Jóakim prins verður tengiliður vopnaframleiðenda

Dönskum her­gagna­fram­leið­endum og selj­endum berst liðs­auki þegar Jóakim prins, yngri sonur Mar­grétar Þór­hildar Dana­drottn­ingar hefur störf í sendi­ráði Dana í Washington í haust. Um það bil tvö hund­ruð dönsk fyr­ir­tæki fram­leiða her­gögn af ýmsu tagi.

Jóakim prins verður tengiliður vopnaframleiðenda
Prins Jóakim fær ekki laun í sendi­ráð­inu í París en heldur fram­færslu­launum sínum hjá hirð­inni að öllu óbreyttu. Þau eru um 7 millj­ónir króna á mán­uði. Mynd: AFP

Í júní 2020 birt­ust í dönskum fjöl­miðlum fréttir um að Jóakim prins hefði verið ráð­inn til starfa við danska sendi­ráðið í París. Starfs­heitið kom mörgum á óvart en í til­kynn­ingu danska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins kom fram að hann yrði forsvarsattaché, varn­ar­mála­sér­fræð­ingur. Ráðn­ingin var til þriggja ára, eins og iðu­lega tíðkast varð­andi störf af þessu tagi innan ráðu­neyt­is­ins. 

Að finna fjölina

Jóakim er ári yngri en bróðir hans, rík­is­arf­inn Friðrik. Börn Friðriks, fjögur að tölu eru öll á undan Jóakim í erfða­röð krún­unnar og því verður að telj­ast mjög ólík­legt að hann, sem sá sjötti í þess­ari röð, verði nokkru sinni þjóð­höfð­ingi Dan­merkur. Þótt hlut­verk rík­is­arfans danska sé, eins og víð­ast hvar, mjög skýrt gegnir ekki sama máli um önnur börn þjóð­höfð­ingja. Þótt þau hafi ýmsar skyldur, stöðu sinnar vegna, eiga þau iðu­lega erfitt með að finna sér sama­stað í til­ver­unni. Nærtækt dæmi í þessum efnum er Bretland. 

Líkaði vel í hernum en reyndi fyrir sér í búskap

Jóakim lauk stúd­ents­prófi frá Øregaard mennta­skól­anum í Hellerup árið 1986. Að því loknu hélt hann til Ástralíu og var þar eitt ár vinnu­maður á búgarði. Síðan tók her­skyldan við. Þegar henni lauk stund­aði Jóakim fram­halds­nám í hernum. Jóakim hefur alla tíð haft mik­inn áhuga á land­bún­aði og stund­aði um tveggja ára skeið, 1991 – 93 nám við land­bún­að­ar­skóla á Falstri, Den Classenske Ager­brugs­skole. Árið 1995 var greint frá því að Jóakim og Alex­andra, fyrri kona hans, fengju yfir­ráð yfir Schackenborgarhöll á Suður Jótlandi. Búgarð­inn Møgeltønder sem stóð á þessu landi hafði Friðrik III kóngur gefið Hans von Schack greifa um miðja 17. öld. Greifinn byggði svo höll­ina, sem enn stendur, á árunum í kringum 1660 og hún fékk heitið Schackenborg Slot. Afkom­endur Hans von Schack afhentu hirð­inni höll­ina til eignar árið 1978. Eftir miklar við­gerðir á höll­inni fluttu Jóakim og Alex­andra þangað árið 1999. Ætlun Jóakims var að stunda land­búnað á jörð­inni en búskap­ur­inn gekk erf­ið­lega og hjónin fluttu til Kaup­manna­hafnar. Þau skildu árið 2005 en Jóakim gift­ist síðar Marie, núver­andi eig­in­konu sinni. Þau eiga tvö börn en Jóakim á tvö börn úr fyrra hjóna­bandi sínu.

Meðfram búskapnum á Suður-Jótlandi gegndi Jóakim ýmsum störfum hjá hernum og árið 2015 fékk hann titil ofursta. Í byrjun nóv­em­ber sama ár var hann ráð­inn í stöðu sér­fræð­ings hjá hernum 

Herskólinn og sendiráðið í París

Í byrjun árs 2019 bauð franski varn­ar­mála­ráð­herr­ans Jóakim inn­göngu í École Militaire, Her­skól­ann, í París. Námið tekur eitt ár, það er tak­markað við hátt setta yfir­menn í hernum og er æðsta náms­stig skól­ans. 30 manns stunda námið hverju sinni og Jóakim er fyrsti Daninn sem stundar þetta nám. Hér má minna á að Jóakim er franskur í föð­ur­ætt og altalandi á frönsku. 

Þegar nám­inu lauk var Jóakim boðið starf, sem hann þáði, í danska sendi­ráð­inu í París. Starfs­tit­ill­inn var forsvarsattaché, sér­fræð­ingur um varn­ar­mál. Sá sem gegnir þessu starfi í danska sendi­ráð­inu kemur nær und­an­tekn­ing­ar­laust úr hernum og er eins­konar tengiliður Dan­merkur og við­kom­andi lands á hern­að­ar­svið­inu. Ráðn­ing­ar­tíma­bilið er þrjú ár, með mögu­leika á fram­leng­ingu. Upphaf ráðn­ing­ar­tíma­bils Jóakims mið­að­ist við 1. sept­em­ber 2020. 

Í júlí 2020, skömmu áður en Jóakim átti að hefja störf í sendi­ráð­inu fékk hann blóð­tappa í heil­ann. Nokkrum dögum síðar bár­ust fréttir af því að prins­inn myndi ná sér að fullu og hann hæfi störf í sendi­ráð­inu sam­kvæmt áætlun.

Danskir fjöl­miðlar veltu fyrir sér hvort sú stað­reynd að Jóakim er sonur Dana­drottn­ingar hefði skipt máli við þessa ráðn­ingu. Henrik Breitenbauch hern­að­ar­sér­fræð­ingur sagði í við­tali við danska útvarpið, DR, að Jóakim hefði langa reynslu í hernum, 33 ár, og að hann væri sonur Mar­grétar Þór­hildar skipti engu máli í þessu til­liti. Bætti við að kannski væru gerðar meiri kröfur til prins­ins vegna þessa.

Til Washington

Snemma á þessu ári greindi Jóakim frá því að hann myndi ekki sækj­ast eftir áfram­hald­andi ráðn­ingu við sendi­ráðið í París. Sér hefði líkað starfið vel en vildi ekki segja neitt um hvað tæki við. Ekki þurfti þó að bíða lengi eftir fréttum af atvinnu­málum Jóakims, því utan­rík­is­ráðu­neytið sendi frá sér til­kynn­ingu þar sem fram kom að hann myndi hefja störf í danska sendi­ráð­inu í Washington 1. sept­em­ber næst­kom­andi. 

Í síð­ustu viku var svo greint frá því að Jóakim yrði forsvarsindustriattaché, sem sé sér­fræð­ingur varð­andi danskan her­gagna­iðnað.  

„Það er nefni­lega það“ sögðu danskir fjöl­miðlar „ og hvað felst svo í því starfi“ var líka spurt. Að sögn tals­manns danska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins mun vinna Jóakims einkum snú­ast um aðstoð við danska her­gagna­fram­leið­endur og auð­velda þeim að koma fram­leiðsl­unni á fram­færi við banda­ríska vopna- og her­gagna­fram­leið­endur. Banda­ríkja­menn eru lang mik­il­væg­ustu við­skipta­vinir Dana á þessu sviði. 

200 dönsk fyrirtæki framleiða hergögn af ýmsu tagi 

Innrás Rússa í Úkraínu og átökin þar hafa orðið til þess að þjóðir Evrópu hafa beint sjónum sínum í síauknum mæli að varnar- og örygg­is­málum. Flest ríki Evrópu hafa und­an­farið aukið til muna fjár­veit­ingar til her­mála og þótt ekki sé mikið um það fjallað í fréttum er vitað að flestar verk­smiðjur sem fram­leiða vopn og her­gögn starfa nú á fullum afköstum. Danski her­inn mátti um langt ára­bil búa við mik­inn nið­ur­skurð, sem leiddi til þess að tækja­kost­ur­inn var ekki end­ur­nýj­aður, það gilti sömu­leiðis um fatnað og annan búnað, þar á meðal byssu­kúlur. 

Danskir her­gagna­fram­leið­endur hafa mörg und­an­farin ár fyrst og fremst fram­leitt til útflutn­ings, iðu­lega í sam­vinnu við fram­leið­endur í öðrum löndum. Samtals eru um það bil 200 fyr­ir­tæki í Danmörku sem fram­leiða her­gögn af ýmsu tagi, sum mjög lítil og fámenn, önnur stærri. Stærst þess­ara fyr­ir­tækja er Terma, með um 1600 starfs­menn. Fyr­ir­tækið, sem er með höf­uð­stöðvar skammt frá Árósum var stofnað árið 1944 og fram­leiddi fyrst í stað ein­göngu hita­mæla til nota inn­an­dyra og utan. Fyr­ir­tækið fram­leiðir nú margs konar tækni­búnað og íhluti, einkum til hern­að­ar­nota. 

Fagna mjög ráðningu Jóakims 

Danskir her­gagna­fram­leið­endur, sem fjöl­miðlar hafa rætt við, fagna mjög ráðn­ingu Jóakims prins, þótt hann eigi ekki að vera her­gagna­sölu­maður, eins og sumir fram­leið­endur komust að orði. Tilkoma hans sem starfs­manns sendi­ráðs­ins muni auð­velda tengsl og sam­skipti fram­leið­enda heima í Danmörku og kaup­enda vest­an­hafs. Banda­rískir her­gagna­fram­leið­endur eru lang mik­il­væg­ustu við­skipta­vinir Terma. Ekki spilli heldur fyrir að hann skuli vera sonur Mar­grétar Þór­hildar. Jes Munk Hansen fram­kvæmda­stjóri Terma segir að Jóakim sé rétti mað­ur­inn í starfið í Washington. Hann hafi staðið sig mjög vel í París, þekki orðið allt og alla í þessum bransa og það sé mik­il­vægt. Jóakim hafi gengið vel að mynda nauð­syn­leg tengsl og það muni nýt­ast honum vel í nýja starf­inu. 

Á Krist­jáns­borg hafa þing­menn úr nær öllum flokkum lýst mik­illi ánægju með ráðn­ingu Jóakims.

Heldur framfærslulaununum

Þegar Jóakim hóf störf í sendi­ráð­inu í París kom fram að hann fengi ekki eig­in­leg laun. Hann myndi hins­vegar halda fram­færslu­launum sínum (apanage) hjá hirð­inni. Þau nema sem sam­svarar um það bil 7 millj­ónum íslenskra króna á mán­uði. Gert er ráð fyrir að sama gildi um nýja starfið í Washington. Danska þingið, Fol­ket­inget, þarf að sam­þykkja þetta fyr­ir­komu­lag áður en ráðn­ingin tekur gildi. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár