„Það er allt í rugli“

Formaður Mið­flokks­ins leggur til að ráð­herrar haldi næt­ur­fundi og panti sér pizzu eða svið á kostnað skatt­greið­enda til að greiða úr óvissu­á­stand­inu sem ríkir í efna­hags­málum. For­sæt­is­ráð­herra segir rík­is­stjórn­ina vera að gera það sem þurfi að gera.

Óvissuástand
Óvissu­á­stand „Það er allt í rugli, það vissum við,“ sagði Sig­mundur Davíð í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag. Sagði hann ástandið í efna­hags­málum og á vinnu­mark­aði algjör­lega óvið­un­andi. Mynd: Bára Huld Beck

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, segir Alþingi ekki getað farið inn í sum­arið án þess að bregð­ast við því neyð­ar­á­standi sem ríkir í efna­hags­málum.  

„Það er allt í rugli, það vissum við,“ sagði Sig­mundur Davíð í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag. Sagði hann ástandið í efna­hags­málum og á vinnu­mark­aði algjör­lega óvið­un­andi. „Er ekki rétt að nota þann skamma tíma sem eftir er af þessu þingi til að ein­beita sér að þeim málum, að efna­hags­á­stand­inu, að vinnu­mark­aðnum, að verð­bólg­unni, að stöð­unni á hús­næð­is­mark­aði. Þarf ekki að nota allan þennan tíma til ein­beita sér að því að koma hér á ein­hverjum lausnum því við getum ekki farið inn í sum­arið til að bregð­ast við þessu ástandi?“

Fyr­ir­spurn­inni beindi hann að Katrínu Jak­obs­dóttur, for­sæt­is­ráð­herra og for­manni Vinstri grænna. „Ég myndi telja aðkallandi að þingið ein­beitti sér að þessu og ráð­herr­arnir líka þó að þeir þurfi þá kannski að halda ein­hverja næt­ur­fundi sem er fullt til­efni til. Þeir geta pantað pizzur eða svið eða hvað annað á kostnað skatt­greið­enda og eng­inn mun kvarta yfir því, ef að lausn­irnar koma. En lausn­irnar þurfa að koma núna. Við getum ekki farið inn í sum­arið í þessu full­komna óvissu­á­standi. Og við getum ekki látið þessa fáu daga sem eftir eru af þing­inu líða án þess að brugð­ist sé við þessu neyð­ar­á­standi á öllum þessum sviðum,“ sagði Sig­mundur. „Nú þurfum við alvöru hug­myndir og aðgerðir sem við getum afgreitt.“

„Við erum að gera það sem þarf“

Katrín sagði Sigmund Davíð líta fram­hjá því sem hefur verið gert, verið sé að gera eða standi til að gera. „Við erum að vinna sam­kvæmt fjár­lögum árs­ins í ár sem sam­kvæmt Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum styðja við verð­bólgu­mark­mið, styðja við aðgerðir Seðla­bank­ans. Við erum að vinna að því hvernig við getum aukið enn aðhald á kom­andi árum út frá ábend­ingum sama aðila þannig að við erum að gera það sem þarf. “

For­sæt­is­ráð­herra sagði það óþarfi að panta pitsur á kostnað skatt­greið­enda.  „Þess þarf ekki. Við erum ein­fald­lega að gera það sem þarf til að styðja við það verk­efni Seðla­bank­ans sem er að ná niður verð­bólg­unni.“ Þá sagð­ist hún ekki ætla að fara „í þann leik sem hefur verið ansi mikið leik­inn að und­an­förnu að benda á ein­staka söku­dólga vegna ástands­ins“. 

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra.

„Stað­reyndin er sú að hér á Íslandi eru gríð­ar­lega mikil efna­hags­um­svif. Hér er lítið atvinnu­leysi. Hér er mik­ill hag­vöxtur, spáð meiri hag­vexti en áður var spáð og við sjáum verð­bólg­una birt­ast þannig. Það er ekki sama staða hér og víða í nágranna­löndum okkar þar sem við sjáum vax­andi atvinnu­leysi, sam­drátt og háa verð­bólgu,“ sagði Katrín. Staðan til að takast á við efna­hags­á­standið er í raun og veru góð að mati for­sæt­is­ráð­herra, sem benti á nýj­ustu verð­bólgu­mæl­ingu því til stuðn­ings. Verð­bólga mælist nú 9,5 pró­sent en var komin yfir tíu pró­sent í febr­úar. „Án þess að hrósa ein­hverju happi, ég held að það sé ekki tíma­bært en ég hef trú á því að verð­bólgan fari niður og þetta sé skýrt merki um það,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Eins og forsætisráðherra annars lands

Sig­mundur Davíð sagði Katrínu tala eins og hún væri for­sæt­is­ráð­herra ein­hvers allt ann­ars lands. „Er engin von til þess að þessi rík­is­stjórn átti sig á ástand­inu og taki þátt í því að ná tökum á því? Ég er ekki einu sinni að biðja hana um að leiða það, bara að taka þátt og hætta að vera í ein­hverjum ímynd­uðum veru­leika,“ sagði Sig­mundur Davíð. 

„Ég er for­sæt­is­ráð­herra í landi þar sem hefur verið byggt upp; þar sem hefur verið byggt upp í heil­brigð­is­kerf­inu og ráð­ist í fjár­fest­ingar í því sem ekki var ráð­ist í í tíð fyrri rík­is­stjórna,“ svar­aði Katrín. 

„Hins vegar höfum við sagt að mögu­lega þurfi að beita meira aðhaldi á kom­andi árum til þess að ráða bug á verð­bólg­unni. Að halda því fram að ég geri lítið úr þeim vanda er auð­vitað alrangt. Þetta er risa­stórt verk­efni sem kallar auð­vitað á sam­stillt átak allra, ekki bara rík­is­stjórn­ar­innar þótt vissu­lega hafi hún hlut­verki að gegna,“ bætti for­sæt­is­ráð­herra við. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JÍ
    Jón Ívarsson skrifaði
    Ég held að það þurfi eitthvað að breyta framsetningunni á verðbólgumælingum gagnvart almenningi. Nú er sagt að verðbólgan sé 9,47% og er þá átt við síðustu 12 mánuði. Ef vísitalan væri óbreytt í júni yrði sagt að verðbólgan væri 7,95% en verðtryggð lána samt verða óbreytt þann mánuðinn. Áttar fólk sig á því? Hækkun vísitölunnar milli apríl og maí er 0,39% og það mælir verðbólguhraðann sem 4,8% á ársgrundvelli. Þá er verið að tala um stöðuna í dag en ekki fyrir síðastliðið ár. Og þó svo að vísitalan breyttist ekkert á næstu mánuðum væri alltaf verið að segja frá einhverri verðbólgu sem ekki er að gerast í nútímanum. Og þó svo að vísitalan héldist óbreytt yrði það lítil bót fyrir láglaunafólkið vegna þess að verðlag er of hátt fyrir það í dag og væntanlega fáir sem reikna með einhverjum verðlækkunum að ráði. Ekkert annað en auknar tekjur getur bjargað þessu fólki.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár