Bjarni: „Ættum að vera með enn nánari tengingu þingmanna við fólkið í landinu“

Nýr dóms­mála­ráð­herra seg­ist brenna fyrir íslenskt atvinnu­líf. Fjár­mála­ráð­herra segir ráð­herra­skiptin hafa póli­tíska þýð­ingu.

„Ég auð­vitað brenn fyrir íslenskt atvinnu­líf og ég mun reyna að nýta mína stöðu til þess að íslenskt atvinnu­líf geti blómstrað og búið hér verð­mæti til þess að við getum haldið hér uppi öfl­ugu vel­ferða­sam­fé­lagi og ég mun leggja mitt af mörkum til þess að svo verði áfram,“ sagði Guðrún Haf­steins­dóttir dóms­mála­ráð­herra fyrir utan Bessa­staði í dag en hún tekur við ráð­herra­emb­ætti Jóns Gunn­ars­sonar nú þegar kjör­tíma­bilið er hálfnað. 

Guðrún hefur áður gagn­rýnt það að ekki hafi verið full­trúi Suð­ur­kjör­dæmis Sjálf­stæð­is­flokks­ins í rík­is­stjórn og segir þessa breyt­ingu því hafa mikla þýð­ingu. 

„Það hafa verið mynd­aðar þrjár rík­is­stjórnir hér í röð með Sjálf­stæð­is­flokknum án þess að Suð­ur­kjör­dæmi hafi átt ráð­herra og þetta eykur vægi kjör­dæm­is­ins og hefur mikla þýð­ingu,“ segir Guðrún í sam­tali við Heim­ild­ina.

Aðspurður sagði fjár­mála­ráð­herra Bjarni Bene­dikts­son: „Þetta hefur nú tölu­verða póli­tíska þýð­ingu að fólk finni að kjós­endur hafi tengsl við ráða­menn og reyndar er ég þeirrar skoð­unar að kjör­dæmi séu of stór. Við ættum helst að skipta þeim upp í tvennt aftur og vera með enn nán­ari teng­ingu þing­manna og ráð­herra við fólkið í land­inu“. 

For­sæt­is­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dóttir, segir það „aldrei að vita“ hvort lands­menn eigi von á fleiri stórum breyt­ingum í rík­is­stjórn en bætti þó við: „Það er ekk­ert slíkt á teikni­borð­inu“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Grétar Reynisson skrifaði
    Þetta er tragikómískur grinskets hjá einum af gjaldþrotasmiðum hrunáranna.
    Hvernig í veröldinni stendur á því að þessi maður er gerður að fjármálaráðherra ?
    Var ferilskránni stungið undir stól með Panamaskjölum og bankabömmerum ?
    0
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    „Ættum að vera með enn nánari tengingu þingmanna við fólkið í landinu“
    Og enn frekar ef við mun sem samfélag standa við fullyrðingar um hvað við viljum gera fyrir fólk í vanda frá öðrum þjóðum, hvað þá okkar eigin.
    Í sama ANDA og fjármálaráðherra gerði fyrir ótrúlegustu aðila í Covid, þó ekki væri þörf!!!
    Ef samfélag okkar stendur undir Covid sukki fjármálaráðherra, þá mun samfélagið fara létt með að vera samfélag meðal þjóða í að styðja þurfandi, bæði okkar sem annara sem leita hingað.
    0
  • Axel Axelsson skrifaði
    þetta lið er ekki fólkið í landinu . . .
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Það hafa verið myndaðar þrjár ríkisstjórnir hér í röð með Sjálfstæðisflokknum án þess að Suðurkjördæmi hafi átt ráðherra"
    Það á að velja ráðherraefni eftir hæfileikum, ekki eftir kjördæmum. Bjarni reynir að komast hjá ábyrgð með að láta kjördæmin velja í ráðherrastólana. Kjósendur hafa engar forsendur til að meta frambjóðendur, hvort þeir séu hæfir til að gegna ráðherraembætti. Nú eru allir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins lögfræðingar enda henta prófkjörin vel fyrir slíka, sérstaklega þá sem eru enn virkir í Heimdalli.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár