Miklar umræður sköpuðust um bleika skattinn árið 2019 en þá samþykkti Alþingi frumvarp um að skattur á tíðavörum yrði lækkaður úr 24 prósentum í 11 prósent. Ári síðar hafði skattalækkunin ekki skilað tilsettum árangri, en samkvæmt verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ stóðu Bónus og Krónan sig verst í að lækka verð á vörum.
Nú, fjórum árum eftir samþykki frumvarpsins, má enn finna dæmi um hinn bleika skatt hérlendis, þar sem bleikar og fjólubláar vörur, markaðssettar fyrir konur, eru dýrari en bláar og svartar vörur, hugsaðar fyrir karla. Heimildin spurði fólk á vappi um Kringluna um afstöðu þess til verðs á tíðavörum.
Er samt allt of dýrt
Í Hagkaup kostar 14 stykkja pakki af Libresse-dömubindum 509 krónur. Pakki af 16 túrtöppum frá OB kostar 299 krónur. Vinkonurnar Unnur Aníta Pálsdóttir og Salka Dögg Arnarsdóttir segja verðið of hátt.
„Ég myndi segja 600 og eitthvað,“ segir Unnur Aníta og Salka Dögg tekur undir: „Af því að ég nota bikar þá hef ég ekki keypt dömubindi í svo rosalega langan tíma. Já, örugglega eitthvað 600 krónur, kannski 700 í mesta lagi, myndi ég vilja segja.“
Hann kostar 509 krónur. Hvað finnst ykkur um það verð?
„Það er samt einhvern veginn rosadýrt. Ég hef alltaf verið á þeirri meiningu að ... ekki endilega að þetta þyrfti að vera frítt, ég er ekki að segja það, en að minnsta kosti miklu ódýrara. Af því að 500 krónur skipta alveg máli fyrir láglaunafólkið,“ segir Salka Dögg.
„Ég myndi segja kannski svona 200 til 300 krónur í mesta lagi, sem þetta ætti að kosta,“ segir Unnur Aníta.
Fyrir fólk sem notar tíðavörur getur þetta verið töluverður kostnaður. Finnið þið fyrir því að þurfa að borga fyrir svona hreinlætisvörur?
„Það er ástæðan fyrir því að ég fór í bikarinn. Líka því að þetta er einnota og plast, sem ég var ekki alveg að fíla. Bikarinn, eins lengi og þú ert ekki að týna honum og ferð vel með hann, þá kaupirðu hann einu sinni og getur átt út allt lífið, sem er geðveikt. Svo líka er maður búinn að lesa um eiturlost. En af því að þetta kostaði svona mikið í hverjum einasta mánuði þá fór ég að skoða annað sem var í boði,“ segir Salka Dögg.
„Já, ég er búin að vera að hugsa hvort ég ætti að nota bikarinn af því að það kemur fyrir að þetta sé kannski aðeins of dýrt fyrir mig persónulega. Þannig að ég er búin að vera að pæla í því,“ segir Unnur Aníta.
Manstu hvað þú borgaðir fyrir bikarinn, Salka Dögg?
„Þetta var úti í Skotlandi fyrir 6 til 7 árum síðan. Ég held að hann hafi kostað á milli 30 til 35 pund. Ég sparaði fyrir honum í heilan mánuð. En náttúrlega eftir það þá þarf bara að sjóða hann og fara vel með hann. Þá þarftu ekki að kaupa dömubindi, sem er mjög næs.“
Einn pakki á mann
Á síðasta ári bauð Krónan upp á pakka af dömubindum frá framleiðendunum First Price og Grøn Balance á eina krónu á Alþjóðlega kvennadeginum, en hver viðskiptavinur mátti aðeins kaupa einn pakka. Slík tilboð auðvelda þeim sem nota tíðavörur og aðrar „bleikar vörur“ lífið til skemmri tíma, en sá kostnaður sem fylgir því að vera kona er almennt töluvert hærri en kostnaður við að vera karl.
Þar að auki fá konur enn almennt lægri tekjur en karlar í flestum löndum heims og kaupa oftar tíðavörur, sem og aðrar nauðsynjavörur, fyrir fjölskyldumeðlimi, enda standa þær þriðju vaktina oftar en karlmenn. Auk þess fylgja tíð kaup á snyrtivörum, fatnaði og skartgripum samfélagslegum viðmiðum um útlit kvenna.
Hefur hjálpað til við kaup á tíðavörum
Ég er hérna með pakka af dömubindum, hvað heldur þú að þessi pakki kosti?
„400 kall,“ sagði Benedikt Hauksson.
Hann kostar 509 krónur, finnst þér það sanngjarnt verð?
„Mér finnst það frekar mikið.“
Er einhver á þínu heimili sem þarf að kaupa svona?
„Nei, nei.“
En ef það væri einhver, heldurðu að þú myndir hjálpa til við kostnaðinn?
„Já, ég hef nú hjálpað til hingað til.“
Heldurðu að tíðavörur hafi hækkað í verði undanfarið?
„Ég hef á tilfinningunni að þær hafi það ekki en ég hef ekki hugmynd um það.“
Mætti vera ódýrara
Erlend Erlendsson er á leið í lyftuna í Kringlunni, þegar hann er spurður út í verðhugmyndir á tíðavörum.
Ég er hérna með einn pakka af dömubindum, hvað heldurðu að hann kosti?
„Ég gæti trúað að hann kostaði svona 2.600 krónur, eitthvað svoleiðis.“
Af hverju heldurðu að hann kosti 2.600 krónur?
„Sé dýr? Þetta er þannig vara. Örugglega ein af þeim vörum þar sem eitt bindi er selt á sama verði og pakkinn í fyrra.“
Það er mjög góður punktur, en hann kostar reyndar bara 509 krónur.
„Nú.“
Og svo er hérna pakki af túrtöppum á 299 krónur. Er einhver kona í þínu lífi sem notar svona?
„Nei. Ég hef ekki spurt dótturina hvort hún noti svona.“
Myndir þú aðstoða hana ef hún notaði tíðavörur?
„Já, að kaupa þetta? Ég hef gert það í gegnum árin. Ef ég er beðinn um það þá geri ég það. Þá fæ ég mynd af því hvað það er sem ég þarf að kaupa.“
Ferðu svo og kaupir það?
„Já, mér finnst það bara sjálfsagt.“
Finnst þér að tíðavörur ættu að vera ódýrari yfir höfuð eða finnst þér þetta sanngjarnt verð?
„Mér finnst að þær mættu vera aðeins ódýrari. Mér finnst að það mætti aðeins lækka verðið. Þeir sem eru að kaupa þetta erlendis sjá það hvað verðmunurinn er mikill, eftir því sem stelpurnar segja mér.“
Dýrara fyrir konur að raka sig
Bleiki skatturinn birtist víða. Á vefsíðu íslenskrar verslunar kostar rakvélin Gilette Venus Comfortglide Breeze alls 3.099 krónur og er markaðssett fyrir konur. Umbúðirnar eru ljósfjólubláar með tveimur blómum. Við hliðina á henni er rakvél á 2.099 krónur. Sú rakvél er í dökkbláum pakkningum og á henni stendur orðið kraftur, enda er hún knúin áfram af batteríi, jafnvel þótt hún sé þúsund krónum ódýrari.
Sömu sögu er að segja fyrir þá sem ætla að kaupa sér svitalyktareyði. Þar kostar 50 millilítra pakkning af Deep Deo Roll-on Men sem er „nútímaleg, djörf karlmannleg blanda“ alls 419 krónur. Svitalyktareyðirinn Fresh Flower Deo Rollo, sem fæst líka í 50 millilítra pakkningu er á 439 krónur og „viðheldur tilfinningunni um léttan blóma ferskleika allan daginn“.
Ætti að kosta hundrað kall
Ég er hérna með pakka af dömubindum, hvað mynduð þið giska á að hann kostaði?
Erling Freyr Kristjánsson giskar á „400 til 500 kall“, en Ásta Fanney Gunnarsdóttir segir: „Hann kostar svona 800 krónur.“
Þessi hérna pakki kostar 509 krónur, finnst ykkur það sanngjarnt verð?
„Nei, þetta á að kosta svona 100 til 200 kall,“ segir Erling Freyr.
Af hverju ætti þetta að vera ódýrara?
„Þetta er nauðsynjavara sem allir ættu að eiga greiðan aðgang að.“
Og hérna er ég með pakka af túrtöppum, hvað haldið þið að hann kosti?
„Örugglega eitthvað aðeins meira. Í kringum þúsund kall,“ segir Erling Freyr.
„Ja, hann er örugglega svona 700 eða eitthvað,“ segir Ásta Fanney.
Hann kostar 299 krónur.
„Ó, ég hefði haldið að hann væri dýrari. Það er svo sem ekkert brjálað verð, en það mætti vera mjög lágt verð fyrir þetta. Bæði í kringum 100 kallinn,“ segir Erling Freyr.
Þannig að fólk ætti bara að hafa greiðan aðgang?
„Já, 100 prósent,“ segir Erling Freyr. „Já, allan daginn,“ segir Ásta Fanney.
Ætti að vera niðurgreitt af ríkinu
Sólrún Aradóttir og Jón Páll Jakobsson eru búsett erlendis. Jón giskar á að pakki af dömubindum kosti 400 krónur en Sólrún giskar á 356 krónur.
509 krónur, er þetta sanngjarnt verð?
„Nei, það er aðeins of mikið,“ segir Sólrún. Sér þyki pakki af dömubindum of dýr. Hún segir að kostnaður ætti að vera niðurgreiddur af ríkinu.
Athugasemdir