Allt að 900 starfsmenn skóla og frístundaheimila gætu lagt niður störf

Allt að 900 starfs­menn skóla og frí­stunda­heim­ila í fjórum sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu gætu lagt niður störf, í fyrstu lotu verk­falla sem aðild­ar­fé­lög BSRB hefja að greiða atkvæði um í dag. Verk­falls­að­gerðir BSRB-félaga eru fyr­ir­hug­aðar í fleiri sveit­ar­fé­lögum.

Allt að 900 starfsmenn skóla og frístundaheimila gætu lagt niður störf
BSRB Verk­falls­að­gerð­irnar sem fyr­ir­hug­aðar eru hjá BSRB-félögum gætu náð til alls 1.500 manns. Mynd: Bára Huld Beck

Á hádegi í dag hefj­ast fyrstu atkvæða­greiðsl­urnar um verk­falls­að­gerðir vegna kjara­deilu ell­efu aðild­ar­fé­laga BSRB við Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga. Fyrstu aðgerð­irnar eru áform­aðar í Kópavogi, Garðabæ, Sel­tjarna­nesi og Mos­fellsbæ í maí og júní, en þar mun starfs­fólk leik­skóla, grunn­skóla og frí­stunda­heim­ila leggja niður störf ef verk­falls­boðun verður sam­þykkt.

Atkvæða­greiðsl­unni lýkur á hádegi á laug­ar­dag. Samkvæmt upp­lýs­ingum sem Heim­ildin fékk frá BSRB ná áform­aðar aðgerðir til um 900 starfs­manna í sveit­ar­fé­lög­unum fjórum.

Misjafnt er á milli sveit­ar­fé­lag­anna fjög­urra hvort allir félags­menn aðild­ar­fé­laga BSRB greiði atkvæði um verk­falls­að­gerð­irnar eða ein­ungis starf­menn þeirra stofn­ana sem verk­falls­að­gerð­irnar ná til.

Segja Sambandið neita að leiðrétta mismunun á launum

Í til­kynn­ingu frá BSRB segir að kjara­deilan snúi að sam­eig­in­legri kröfu BSRB-félaga um að starfs­fólk sveit­ar­fé­laga, m.a. starfs­fólk leik­skóla, grunn­skóla, sund­lauga, íþrótta­mið­stöðva og starfs­fólk í þjón­ustu við fatlað fólk, fái sömu laun fyrir sömu eða sam­bæri­leg störf innan sömu stofn­unar eða sveit­ar­fé­lags og aðrir hafi þegar fengið frá 1. jan­úar.

„Þar sem Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga neitar að leið­rétta aug­ljósa mis­munun á launum starfs­fólks, og fundir með rík­is­sátta­semj­ara hafa engu skilað, er næsta skref að félags­fólk greiði atkvæði um verk­falls­að­gerðir svo knýja megi við­semj­endur okkar til samn­inga,“ segir í til­kynn­ing­unni. 

Kjara­deilan, sem er á milli ell­efu félaga starfs­manna sveit­ar­fé­laga, snertir samn­inga alls um 7.000 starfs­manna.

Aðgerðir fyrirhugaðar víðar um landið

Ef verk­falls­boð­unin verður sam­þykkt verður fyrsta lota verk­falla dag­ana 15. og 16. maí í leik­skólum, grunn­skólum og frí­stunda­heim­ilum Kópavogs, Garða­bæjar, Sel­tjarn­ar­ness og Mos­fells­bæjar, en greidd eru atkvæði um frek­ari aðgerðir sem ná fram í júní­mánuð.

Á næstu dögum koma fleiri BSRB-félög til með að boða til atkvæða­greiðslu um aðgerðir, en aðgerðir eru sagðar fyr­ir­hug­aðar í Hafn­ar­firði, Ölfusi, Árborg, Vest­manna­eyjum, Reykja­nesbæ og víðar um landið. Alls gætu 1.500 manns um land allt lagt niður störf í þeim aðgerðum sem eru áform­aðar, verði sam­þykkt að ráð­ast í þær. 

Sveitarfélögin sýni starfsfólki sínu „ótrúlega óbilgirni“

Í frétta­til­kynn­ingu BSRB er haft eftir Sonju Ýr Þor­bergs­dóttur for­manni að sú staða sem uppi er í kjara­við­ræð­unum komi mjög á óvart, þar sem BSRB hafi farið fram með mjög hóf­samar kröfur til skamms tíma.

„Hins vegar virð­ist Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga hafa skilið eftir samn­ings­vilj­ann heima og sýnir starfs­fólki sveit­ar­fé­laga ótrú­lega óbil­girni. Um er að ræða hreina mis­munun þar sem fólk sem vinnur jafn­vel sömu störf, á sama vinnu­stað, með sömu starfs­heiti er boðið upp á mis­jöfn kjör. Auðvitað sættir sig eng­inn við slíkt,“ er haft eftir Sonju Ýr.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár