Þingmennska reynist nátengd ætterni

Af núver­andi alþing­is­mönnum er þriðj­ungur tengdur nánum fjöl­skyldu­böndum við fólk sem áður hefur setið á Alþingi. Fimm þing­menn eiga feður sem sátu á Alþingi og fjórir þing­menn eiga afa eða ömmu sem einnig voru alþing­is­menn. Þessu til við­bótar eru tólf þing­menn nátengdir fólki sem hefur verið virkt í sveit­ar­stjórnum eða hefur verið áhrifa­fólk í stjórn­mála­flokkum.

Þingmennska reynist nátengd ætterni

Þriðj­ungur sitj­andi alþing­is­manna eru ann­að­hvort náskyldir eða mægðir fyrr­ver­andi þing­mönnum eða vara­þing­mönnum. Alls eiga fimm núver­andi þing­menn feður sem sátu á þingi. Bræður tveggja þing­manna til hafa þá setið á þingi.

Afar þriggja þing­manna voru alþing­is­menn og í einu til­viki sátu báðir afar þing­manns á þingi, fyrir flokka á sitt­hvorum enda hins póli­tíska lit­rófs. Amma eins þing­manns sat þá á þingi. Langafar tveggja þing­manna voru einnig þing­menn og þrír þing­menn áttu afa- eða ömmu­systkin sem setið höfðu á þingi. Einn þing­maður á föð­ur­bróður sem sat á þingi og tveir þing­menn eiga náskylt frænd­fólk sem gegndi þing­störfum. Þá eru þrír þing­menn mægðir við fyrr­ver­andi þing­menn og í einu til­viki sat fyrr­ver­andi maki þing­manns einnig á Alþingi. Í ofaná­lag sett­ust for­eldrar þriggja þing­manna á þing sem vara­þing­menn.

Að minnsta kosti fimm þing­menn fyrir utan þá sem hér er fjallað um að ofan eru þá ýmist blóð­tengdir eða mægðir við fólk …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigga Svanborgar skrifaði
    vissulega er hægt ad rekja skyldleikann........enn vina tengslin og klíku politikin er það sem virðist vera eini aðgöngumiði að embættismannastörfum.....flest allir sem fara á þing fara þangað til að greiða leið annara vel valdra og sína eigin. Þarna eru fáir sem taka það alvarlega að setjast á þing til að stýra samfélagi fyrir allan almenning.......embættismenn eru líka ráðnir til að eyðileggja góða hluti sem gerast í samfélaginu.....
    0
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Öll saga okkar lands þarf að skrifast eins og fornsögurnar, fyrstu kaflarnir í hverri frásögn þurfa að byrja á ættfræði og tengslum persóna og leikenda,annars skilur maður ekki frásögnina til fulls.
    0
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Ef þeir sem fara í pólítík við hið háa Alþingi og jafnframt stuðla að því að afkomendur fari og í hundana (pólíTÍK), er þá nokkur von fyrir samfélagið, fer það ekki líka í hundana?
    Það bendir margt til þess að megnið af núverandi meini samfélagsins sé upprunið frá gömlu hunda samfélagi.
    Á ekki hið háa Alþingi að endurspegla samfélagið í núinu? En ekki þá sem hafa verið þar sem samfélags þegnar?
    Allavega virðist vera að margur sem þar starfar og ráð hafa, sé í raun ekki að starfa fyrir samfélagið.
    0
  • Ingibjörg Þorleifsdóttir skrifaði
    Hversu margir þingmenn eru lögfræðingar?
    0
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Í umfjöllun um Bjarna Ben yngri má bæta við eftirfarandi:
    Benedikt jóhannesson fyrrverandi fjármálaráðherra er sonur Guðrúnar systur Bjarna Ben eldri. Systir Benedikts er Guðrún Zoëga fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
    Þannig eru Halldór Blöndal, Björn Bjarnason, Benedikt Jóhannnesson og Benedikt, faðir Bjarna Ben yngri, systkinabörn.
    Eyða
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Erfðavöldin á Alþingi

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár