Þessi grein birtist fyrir meira en 2 árum.

Verðbólga mælist nú 9,5 prósent á ársgrundvelli

Vísi­tala neyslu­verðs hækk­ar um 0,39 pró­sent á milli mán­aða, en mæld verð­bólga á árs­grund­velli lækk­ar úr 9,9 pró­sent­um frá því í apríl nið­ur í 9,5 pró­sent.

Verðbólga mælist nú 9,5 prósent á ársgrundvelli
Peningar Vísitala neysluverðs hækkar vissulega á milli mánaða, en hækkunin á milli apríl og maí er minni en hækkunin á mili maí og júní í fyrra, sem þýðir að 12 mánaða verðbólga mælist lægri nú Mynd: Shutterstock

Mæld tólf mánaða verðbólga lækkar á milli mánaða, úr 9,9 prósentum niður í 9,5 prósent, samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar um vísitölu neysluverðs í maí.

Vísitalan er þó að hækka, eða um 0,39 prósent frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkar um 0,14 prósent frá því í apríl.

Í tilkynningu frá Hagstofunni kemur fram að verð á mat- og drykkjarvörum hafi hækkað um 0,8 prósent á milli mánaða og að kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði hafi hækkað um 1,3 prósent. Hefur húsnæðisliðurinn mest áhrif á hækkun vísitölunnar á milli mánaða.

Á móti þessum hækkunum vegur hins vegar lækkun flugfargjalda, en þau lækkuðu um 7 prósent frá mælingu Hagstofunnar í apríl.

Á undanförnum tólf mánuðum mælist verðbólga, ef ekki er horft til húsnæðisliðarins, 8,4 prósent.

Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnti á miðvikudag um stýrivaxtahækkun, þá þrettándu í röð, til að reyna að koma böndum á verðbólgu. Vextir bankans hækkuðu um 1,25 prósentustig og eru nú 8,75 prósent.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Hann var búinn að öskra á hjálp
2
Viðtal

Hann var bú­inn að öskra á hjálp

Hjalti Snær Árna­son hvarf laug­ar­dag­inn 22. mars. For­eldr­ar hans lásu fyrst um það í frétt­um að hans væri leit­að í sjón­um, fyr­ir það héldu þau að hann væri bara í göngu­túr. En hann hafði lið­ið sál­ar­kval­ir, það vissu þau. Móð­ir Hjalta, Gerð­ur Ósk Hjalta­dótt­ir, lýs­ir því hvernig ein­hverf­ur son­ur henn­ar gekk á veggi allt sitt líf, og hvernig hann veikt­ist svo mik­ið and­lega að þau voru byrj­uð að syrgja hann löngu áð­ur en hann var dá­inn.

Mest lesið í mánuðinum

Hann var búinn að öskra á hjálp
4
Viðtal

Hann var bú­inn að öskra á hjálp

Hjalti Snær Árna­son hvarf laug­ar­dag­inn 22. mars. For­eldr­ar hans lásu fyrst um það í frétt­um að hans væri leit­að í sjón­um, fyr­ir það héldu þau að hann væri bara í göngu­túr. En hann hafði lið­ið sál­ar­kval­ir, það vissu þau. Móð­ir Hjalta, Gerð­ur Ósk Hjalta­dótt­ir, lýs­ir því hvernig ein­hverf­ur son­ur henn­ar gekk á veggi allt sitt líf, og hvernig hann veikt­ist svo mik­ið and­lega að þau voru byrj­uð að syrgja hann löngu áð­ur en hann var dá­inn.
Forsprakki útifundar játaði fjárdrátt á leikskólanum Klettaborg
5
Fréttir

Forsprakki úti­fund­ar ját­aði fjár­drátt á leik­skól­an­um Kletta­borg

Sig­fús Að­al­steins­son, stofn­andi hóps­ins Ís­land - þvert á flokka, sem stend­ur fyr­ir úti­fund­um um hæl­is­leit­end­ur, ját­aði á sig fjár­drátt frá leik­skól­an­um Kletta­borg þeg­ar hann var for­stöðu­mað­ur þar. Hann vill ekki dæma hvort brot af því tagi séu nógu al­var­leg til að inn­flytj­end­ur sem gerð­ust sek­ir um þau ætti að senda úr landi.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár