Andstætt hagsmunum eigenda að auka innflutning á kjöti

SS hefur markað sér þá stefnu að flytja aðeins inn kjöt til að fylla upp í þarfir fyrir eigin fram­leiðslu. „Félagið er í eigu bænda og það eru ekki hagsmunir okkar að keyra niður verð á innlendu kjöti,“ segir Steinþór Skúlason framkvæmda­stjóri.

Fara varkára leið
Fara var­kára leið Steinþór segir að það séu ekki hags­munir eig­enda SS að flytja inn mikið magn af kjöti. Hann tali fyrir þá hags­muni. Mynd: Aðsend

„SS hefur markað þá stefnu að flytja bara inn kjöt til að bregðast við skorti en ekki til að vera í einhverri massívri útþenslu á erlendu kjöti, enda er það í andstöðu við hagsmuni félags­manna SS. Það sem við stöndum fyrir er fyrst og fremst að selja fram­leiðslu bændanna, þeirra um það bil 900 bænda sem byggja upp SS.“

Þetta segir Steinþór Skúlason, forstjóri Slátur­félags Suður­lands, SS. SS er með elstu og umfangsmestu matvæla­fyrirtækjum landsins, stofnað 1907. Félagið rekur afurða­deild þar sem undir fellur slátrun og vinnsla kjöts bænda sem leggja inn sauðfé, nautgripi, hross og svín. Kjöt­vinnsla fyrir­tækisins á Hvols­velli er sú stærsta á landinu öllu, fyrir­tækið er einn stærsti aðilinn í kjöt­iðnaði á landinu og selur vörur undir fjölda vöru­merkja. Þá rekur SS innflutnings­deild sem flytur inn allra handa matvörur, sælgæti og dýramat, svo nefnd séu dæmi.

Í eigu bænda, ríkissjóðs og neytenda

SS er í grunninn samvinnu­félag og segir á vefsíðu þess að það sé í eigu „búvöru­fram­leiðenda á félags­svæði sínu og almennra hluthafa“. Um 900 félags­menn skipa svokallaða A-deild félagsins. Hins vegar er eignar­haldið nokkuð flóknara en ætla mætti, og í raun má segja að það sé eilitlum ofsögum sagt að félagið sé í eigu búvöru­fram­leiðenda.

SS er skráð á hlutabréfa­markað og hefur verið frá árinu 2011. Fyrir­tækið er því líka í eigu aðila sem keypt hafa hlutabréf, eða eignast hlut með öðrum hætti, í B-deild félagsins. Lang­stærsti eigandinn er Birta lífeyris­sjóður sem á rúm 37 prósent, og þar á eftir kemur ríkis­sjóður Íslands, sem á rúm 22 prósent í gegnum eignar­hlut sinn í Lands­bankanum. Festa lífeyris­sjóður er þriðji stærsti eigandinn og á tæp sjö prósent. Það er því ekki ósann­gjarnt að segja að SS sé um sumt að mestu í eigu neytenda. Um tuttugu einstaklingar eiga beinan eignar­hlut í félaginu, rúmlega 30 prósent samanlagt og á sá sem stærstan hlutinn á aðeins 2,35 prósent.

Þeir sem halda á B-bréfum í fyrir­tækinu geta vissulega haft sínar skoðanir á rekstri SS og komið þeim á framfæri, enda hafa þeir málfrelsi og tillögu­rétt á aðal­fundum, en ekki atkvæða­rétt. Stefna fyrir­tækisins er hins vegar ákveðin af félags­mönnum, fyrst á svonefndum deilda­fundum sem haldnir eruð reglulega í aðdrag­anda aðalfunda, og svo á aðalfundi þar sem félags­menn kjósa stjórn og samþykkja samþykktir.

Minni umsvif síðustu misseri

SS er þá enn umsvifa­meira á matvæla­markaði en kemur fram hér að framan því félagið á Reykja­garð hf. að fullu, fyrirtæki sem elur, slátrar og vinnur kjúklinga, og selur meðal annars undir vöru­merkjunum Holta og Kjörfugl. Þá á félagið einnig Hollt og gott, sem selur grænmeti, ávexti, salöt og sósur. SS er meðlimur í SAFL, og það er Reykja­garður líka.

SS hefur hins vegar ekki verið eins umsvifa­mikið og mörg önnur fyrirtæki í landbúnaðar­geiranum þegar kemur að þátttöku í útboðum tollkvóta, þó félagið hafi verið þátt­takandi í slíkum útboðum. Í síðustu toll­kvóta­úthlutun vegna samnings Íslands við ESB fékk SS úthlutað 10 tonna kvóta til innflutnings á svína­kjöti. Á síðasta ári fékk félagið úthlutað 20 tonna kvóta, einnig til innflutnings á svína­kjöti. Ári áður var kvótinn tæp 3,5 tonn, þá fyrir skinku. Árið 2020 fékk SS úthlutað 114 tonna kvóta til að flytja inn svínakjöt og árið 2019 var kvótinn 85 tonn. Á árunum 2019 til 2020 fékk Reykja­garður úthlutað tæplega 140 tonna tollkvóta til innflutnings á alifugla­kjöti, en hefur ekki fengið úthlutað kvóta síðan.

„SS hefur markað þá stefnu að flytja bara inn kjöt til að bregð­ast við skorti“
Steinþór Skúlason
for­stjóri SS

Spurður hvers vegna dregið hafi úr ásókn SS í tollkvóta nú á síðustu árum, frá því sem var, segir Steinþór Skúlason, forstjóri fyrir­tækisins, að megin­ástæðan hafi verið hversu hátt gjaldið fyrir kvótana var orðið. „Gjaldið sem greiða þurfti fyrir kvótana var orðið það hátt að við skildum ekki alveg hvað var í gangi. Við vorum fyrst og fremst að flytja inn svína­síður og gjaldið var orðið hærra en það sem þurfti að greiða fyrir að flytja inn umfram tollkvóta, á fullum tollum samkvæmt tollskrá.“

Innflutningur SS er, eins og hjá flestum innflytjendum, meiri en það sem er úthlutað af toll­kvótum. „Okkur sýnist að við séum að flytja inn um það bil 4 prósent af því sem flutt er inn af svína­kjöti á ári. SS hefur markað þá stefnu að flytja bara inn kjöt til að bregðast við skorti en ekki til að vera í einhverri massívri útþenslu á erlendu kjöti, enda er það í andstöðu við hagsmuni félags­manna SS. Það sem við stöndum fyrir er fyrst og fremst að selja fram­leiðslu bændanna, þeirra um það bil 900 bænda sem byggja upp SS,“ segir Steinþór.

Hafa ekki reynt að beita eigendavaldi

Varðandi innflutning á alifugla­kjöti sem Reykja­garður, dóttur­fyrirtæki SS, flutti inn á árunum 2019 og 2020 segir Steinþór að verið hafi verið að bregðast við tíma­bundnum samdrætti í fram­leiðslu. Síðan þá hafi eigin fram­leiðsla gengið betur. Sama stefna sé í gildi hjá Reykja­garði og SS, að nýta eigi eigin innlenda fram­leiðslu fyrst og fremst.

Steinþór segir að deila megi endalaust um hvort að þeir sem framleiði og selji íslenskt kjöt eigi og megi bjóða í kvóta. Ekkert eitt sé rétt eða rangt í því. „Ég auðvitað tala fyrir þá hagsmuni sem við erum að gæta. Félagið er í eigu bænda og það eru ekki hagsmunir okkar að keyra niður verð á innlendu kjöti. Við förum því þessa varkáru leið.“

Spurður hvort að með þessu sé fyrir­tækið mögulega á móti ekki að gæta hagsmuna annarra eigenda sinna en bænda, þeirra sem eiga svonefnd B-bréf í félaginu, sem hafi í raun ekki beinna hagsmuna að gæta varðandi fram­leiðslu á landbúnaðar­afurðum hér á landi, svarar Steinþór: „Það verður að líta til þess að þegar þeir velja að kaupa þessi B-bréf þá liggur alveg fyrir hver stefna fyrir­tækisins er, þetta er engin kúvending á stefnu. Sem betur fer hefur reksturinn gengið nokkuð vel svo þessir eigendur hafa fengið ágæta ávöxtun af sínum hlutum.“

Spurður hvort að þessir eigendur fyrir­tækisins hafi þá með einhverjum hætti þrýst á um að SS flytji í meira magni inn erlent kjöt, blási út markaðinn eins og Steinþór kallaði það, svarar hann því neitandi. „Nei, enda held ég að það væri mjög langsótt að þeir myndu beita sér þannig. Þessir aðilar hafa ekki atkvæðis­rétt, þeir hafa málfrelsi og tillögu­rétt á aðal­fundum, en geta ekki knúið á um stefnu­breytingu með atkvæða­valdi.“

„En ef þú þarft á annað borð að vinna úr innnfluttu hrá­efni, er þá ein­hver grein­ar­munur á því hvort þú borgar ein­hverjum heild­sala fyrir að flytja það inn eða gerir það sjálfur?“
Steinþór Skúlason
for­stjóri SS

Sem fyrr segir í þessari umfjöllun var samþykkt á aðalfundi Kaup­félags Skagfirðinga 6. júní síðastliðinn að fyrir­tækið og dóttur­félög þess ættu ekki að flytja inn landbúnaðar­afurðir. Hins vegar er ljóst, eins og Ágúst Andrésson, stjórnar­formaður Esju, sagði við Heimildina, að kjöt­vinnsla þarf að kaupa innflutt kjöt og hefur og mun kaupa það af öðrum innflytjendum. Spurður hvort þetta sé eitthvað sem gæti hugnast SS að gera, eða hvort þetta sé í raun bara blekkingar­leikur, segir Steinþór að það sé ekki viðeigandi að hann tjái sig um ákvarðanir kaup­félagsins. „En ef þú þarft á annað borð að vinna úr innnfluttu hráefni, er þá einhver greinar­munur á því hvort þú borgar einhverjum heildsala fyrir að flytja það inn eða gerir það sjálfur? En þetta er alltaf spurning um í hvaða mæli er verið að flytja inn, ertu að gera það til að ryðja innlendum vörum til hliðar eða ertu að gera það til að mæta þörf sem ella verður uppfyllt af öðrum?“

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Sjá meira

GreiningTollvernd landbúnaðar

Vilja eiga kjötið og éta það

Fyrirtæki í land­búnaði eru hvað umfangsmestu innflytj­endur erlendra landbúnaðar­vara. Á sama tíma og umrædd fyrirtæki börðust gegn innflutningi á úkraínskum kjúklingi stóðu þau sum hver sjálf í þeim innflutningi. Þá er það almenn afstaða forsvars­manna fyrir­tækjanna að tolla­umhverfi og úthlutun tollkvóta fyrir landbúnaðar­vörur séu íslenskum land­búnaði mjög óhagstæð. Hins vegar taka þau þátt í útboðum á toll­kvótum og flytja jafnvel inn kjöt, osta og egg á fullum tollum og keppa þar með við sjálf sig.

25 mín. lestur

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    ,,Andstætt hagsmunum eigenda" eða andstætt hagsmunum almennings?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Tollvernd landbúnaðar

FréttirTollvernd landbúnaðar

„Það borgar sig ekki að framleiða meira hérna heima“

Fyrir­tækið Stjörnu­grís er með umfangsmestu innflytj­endum á kjötvöru til Íslands, þrátt fyrir vera sjálft stærsti fram­leiðandi svína­kjöts á landinu. Geir Gunnar Geirsson eigandi fyrir­tækisins segir betra fyrir neytendur að landbúnaðar­vörur séu undir tollvernd. Gjöld sem greidd séu af innfluttu kjöti renni þá í ríkissjóð en ekki í vasa stór­kaupmanna og innflytjenda.
GreiningTollvernd landbúnaðar

Vilja eiga kjötið og éta það

Fyrirtæki í land­búnaði eru hvað umfangsmestu innflytj­endur erlendra landbúnaðar­vara. Á sama tíma og umrædd fyrirtæki börðust gegn innflutningi á úkraínskum kjúklingi stóðu þau sum hver sjálf í þeim innflutningi. Þá er það almenn afstaða forsvars­manna fyrir­tækjanna að tolla­umhverfi og úthlutun tollkvóta fyrir landbúnaðar­vörur séu íslenskum land­búnaði mjög óhagstæð. Hins vegar taka þau þátt í útboðum á toll­kvótum og flytja jafnvel inn kjöt, osta og egg á fullum tollum og keppa þar með við sjálf sig.

25 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár