Íslandsvinurinn Orlov flytur útgerðina á son sinn

Umsvifa­mesti útgerð­ar­maður Rúss­lands, Vitali Orlov, hefur flutt eign­ar­haldið á stór­út­gerð sinni til sonar síns. Norska við­skipta­blaðið Dagens Nær­ingsliv segir að hann hafi gert þetta vegna við­skipta­þving­ana Evr­ópu­sam­bands­ins sem hafa ekki bitnað á Orlov hingað til.

Keypti Afríkuútgerðina af Samherja
Keypti Afr­íku­út­gerð­ina af Samherja Rúss­neski útgerð­ar­mað­ur­inn Vitaly Orlov keypti meðal ann­ars Afr­ík­út­gerð Samherja af félag­inu auk þess sem nafn hans og fyr­ir­tækja hans kom fyrir í Sam­herj­a­skjöl­unum svoköll­uðu.

Rúss­neski útgerð­ar­mað­ur­inn Vitaly Orlov hefur flutt eign­ar­haldið á útgerð sinni, Norebo, yfir á 33 ára gamlan son sinn, Nikita Orlov. Norska við­skipta­blaðið Dagens Nær­ingsliv greinir frá þessu í langri umfjöllun þar sem fram kemur að Vitaly Orlov hafi gert þetta vegna mögu­legra við­skipta­þving­ana Evr­ópu­sam­bands­ins í garð útgerðar hans. Sonur Orlovs er nefni­lega norskur rík­is­borg­ari þar sem faðir hans bjó lengi og starf­aði í Noregi. Norska blaðið tekur þó fram að hingað til hafi Evr­ópu­sam­bandið ekki sett Vitaly Orlov eða Norebo á neinn svartan lista vegna stríðs­ins í Úkraínu. 

Vitaly Orlov er umsvifa­mesti útgerð­ar­maður Rúss­lands og hafa íslenskir fjöl­miðlar fjallað um hann nokkrum sinnum í gegnum tíð­ina vegna tengsla við útgerð­ar­fé­lagið Samherja og Lands­bank­ann. Norebo er í dag stærsta útgerð­ar­fé­lag Rúss­lands sem ræður yfir mestum kvóta þar í landi og er með tekjur upp á tæp­lega 60 millj­arða íslenskra króna. 

Fyr­ir­tæki í eigu Orlovs, Murmansk Trawl Fleet, keypti meðal ann­ars Afr­íku­út­gerð Samherja, Kötlu Seafood, árið 2013 og Lands­bank­inn átti útistand­andi lán hjá félagi hans. Í svörum upp­lýs­inga­full­trúa Orlovs til Stund­ar­innar, fyr­ir­renn­ara Heim­ild­ar­innar, kom reyndar fram að við­skipta­sam­band Orlovs við Lands­bank­ann næði aftur fyrir íslenska efna­hags­hrunið 2008.  Lánið frá Lands­bank­anum var með veði í tog­ar­anum Pavel Kutakhov sem veiddi hesta­makríl í Vestur-Afríku, líkt og Stundin greindi. 

Í grein Dagens Nær­ingsliv er rakið hvernig fyr­ir­tæki Orlovs í Rúss­landi hafi tengsl við Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seta og að þetta geti skapað vanda­mál fyrir þau. Tals­maður Norebo sakar norska blaðið hins vegar um Rúss­lands­fó­bíu og hætti að svara spurn­ingum þess. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár