„Heimsmet í afturhaldssemi og popúlisma“

Hanna Katrín Frið­riks­son er ósam­mála Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni og mót­mælir mál­flutn­ingi hans varð­andi við­brögð stjórn­valda við fíkni­efnafar­aldri og vanda­málum sem honum fylgir. Hún segir að var­ast verði að leysa flókin vanda­mál með töfra­lausnum. „Við vitum öll að lausnin felst ekki í því að fylla fang­elsin af ung­mennum sem hafa villst af leið eða veiku fólki sem hefur sjúk­dóms síns vegna horfið á vit ískaldra und­ir­heima.“

„Heimsmet í afturhaldssemi og popúlisma“
Aft­ur­halds­semi og popúl­ismi Hanna Katrín segir að það að ætla að takast á við félags­leg vanda­mál með því að þyngja refs­ingar hljóti að vera ein­hvers konar heims­met í aft­ur­halds­semi og popúl­isma. Mynd: Bára Huld Beck

Þing­flokks­for­maður Við­reisnar, Hanna Katrín Frið­riks­son, tekur ekki undir mál­flutn­ing for­manns Mið­flokks­ins, Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, en hann sagði á þingi í gær að stjórn­völd stæðu sig ekki þeg­ar kem­ur að því að verj­ast skipu­lagðri glæp­a­starf­semi og að frétt­ir af auknu of­beldi með­al ung­menna og vopna­burði köll­uðu á við­brögð stjórn­valda og sam­fé­lags­ins. 

„Hluti af þeim við­brögð­um hlýt­ur að vera að inn­leiða hér aft­ur ákveð­inn aga og skiln­ing á því hvað má og hvað ekki og gefa skóla­stjórn­end­um og lög­reglu tæki­færi til að senda skýr skila­boð og fylgja þeim eft­ir,“ sagði Sig­mundur Davíð. 

Hanna Katrín greip bolt­ann undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag og rifj­aði upp orð for­manns Mið­flokks­ins að Íslend­ingar þyrftu að inn­leiða festu og aga til að bregð­ast við öldu ofbeldis og fíkni­efnafar­aldri hér á landi. Minntist hún þess að Sig­mundur Davíð hefði vísað til borg­ar­stjóra­tíðar Rudy Giuliani í New York á tíunda ára­tugnum. 

Aðferðir borgarstjórans komu helst niður á fátækum og minnihlutahópum

Heim­ildin fjall­aði um ræðu Sig­mundar Davíðs í gær en þar sagði hann að í New York-borg hefði á sínum tíma verið ráð­ist í aðgerðir sem fylgdu svo­kall­aðri rúðu­brots-kenn­ingu til að takast á við mikla glæpa­öldu þar. „Hún fólst í því að taka hart á minni afbrotum, rúðu­brotum og veggjakroti – og gera strax við þar sem skemmdir hefðu verið unnar og fylgja því eftir. Hér er veggjakrot að mati stjórn­valda lík­lega bara leyst og skortur á vilja til að fylgja eftir skila­boðum um hvað telst ásætt­an­legt og hvað ekki,“ sagði hann.

Hanna Katrín benti á að Giuliani hefði vissu­lega stært sig af því að hafa tekið óvenju­lega hart, óeðli­lega hart, á minni­háttar afbrotum, svo sem rúðu­brotum, veggjakroti og maríjúan­a­reyk­ingum með þeim afleið­ingum að glæpa­tíðni hefði hrapað í borg­inni en það sem hefði síðan komið á dag­inn var „að aðferðir borg­ar­stjór­ans komu helst niður á fátækum og minni­hluta­hópum sem máttu dúsa í fang­elsum fyrir til­tölu­lega minni­háttar afbrot með skelfi­legum félags­legum afleið­ingum“.

„Hin jákvæða breyt­ing sem átti sér stað í New York var for­vera hans að þakka sem fjölg­aði lög­reglu­mönnum veru­lega, bætti mennt­un­ar­stigið og breytti aðferðum; lagði áherslu á að lög­reglan kynnt­ist fólk­inu í hverf­unum og hjálp­aði til við að leysa vanda­mál frekar en að koma eftir á og refsa. Þetta var líka þekkt í Reykja­vík og virk­aði vel. Auðvitað þurfum við að bregð­ast við auknum vopna­burði og auk­inni notkun ópíóða, til dæmis hér á landi, en að ætla að takast á við félags­leg vanda­mál með því að þyngja refs­ingar, það hlýtur bara að vera ein­hvers konar heims­met í aft­ur­halds­semi og popúl­isma,“ sagði Hanna Katrín. 

Hún end­aði ræðu sína á því að segja að í öllu falli þyrfti að var­ast snáka­ol­í­una og sölu­menn hennar. „Varast að þykj­ast ætla að leysa flókin vanda­mál með töfra­lausnum. Við vitum öll að lausnin felst ekki í því að fylla fang­elsin af ung­mennum sem hafa villst af leið eða veiku fólki sem hefur sjúk­dóms síns vegna horfið á vit ískaldra und­ir­heima. Við þurfum ein­fald­lega að gera svo miklu miklu betur en það.“

„Heyr, hey,“ sögðu þing­menn við lok ræðu hennar.  

Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Loddara lorturinn sigmundur davíð guðLAUGsson er stóhættulegt viðrini íslensku þjóðinni.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár