dæmi er iðandi og gott mann­líf og hér höfum við allt sem þarf til að vera leið­andi á öllum sviðum atvinnu­lífs­ins. Ég trúi því að saman getum við eflt atvinnu­greinar okkar og bætt lífs­kjör okkar sem hér búum og störfum.“ 

Gegn tollfrjálsum innflutningi á úkraínskum vörum

Suð­ur­landið, kjör­dæmi Guðrúnar, er eitt helsta land­bún­að­ar­hérað lands­ins. Alþingi sam­þykkti á síð­asta ári að heim­ila toll­frjálsan inn­flutn­ing á land­bún­að­ar­vörum frá Úkraínu til að sýna Úkra­ínu­mönnum stuðn­ing í stríð­inu við Rússa. Und­an­þágan var tíma­bundin og rann út um síð­ustu mán­aða­mót.

Hart var tek­ist á um málið á Alþingi og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, sak­aði Guðrúnu, sem er for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, sem og þing­menn Fram­sókn­ar­flokks, fyrir að koma í veg fyrir fram­gang máls­ins. Guðrún svar­aði þessu með orð­unum: „Lág­kúr­an verður nú varla meiri.“ Hún benti enn­fremur á að ekki hafi verið meiri­hluti fyrir fram­leng­ingu und­an­þág­unnar í nefnd­inni og að málið hafi betur átt heima á borði rík­is­stjórnar, frekar en í nefnd­inni þar sem Bjarni Bene­dikts­son lagði inn upp­kast að frum­varpi nokkrum vikum áður. 

Guðrún sagði hins vegar að hags­munir bænda hafi ráðið miklu um að end­ur­nýja ekki toll­frelsi á úrka­ínskum land­bún­að­ar­af­urðum. Hags­muna­öfl í land­bún­aði lögð­ust þungt á þing­menn í því skyni að koma í veg fyr­ir áfram­hald­andi tolla­leysi á kjúk­lingi, sem hin sömu öfl hafa með­al ann­ars flutt inn sjálf. Ýmsir vildu því meina að hluti fram­sókn­ar­þing­manna ásamt hluta sjálf­stæð­is­flokks hafi lagst á sveif með þessum hags­muna­öflum.

Í umræðum um málið á þingi sagði Guðrún: „Ég bendi á það að rík­is­stjórn Íslend­inga hefur veitt marg­vís­legan og góðan stuðn­ing við Úkra­ínu­menn og fólk í neyð. Ég ætla að end­ur­taka þau orð mín sem ég sagði hér í ræðupúlti á Alþingi Íslend­inga í síð­ustu viku: Það getur ekki hafa verið vilji Alþingis Íslend­inga þegar þetta var sam­þykkt á síð­asta ári að þetta hefði afdrifa­ríkar afleið­ingar á rekstr­ar­af­komu bænda á Íslandi.“ Þeirra sömu og höfðu sjálfir meðal ann­arra staðið að inn­flutn­ingnum með til­heyr­andi hagn­aði.

20 milljónir lág upphæð

Guðrún hefur verið gagn­rýnin á þenslu í rekstri hins opin­bera.  Í síð­asta mán­uði greindi Vísir frá því að sjö hund­ruð manns starfi í íslensku ráðu­neyt­unum. Guðrún gagn­rýndi þennan fjölda harð­lega og sagði hið opin­bera keppa um starfs­fólk við mark­að­inn og bjóði jafn­vel betri  kjör. „Mér finnst þetta nátt­úru­lega alveg rosa­lega mikið,“ sagði hún um fjölda starfs­fólks í ráðu­neyt­unum og að atvinnu­lífið líði fyrir fjölda opin­berra starfs­manna: „Á bak­við opin­bera starfs­menn verður atvinnu­lífið að vinna af miklum þrótti til þess að geta borgað þetta, því þessi launa­kostn­aður er greiddur með skatt­greiðslum,“ sagði hún. 

Guðrún var fyrsti flutn­ings­maður frum­varps þriggja þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi sem í apríl lögðu fram frum­varp um breyt­ingu á erfða­lögum og lögum um erfða­fjár­skatt, þar sem þau leggja til að for­eldrar geti arf­leitt börn sín að allt að tíu millj­ónum skatt­frjálst.

Í sam­tali við Morg­un­blaðið sagði hún að með frum­varp­inu ætti hvert barn von á því að fá sam­tals 20 millj­ón­ir skatt­frjálst frá báðum for­eldr­um. „Þetta er lítil breyt­ing og kveikjan að þessu er sú að við vitum að í því ástandi sem hefur verið á hús­næð­is­mark­aði hafa for­eldrar verið að aðstoða börn sín við að kom­ast inn á mark­að­inn,“ sagði Guðrún. Hún bætti við að hún gerði sér grein fyrir að úrræðið myndi ekki nýt­ast tekju­lágum hópum, en að hennar mati væri þó um lágar upp­hæðir að ræða.  Ekki eru allir sam­mála því að 20 millj­ónir séu lág upp­hæð.

Landsmenn eyði of miklu

Í febr­úar, þegar verð­bólgan mæld­ist 10%, sagði Guðrún rétt að hafa í huga að tekju­stofnar rík­is­ins hafi rýrnað á meðan verið sé að kalla eftir auknu fé í ýmis verk­efni. Á sama tíma séu lands­menn að eyða of miklu og þar af leið­andi ekki að leggja sitt af mörkum til að ná niður verð­bólg­unni. „Við erum sömu­leiðis – eins sárt og það er að segja það – þá er fólk sömu­leiðis að eyða of miklu. Það sjáum við á því að við­skipta­jöfn­uður okkar er nei­kvæður. Þannig að við erum að flytja meira inn heldur en út og þegar svo­leiðis er þá tapp­ast það af í gengi krón­unnar eða í verð­bólgu. Þannig að þetta er sam­eig­in­legt verk­efni okkar allra,“ sagði hún í sam­tali við Vísir.

Lykl­arnirGuðrún tók við lyklunum að dóms­mála­ráðu­neyt­inu frá Jóni Gunn­ars­syni í dag.

Á síð­asta ári lögðu sex þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þeirra á meðal Guðrún, fram frum­varp til breyt­ingar á lögum um tekju­skatt þannig að heim­il­is­hjálp verði frá­drátt­ar­bær frá skatti. Hver skatt­greið­andi geti dregið frá tekju­skatts­stofni allt að 1,8 millj­ónir króna á ári. Málið sofn­aði í nefnd eftir fyrstu umræðu í vor enda kannski fáir sem verja slíkum upp­hæðum í heim­il­is­hjálp eða telja þetta vera for­gangs­mál.

Guðrún var síðan fyrsti flutn­ings­maður þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um einka­rekna heilsu­gæslu á Suð­ur­nesjum sem lögð var fram í fyrra en ell­efu þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins stóðu að henni. Í til­lög­unni var gert ráð fyrir að Alþingi álykti að heil­brigð­is­ráð­herra feli Sjúkra­trygg­ingum Íslands að bjóða út rekstur heilsu­gæslu á Suð­ur­nesjum. Tillagan náði aldrei til fyrri umræðu en hún var lögð fram mán­uði fyrir þing­lok sem bendir til að hún hafi vera meira til heima­brúks. 

Aldís systir fyrirmyndin

Stóra systir Guðrúnar er Aldís Þor­steins­dóttir sem í fyrra tók við sem sveit­ar­stjóri Hruna­manna­hrepps. Aldís hafði þá verið sveit­ar­stjóri Hvera­gerðis í sextán ár en hún er einnig fyrr­ver­andi for­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga. 

Þær systur hafa verið bæði aðsóps­miklar og vin­sælar á Suð­ur­land­inu, og er ekki hægt annað en að kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu að Aldís og Guðrún hafi verið Ármanni Jak­obs­syni inn­blástur þegar hann skrif­aði glæpa­sög­una Útlagamorðin sem kom út 2018, en per­són­urnar sem virð­ast inn­blásnar af þeim eru auka­per­sónur og skáld­skap­ur­inn í aðal­hlut­verki.

Í lýs­ingu á bók­inni á vef For­lags­ins segir: „Ungur maður, óþekktur, finnst lát­inn í húsa­garði í litlum bæ úti á landi. Nýstofnuð morð­rann­sókn­ar­deild lög­regl­unnar fer þegar á stað­inn en er vandi á höndum. Bærinn er sneisa­fullur af erlendum ferða­mönnum og skemmti­garður nýopn­aður, katta­morð­ingi gengur laus, tvær systur virð­ast ráða öllu sem máli skiptir – og ein úr lög­reglu­lið­inu á miður góðar minn­ingar úr þessum smábæ.“

Í umfjöllun Heim­ild­ar­innar um hvernig þing­mennska reyn­ist nátengd ætt­erni segir Guðrún um tengsl þeirra systra:  „Hún er stóra systir mín og hefur alltaf verið fyr­ir­mynd mín í líf­inu. Hún sagði mér að hlusta á ABBA og ég hlust­aði á ABBA. Ég átti aldrei von á því að ég yrði þing­maður, ég átti alltaf von á því að Aldís systir yrði það. Ég tók ekki ákvörðun um að stíga þetta skref nema eftir að hafa rætt það við hana því ég hefði aldrei farið fram ef hún hefði sjálf viljað gera það.“

Í umfjöllun Heim­ild­ar­innar um ætt­ar­tengsl þing­manna seg­ist hún aldrei hafa gengið með þann draum að verða stjórn­mála­maður og það spor að taka þátt í stjórn­málum muni ekki skil­greina hana. Spurð hvort hún hefði getað séð fyrir sér að taka þátt í póli­tík fyrir annan flokk en Sjálf­stæð­is­flokk­inn ef gildi þess flokks  hefðu sam­rýmst hennar, segir Guðrún:

„Faðir minn var virkur í stjórn­málum en móðir mín var það aldrei. Hún var hins vegar virk í félags­málum. Ég er alin upp í póli­tískri virkni. Pabbi var odd­viti í Hvera­gerði í mörg ár. Hann hefði alveg getað orðið þing­maður eða ráð­herra hefði hann valið þá leið, en hann valdi leið atvinnu­lífs­ins. Við systk­inin erum alin upp í ákveðnum frels­is­hug­sjónum sem hann barð­ist fyrir og sá far­vegur hefur legið með Sjálf­stæð­is­flokknum. Ef það væri ekki þá væri ég í öðrum flokki.“

„Ég hef sagt það í ræðupúlti Alþingis að ég muni standa vörð um íslenskt atvinnu­líf, ég hef alltaf gert það, það er inni í mínu DNA“
Guðrún Haf­steins­dóttir

Í umfjöll­un­inni segir hún einnig frá því hvernig það hafi mótað sig að hafa alist upp með Kjörís, faðir hennar tók þátt í að stofna það 1969 og hún fæð­ist ári síðar.

„Ég hef sagt það í ræðupúlti Alþingis að ég muni standa vörð um íslenskt atvinnu­líf, ég hef alltaf gert það, það er inni í mínu DNA. Ég ætla ekk­ert að fara að feika það, það vita allir hvaðan ég er að koma, ég yrði hjá­kát­leg ef ég reyndi að forð­ast upp­runann.“

Allt betra með majonesi

Þá var Guðrún einn við­mæl­enda Heim­il­ar­innar nýverið þar sem leynd­ar­hjúpnum var lyft af mötu­neyti Alþingis. Hún sagði allan mat þar vera góðan en það allra besta sem hún hafi fengið sé fylltur karfi. Annars sé hún mikil mat­kona. „Ég elska majo­nes, mér finnst allt betra með majo­nesi og gleðst þegar það er eitt­hvað í boði með majo­nesi. Ég hef gaman af því að borða,“ sagði hún og bætti við að það mætti gjarnan vera oftar ís. 

Diljá Mist Ein­ars­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, er hins vegar ekki jafn mikil mat­kona og Guðrún og sagði í umfjöll­un­inni: „Guðrún elskar síld. Hún vill helst borða síld í öll mál. Ég er svaka­lega mat­vönd en hún er það ekki.“

Í mötu­neyt­inu er síðan iðu­lega skál með harðsoðnum eggjum sem Diljá er afar hrifin af. En samt bara eggja­hvít­unni: „Ég skelli gjarnan í mig eggja­hvítu en leita síðan uppi Guðrúnu Haf­steins eða Sigmund Davíð [Gunn­laugs­son] til að borða rauð­una á móti mér því þeim finnst hún svo góð.“

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár