Andstætt hagsmunum eigenda að auka innflutning á kjöti

SS hefur markað sér þá stefnu að flytja aðeins inn kjöt til að fylla upp í þarfir fyrir eigin fram­leiðslu. „Félagið er í eigu bænda og það eru ekki hags­munir okkar að keyra niður verð á inn­lendu kjöti,“ segir Steinþór Skúlason fram­kvæmda­stjóri.

Fara varkára leið
Fara var­kára leið Steinþór segir að það séu ekki hags­munir eig­enda SS að flytja inn mikið magn af kjöti. Hann tali fyrir þá hags­muni. Mynd: Aðsend

„SS hefur markað þá stefnu að flytja bara inn kjöt til að bregð­ast við skorti en ekki til að vera í ein­hverri massí­vri útþenslu á erlendu kjöti, enda er það í and­stöðu við hags­muni félags­manna SS. Það sem við stöndum fyrir er fyrst og fremst að selja fram­leiðslu bænd­anna, þeirra um það bil 900 bænda sem byggja upp SS.“

Þetta segir Steinþór Skúlason, for­stjóri Slát­ur­fé­lags Suð­ur­lands, SS. SS er með elstu og umfangs­mestu mat­væla­fyr­ir­tækjum lands­ins, stofnað 1907. Félagið rekur afurða­deild þar sem undir fellur slátrun og vinnsla kjöts bænda sem leggja inn sauðfé, naut­gripi, hross og svín. Kjöt­vinnsla fyr­ir­tæk­is­ins á Hvols­velli er sú stærsta á land­inu öllu, fyr­ir­tækið er einn stærsti aðil­inn í kjöt­iðn­aði á land­inu og selur vörur undir fjölda vöru­merkja. Þá rekur SS inn­flutn­ings­deild sem flytur inn allra handa mat­vörur, sæl­gæti og dýra­mat, svo nefnd séu dæmi.

Í eigu bænda, ríkissjóðs og neytenda

SS er í grunn­inn sam­vinnu­fé­lag og segir á vef­síðu þess að það sé í eigu „búvöru­fram­leið­enda á félags­svæði sínu og almennra hlut­hafa“. Um 900 félags­menn skipa svo­kall­aða A-deild félags­ins. Hins vegar er eign­ar­haldið nokkuð flókn­ara en ætla mætti, og í raun má segja að það sé eilitlum ofsögum sagt að félagið sé í eigu búvöru­fram­leið­enda.

SS er skráð á hluta­bréfa­markað og hefur verið frá árinu 2011. Fyr­ir­tækið er því líka í eigu aðila sem keypt hafa hluta­bréf, eða eign­ast hlut með öðrum hætti, í B-deild félags­ins. Langstærsti eig­and­inn er Birta líf­eyr­is­sjóður sem á rúm 37 pró­sent, og þar á eftir kemur rík­is­sjóður Íslands, sem á rúm 22 pró­sent í gegnum eign­ar­hlut sinn í Lands­bank­anum. Festa líf­eyr­is­sjóður er þriðji stærsti eig­and­inn og á tæp sjö pró­sent. Það er því ekki ósann­gjarnt að segja að SS sé um sumt að mestu í eigu neyt­enda. Um tutt­ugu ein­stak­lingar eiga beinan eign­ar­hlut í félag­inu, rúm­lega 30 pró­sent sam­an­lagt og á sá sem stærstan hlut­inn á aðeins 2,35 pró­sent.

Þeir sem halda á B-bréfum í fyr­ir­tæk­inu geta vissu­lega haft sínar skoð­anir á rekstri SS og komið þeim á fram­færi, enda hafa þeir mál­frelsi og til­lögu­rétt á aðal­fundum, en ekki atkvæða­rétt. Stefna fyr­ir­tæk­is­ins er hins vegar ákveðin af félags­mönnum, fyrst á svo­nefndum deilda­fundum sem haldnir eruð reglu­lega í aðdrag­anda aðal­funda, og svo á aðal­fundi þar sem félags­menn kjósa stjórn og sam­þykkja sam­þykktir.

Minni umsvif síðustu misseri

SS er þá enn umsvifa­meira á mat­væla­mark­aði en kemur fram hér að framan því félagið á Reykja­garð hf. að fullu, fyr­ir­tæki sem elur, slátrar og vinnur kjúklinga, og selur meðal ann­ars undir vöru­merkj­unum Holta og Kjörfugl. Þá á félagið einnig Hollt og gott, sem selur græn­meti, ávexti, salöt og sósur. SS er með­limur í SAFL, og það er Reykja­garður líka.

SS hefur hins vegar ekki verið eins umsvifa­mikið og mörg önnur fyr­ir­tæki í land­bún­að­ar­geir­anum þegar kemur að þátt­töku í útboðum toll­kvóta, þó félagið hafi verið þátt­tak­andi í slíkum útboðum. Í síð­ustu toll­kvóta­út­hlutun vegna samn­ings Íslands við ESB fékk SS úthlutað 10 tonna kvóta til inn­flutn­ings á svína­kjöti. Á síð­asta ári fékk félagið úthlutað 20 tonna kvóta, einnig til inn­flutn­ings á svína­kjöti. Ári áður var kvót­inn tæp 3,5 tonn, þá fyrir skinku. Árið 2020 fékk SS úthlutað 114 tonna kvóta til að flytja inn svína­kjöt og árið 2019 var kvót­inn 85 tonn. Á árunum 2019 til 2020 fékk Reykja­garður úthlutað tæp­lega 140 tonna toll­kvóta til inn­flutn­ings á ali­fugla­kjöti, en hefur ekki fengið úthlutað kvóta síðan.

„SS hefur markað þá stefnu að flytja bara inn kjöt til að bregð­ast við skorti“
Steinþór Skúlason
for­stjóri SS

Spurður hvers vegna dregið hafi úr ásókn SS í toll­kvóta nú á síð­ustu árum, frá því sem var, segir Steinþór Skúlason, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, að meg­in­á­stæðan hafi verið hversu hátt gjaldið fyrir kvót­ana var orðið. „Gjaldið sem greiða þurfti fyrir kvót­ana var orðið það hátt að við skildum ekki alveg hvað var í gangi. Við vorum fyrst og fremst að flytja inn svína­síður og gjaldið var orðið hærra en það sem þurfti að greiða fyrir að flytja inn umfram toll­kvóta, á fullum tollum sam­kvæmt toll­skrá.“

Inn­flutn­ingur SS er, eins og hjá flestum inn­flytj­endum, meiri en það sem er úthlutað af toll­kvótum. „Okkur sýn­ist að við séum að flytja inn um það bil 4 pró­sent af því sem flutt er inn af svína­kjöti á ári. SS hefur markað þá stefnu að flytja bara inn kjöt til að bregð­ast við skorti en ekki til að vera í ein­hverri massí­vri útþenslu á erlendu kjöti, enda er það í and­stöðu við hags­muni félags­manna SS. Það sem við stöndum fyrir er fyrst og fremst að selja fram­leiðslu bænd­anna, þeirra um það bil 900 bænda sem byggja upp SS,“ segir Steinþór.

Hafa ekki reynt að beita eigendavaldi

Varðandi inn­flutn­ing á ali­fugla­kjöti sem Reykja­garður, dótt­ur­fyr­ir­tæki SS, flutti inn á árunum 2019 og 2020 segir Steinþór að verið hafi verið að bregð­ast við tíma­bundnum sam­drætti í fram­leiðslu. Síðan þá hafi eigin fram­leiðsla gengið betur. Sama stefna sé í gildi hjá Reykja­garði og SS, að nýta eigi eigin inn­lenda fram­leiðslu fyrst og fremst.

Steinþór segir að deila megi enda­laust um hvort að þeir sem fram­leiði og selji íslenskt kjöt eigi og megi bjóða í kvóta. Ekkert eitt sé rétt eða rangt í því. „Ég auð­vitað tala fyrir þá hags­muni sem við erum að gæta. Félagið er í eigu bænda og það eru ekki hags­munir okkar að keyra niður verð á inn­lendu kjöti. Við förum því þessa var­káru leið.“

Spurður hvort að með þessu sé fyr­ir­tækið mögu­lega á móti ekki að gæta hags­muna ann­arra eig­enda sinna en bænda, þeirra sem eiga svo­nefnd B-bréf í félag­inu, sem hafi í raun ekki beinna hags­muna að gæta varð­andi fram­leiðslu á land­bún­að­ar­af­urðum hér á landi, svarar Steinþór: „Það verður að líta til þess að þegar þeir velja að kaupa þessi B-bréf þá liggur alveg fyrir hver stefna fyr­ir­tæk­is­ins er, þetta er engin kúvend­ing á stefnu. Sem betur fer hefur rekst­ur­inn gengið nokkuð vel svo þessir eig­endur hafa fengið ágæta ávöxtun af sínum hlutum.“

Spurður hvort að þessir eig­endur fyr­ir­tæk­is­ins hafi þá með ein­hverjum hætti þrýst á um að SS flytji í meira magni inn erlent kjöt, blási út mark­að­inn eins og Steinþór kall­aði það, svarar hann því neit­andi. „Nei, enda held ég að það væri mjög lang­sótt að þeir myndu beita sér þannig. Þessir aðilar hafa ekki atkvæð­is­rétt, þeir hafa mál­frelsi og til­lögu­rétt á aðal­fundum, en geta ekki knúið á um stefnu­breyt­ingu með atkvæða­valdi.“

„En ef þú þarft á annað borð að vinna úr innnfluttu hrá­efni, er þá ein­hver grein­ar­munur á því hvort þú borgar ein­hverjum heild­sala fyrir að flytja það inn eða gerir það sjálfur?“
Steinþór Skúlason
for­stjóri SS

Sem fyrr segir í þess­ari umfjöllun var sam­þykkt á aðal­fundi Kaup­fé­lags Skag­firð­inga 6. júní síð­ast­lið­inn að fyr­ir­tækið og dótt­ur­fé­lög þess ættu ekki að flytja inn land­bún­að­ar­af­urðir. Hins vegar er ljóst, eins og Ágúst Andr­és­son, stjórn­ar­for­maður Esju, sagði við Heim­ild­ina, að kjöt­vinnsla þarf að kaupa inn­flutt kjöt og hefur og mun kaupa það af öðrum inn­flytj­endum. Spurður hvort þetta sé eitt­hvað sem gæti hugn­ast SS að gera, eða hvort þetta sé í raun bara blekk­ing­ar­leikur, segir Steinþór að það sé ekki við­eig­andi að hann tjái sig um ákvarð­anir kaup­fé­lags­ins. „En ef þú þarft á annað borð að vinna úr innnfluttu hrá­efni, er þá ein­hver grein­ar­munur á því hvort þú borgar ein­hverjum heild­sala fyrir að flytja það inn eða gerir það sjálfur? En þetta er alltaf spurn­ing um í hvaða mæli er verið að flytja inn, ertu að gera það til að ryðja inn­lendum vörum til hliðar eða ertu að gera það til að mæta þörf sem ella verður upp­fyllt af öðrum?“

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Sjá meira

GreiningTollvernd landbúnaðar

Vilja eiga kjötið og éta það

Fyr­ir­tæki í land­bún­aði eru hvað umfangs­mestu inn­flytj­endur erlendra land­bún­að­ar­vara. Á sama tíma og umrædd fyr­ir­tæki börð­ust gegn inn­flutn­ingi á úkra­ínskum kjúklingi stóðu þau sum hver sjálf í þeim inn­flutn­ingi. Þá er það almenn afstaða for­svars­manna fyr­ir­tækj­anna að tollaum­hverfi og úthlutun toll­kvóta fyrir land­bún­að­ar­vörur séu íslenskum land­bún­aði mjög óhag­stæð. Hins vegar taka þau þátt í útboðum á toll­kvótum og flytja jafn­vel inn kjöt, osta og egg á fullum tollum og keppa þar með við sjálf sig.

25 mín. lestur

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    ,,Andstætt hagsmunum eigenda" eða andstætt hagsmunum almennings?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Tollvernd landbúnaðar

FréttirTollvernd landbúnaðar

„Það borgar sig ekki að fram­leiða meira hérna heima“

Fyr­ir­tækið Stjörnu­grís er með umfangs­mestu inn­flytj­endum á kjöt­vöru til Íslands, þrátt fyrir vera sjálft stærsti fram­leið­andi svína­kjöts á land­inu. Geir Gunnar Geirsson eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins segir betra fyrir neyt­endur að land­bún­að­ar­vörur séu undir toll­vernd. Gjöld sem greidd séu af inn­fluttu kjöti renni þá í rík­is­sjóð en ekki í vasa stór­kaup­manna og inn­flytj­enda.
GreiningTollvernd landbúnaðar

Vilja eiga kjötið og éta það

Fyr­ir­tæki í land­bún­aði eru hvað umfangs­mestu inn­flytj­endur erlendra land­bún­að­ar­vara. Á sama tíma og umrædd fyr­ir­tæki börð­ust gegn inn­flutn­ingi á úkra­ínskum kjúklingi stóðu þau sum hver sjálf í þeim inn­flutn­ingi. Þá er það almenn afstaða for­svars­manna fyr­ir­tækj­anna að tollaum­hverfi og úthlutun toll­kvóta fyrir land­bún­að­ar­vörur séu íslenskum land­bún­aði mjög óhag­stæð. Hins vegar taka þau þátt í útboðum á toll­kvótum og flytja jafn­vel inn kjöt, osta og egg á fullum tollum og keppa þar með við sjálf sig.

25 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár