„Geta aldrei sett sig í spor venjulegs fólks“

Íslend­ingar væru betur komnir ef þeir losn­uðu við þing­menn sem hafa verið þátt­tak­endur í póli­tískri hring­iðu frá unga aldri, að mati Guð­mundar Inga Krist­ins­sonar, þing­manns Flokks fólks­ins

„Geta aldrei sett sig í spor venjulegs fólks“
Ekki bund­inn af neinu Guð­mundur Ingi segir að sökum þess að hann hafi forð­ast alla póli­tík í upp­vext­inum og fram eftir aldri sé hann ekki bund­inn af neinum kreddum og fari ekki eftir neinum línum. Mynd: Bára Huld Beck

Þriðj­ungur sitj­andi alþing­is­manna eru annað hvort náskyldir eða mægðir fólki sem setið hefur á alþingi, ýmist sem aðal- eða vara­menn. Þá er enn fleiri þing­menn tengdir fólki sem hefur stýrt sveit­ar­fé­lögum eða leitt fram­boð í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Þó eru þeir til sem telja að betra væri ef slík tengsl væru ekki til staðar, þar á meðal Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, þing­maður Flokks fólks­ins.

Gunnar Helgi Krist­ins­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor hefur rann­sakað elítur og valda­kerfi í íslensku sam­fé­lagi og meðal ann­ars kann­aði hann ætt­ar­tengsl íslenskra þing­manna á ára­bil­inu 1990 til 2020. Hans nið­ur­staða er að um þriðj­ungur þing­manna hafi á þessu tíma­bili haft ætt­ar­tengsl við fyrr­ver­andi þing­menn.

„Íslenska kerfið hefur viss ein­kenni sem ættu að ýta undir ætt­ar­tengsl, og þau koma vissu­lega fyrir hér, en ég myndi ekki halda að þau væru megin áhrifa­þáttur á frama­brautir í stjórn­málum hér á landi,“ segir Gunnar Helgi og bendir á að svipuð mynstur megi greina í öðrum starfs­greinum eða þjóð­fé­lags­hópum, innan íþrótta­hreyf­ing­ar­innar eða í lista­lífi til að mynda.

Kominn af bændum og verkafólki

Guð­mundur Ingi er fæddur 1955, sonur Andreu Guð­munds­dóttur hús­móður og Kristins Jóns­sonar, verk­stjóra. Guð­mundur nam við tré­smíða­deild Iðn­skól­ans auk þess sem hann var í skrif­stofu­námi, vef­síðu­gerð og mynd­vinnslu í Nýja tölvu- og við­skipta­skól­anum. Hann vann í lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum og svo við versl­un­ar­störf. Guð­mundur lenti í alvar­legu bílslysi árið 1993 og varð við það öryrki. Síðan þá tók hann þátt í ýmsum félags­störfum, meðal ann­ars sat hann í stjórn Sjálfs­bjargar.

„Móðurafi minn og -amma bjuggu í Dranga­vík á Ströndum, nyrsta bæ á Íslandi. Pabbi er svo frá Vorsabæ í Austur-Land­eyjum. Ég er því kom­inn af bændum og verka­fólki,“ segir Guð­mundur í sam­tali við Heim­ild­ina.

Guð­mundur segir að póli­tík hafi lítt eða ekki verið rædd á heim­il­inu í hans upp­vexti. „Pabbi var nú sjálf­stæð­is­maður, það fór ekki á milli mála, en hann var alls ekki póli­tískur.“ Sjálfur seg­ist Guð­mundur ekki hafa haft áhuga á póli­tík. „Ég forð­að­ist það allt algjör­lega. Ég varð eig­in­lega ekki póli­tískur fyrr en eft­irí fyrsta umferð­ar­slysið sem ég lenti í, ég hef lent í þremur og kalla mig heppn­asta mann á Íslandi fyrir vikið. Þá lenti ég í kerf­inu og átt­aði mig á hvað það er ótrú­lega vit­laust.“

„Ég þoli hvorki vinstri né hægri eða miðju­moð“

Guð­mundur vísar hér til þess að árið 1993 slas­að­ist hann illa í bílslysi sem olli því að hann varð öryrki og gat ekki snúið aftur út á vinnu­markað. Í fram­hald­inu hóf hann þátt­töku í félags­starfi, sat í trún­að­ar­ráði VR, í stjórn Sjálfs­bjargar og starf­aði innan Öryrkja­banda­lags­ins. „Þá byrj­aði bar­áttan. Ég ætl­aði samt aldrei að verða póli­tíkus, bless­aður vertu, Inga [Sæland] þurfti að biðja mig þrisvar og ég sagði á end­anum já af því ég hélt það yrði ekk­ert af þessu. En sem betur fer varð það.“

Segir mikinn kost að hafa ekki komið nálægt pólitík

Spurður hvort hann telji að þessi bak­grunnur hans, það er að hafa engin afskipti haft af póli­tík og lítt um hana hugsað á yngri árum, vera honum hamlandi í starfi heldur Guð­mundur nú ekki. „Það er mik­ill kostur. Mér finnst ég vegna þessa vera frjáls í hugsun, ég er ekki bund­inn af neinum kreddum. Ég þoli hvorki vinstri né hægri eða miðju­moð. Ég fer ekki eftir neinum línum. Ég fór inn á Alþingi til að berj­ast fyrir þau sem verst hafa það og það er það sem ég ein­blíni á.“

„Ég held að við værum betur komin ef þing­menn hefðu ekki verið þátt­tak­endur í póli­tískri hring­iðu frá unga aldri“

Að sama skapi telur Guð­mundur að það sé mik­ill ókostur að á þingi sé tölu­verður hluti þing­manna sem nán­ast taki þing­sæti sín í arf, séu að segja má fæddir inn í stjórn­málin, og hafi fyr­ir­fram­gefnar hug­myndir um póli­tík. „Því miður. Þeir sem hafa kannski aldrei dýft hendi í kalt vatn og vita ekk­ert hvernig það er að alast upp við fátækt átta sig ekk­ert á hvað aðrir eru að glíma við. Þeir geta aldrei sett sig í spor venju­legs fólks. Ég hef það á til­finn­ing­unni að meðan að fjór­flokk­ur­inn er við völd muni ekk­ert breyt­ast. Ég held að við værum betur komin ef þing­menn hefðu ekki verið þátt­tak­endur í póli­tískri hring­iðu frá unga aldri.“

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sjá meira

Þingmennska reynist nátengd ætterni
ÚttektErfðavöldin á Alþingi

Þing­mennska reyn­ist nátengd ætt­erni

Af núver­andi alþing­is­mönnum er þriðj­ungur tengdur nánum fjöl­skyldu­böndum við fólk sem áður hefur setið á Alþingi. Fimm þing­menn eiga feður sem sátu á Alþingi og fjórir þing­menn eiga afa eða ömmu sem einnig voru alþing­is­menn. Þessu til við­bótar eru tólf þing­menn nátengdir fólki sem hefur verið virkt í sveit­ar­stjórnum eða hefur verið áhrifa­fólk í stjórn­mála­flokkum.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár