Spurð „Er þetta þess virði?“ - Katrín hlaut standandi lófatak á landsfundi

Katrín Jakobs­dóttir, formaður Vinstri grænna, ávarpaði gagnrýni á útlendinga­frumvarpið þegar hún hélt ræðu á lands­fundi hreyf­ing­ar­innar í dag. „Ég vil segja að þó ég skilji að hart sé tekist á um þessi mál þá er það samt þannig að þingmenn okkar sem unnu að þessu máli gerðu það af heilindum og voru að byggja á okkar stefnu“ sagði Katrín. Hún hlaut standandi lófatak í lok ræðu sinnar.

Frá landsþingi Vinstri grænna
Frá lands­þingi Vinstri grænna Katrín Jak­obs­dóttir hvatti félaga sína til að láta mót­vind ekki hafa áhrif á sig, þegar hún hélt setn­ing­ar­ræðu sína á lands­fundi hreyf­ing­ar­innar í dag. Mynd: Auðunn

„Við erum í ríkis­stjórn og getum því haft jákvæð áhrif. Eitt af því sem við gerðum var að í upphafi kjör­tímabilsins færðum við þjónustu við útlendinga til félagsmála­ráðuneytisins,“ sagði Katrín Jakobs­dóttir, formaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og forsætis­ráðherra, á lands­fundi hreyfingarinnar sem var settur í dag. 

Hún sagði hreyfinguna hafa kafað djúpt í málefni útlendinga og hælis­leitenda  og tekið stór skref til að uppfæra kerfi sem hafi reynst algjör­lega vanbúið til að takast á við þann mikla fjölda sem hingað kom í fyrra og muni áfram gera í ár. 

„Þá sjáum við auð­vitað að mik­illa aðgerða er þörf“
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna

„Við sjáum að það kerfi sem við höfum var sett upp fyrir talsvert löngu og þá var talsvert færra flótta­fólk. Þegar þessi kerfi eru í smíðum þá eru mögulega að koma hingað um hundrað manns á ári en þegar fjöldinn er farinn að nema mörgum þúsundum, og svo var í fyrra og svo verður áfram í ár, þá sjáum við auðvitað að mikilla aðgerða er þörf,“ sagði Katrín. 

Hún benti á að þau hefðu sett af stað vinnu við að bæta allar greiningar og upplýsinga­gjöf milli stofnana með það að markmiði að hraða og bæta máls­meðferð sem taki nú „óbærilega“ langan tíma. Þá hafi á dögunum verið auglýst starf samhæfingar­stjóra í málefnum flótta­fólks enda sé þetta verkefni sem kalli á ríkt samstarf ólíkra ráðueyta. 

Byggt á stefnu Vinstri grænna

„Þingmenn okkar sem unnu að þessu máli gerðu það af heil­indum og voru að byggja á okkar stefnu“
Katrín Jak­obs­dóttir

„En á sama tíma og við erum að gera jákvæðar breytingar þá erum við að takast á um mál eins og útlendinga­frumvarpið sem hafa valdið því að ýmsir félagar okkar hafa yfirgefið okkur. Ég vil samt segja að okkar þingmenn sem komu að því máli og unnu að því máli gerðu það af miklum heilindum með það að markmiði að hafa áhrif á málið í samræmi við okkar stefnu. Þess vegna er málið sem var lagt fram á þingi nú ekki sama mál og var lagt fram fyrir fimm árum og vakti þá miklar deilur. Það voru gerðar á því stórar breytingar að kröfu okkar Vinstri grænna sem meðal annars vörðuðu sérstök tengsl við landið og þannig var unnið áfram að málinu allan tímann, og alveg fram að loka­umræðunni þar sem samþykktar voru breytingar sem aftur komu frá okkur í VG. Þannig að ég vil segja að þó ég skilji að hart sé tekist á um þessi mál þá er það samt þannig að þingmenn okkar sem unnu að þessu máli gerðu það af heilindum og voru að byggja á okkar stefnu, og mér finnst bara mikilvægt að segja það hér,“ sagði Katrín og uppskar lófaklapp frá fundar­gestum. 

LófatakFjöl­menni var á lands­þingi Vinstri grænna sem sett var í Hofi á Akureyri í dag.

„Er þetta þess virði?“

Landsþing Vinstri grænna var sett í Hofi á Akureyri í dag, tveimur dögum eftir að Alþingi samþykkti umdeilt útlendinga­frumvarp Jóns Gunnars­sonar dómsmála­ráðherra, eftir að deilt hafði verið um frum­varpið árum saman. Sex þingmenn Vinstri grænna greiddu atkvæði með frum­varpinu en tveir voru fjar­staddir, þær Katrín og Bjarkey Olsen Gunnars­dóttir. 

„Kæru vinir. Þátttaka í ríkis­stjórn kostar ávallt sitt, ég þarf ekki að útskýra það hér í þennan hóp, ekki síst þegar við erum ósammála og einhver vill yfirgefa okkur, þá fæ ég þessa spurningu: Er þetta þess virði?“ sagði Katrín.

Hún sagðist vel skilja að svona sé spurt þegar hreyfingin hafi verið eins lengi í ríkis­stjórn og raun ber vitni. „En ég vil líka segja það að miklu oftar, miklu miklu oftar, fæ ég hvatningu og stuðning frá félögum okkar, bréf, símtöl, samtöl á förnum vegi sem öll eiga það sameiginlegt að við í Vinstri-grænum viljum rísa undir ábyrgð.“

Úrsagnir vegna frumvarpsins

Í drögum að ályktunum sem búið var að gefa út að yrðu lagðar fyrir lands­fundinn voru meðal annars drög að ályktun sem fól í sér að lands­fundurinn legðist „eindregið gegn frumvarpi dómsmála­ráðherra til breytinga á lögum um útlendinga sem lagt hefur verið ítrekað fram á Alþingi.“

Framkvæmda­stjórn Ungra vinstri grænna var meðal þeirra sem skrifuðu undir ályktunar­drögin og eftir að útlendinga­lögin voru samþykkt birtu þau yfir­lýsingu þar sem þau hörmuðu að frum­varpið væri orðið að lögum og að „þingmenn sem greiddu atkvæði með frum­varpinu mega bera skömm fyrir.“ Þá hefur verið greint frá um þrjátíu úrsögnum úr hreyfingunni eftir að að frum­varpið varð að lögum, en meðal þeirra sem sögðu sig úr flokknum er fyrr­verandi framkvæmda­stjóri flokksins, vara­þingmaður og sonur fyrr­verandi formanns. 

„Fyrir þennan stuðn­ing vil ég þakka, hann veitir mér og okkur öllum kraft og þrek til að halda áfram vinn­unni“
Katrín Jak­obs­dóttir

Katrín lét hins vegar engan bilbug á sér finna, og hélt áfram:  „Við viljum hafa mótandi áhrif, við eflumst við mótlæti og við viljum leiða samfélagið okkar í átt að réttlátu þjóð­félagi þar sem allir eiga tækifæri á að lifa með sæmd og reisn.

Fyrir þennan stuðning vil ég þakka, hann veitir mér og okkur öllum kraft og þrek til að halda áfram vinnunni, takast á við þau mjög svo krefjandi verkefni sem eru framundan og halda áfram að hrinda stefnunni okkar í framkvæmd og bæta þannig líf fólksins í landinu jafnt og þétt. Áfram veginn kæru félagar!“ sagði hún í lok stefnu­ræðu sinnar og stóðu fundar­gestir á fætur og klöppuðu fyrir henni. 

Hróp gerð að Katrínu af boðflennu

Þetta var þó ekki sú stemning sem hafði ríkt alla ræðuna. 

Þegar Katrín var að telja upp ýmis atriði sem sýndu hvernig hreyfingin hefði haft áhrif til góðs stóð skyndi­lega upp karlmaður í gulum vinnu­galla og hrópaði: „Þú gleymdir Lindar­hvoli!“ Katrín benti honum þá á að hún hefði alls ekki lokið máli sínu, en hann hrópaði á móti: „Ég nenni ekki að hlusta á þessa helvítis lygi.“ Hann gerði síðan ferð Katrínar og utan­ríkis­ráðherra til Úkraínu í vikunni að umtals­efni og sagði hana „í stríði við þjóðina.“ 

Katrín bauð honum að yfirgefa fundinn, sem hann gerði og Katrín hélt máli sínu áfram, en byrjaði á að segja að hún væri alfarið ósammála þessum manni. Blaða­maður Heimildarinnar sem er á staðnum fékk þær upplýsingar að maðurinn er hvorki skráður á lands­fundinn né félagi í hreyfingunni.

Óvænt úrslit kosninga

Katrín sagði að úrslit kosninganna 2021 hafi komið mörgum á óvart. „Þrátt fyrir barning í skoðana­könnunum allt kjör­tímabilið og þó að hart væri að okkur sótt héldum við Vinstri græn stöðu okkar sem stærsti flokkurinn á vinstri­vængnum þegar talið hafði verið upp úr kössunum – en misstum samt fylgi eftir átaka­mikið kjör­tímabil og brott­hvarf tveggja þingmanna,“ sagði hún og vísaði þar til brott­hvarfs þeirra Andrésar Inga Jónssonar sem síðar gekk til liðs við Pírata og Rósu Bjarkar Brynjólfs­dóttur sem gekk til liðs við Samfylkinguna. 

„Nú hittumst við á miðju kjör­tímabili og staðan er um margt snúin. Heims­faraldur reyndi á alla innviði samfélagsins. Ég er þess fullviss að sýn okkar Vinstri-grænna skipti verulegu máli í því að koma samfélaginu farsæl­lega í gegnum hann. Við byggðum á stað­reyndum, áttum heiðarlegt samtal við þjóðina og treystum þjóðinni.“

„Verkefni númer 1, 2 og 3 núna er að ná verð­bólg­unni niður“
Katrín Jak­obs­dóttir

Katrín fjallaði sérstak­lega um verð­bólguna sem væri stærsta viðfangs­efni dagsins í dag sem og þær vaxta­hækkanir sem af henni leiða. „Almenningur finnur fyrir verð­bólgunni, bæði í daglegri neyslu og í greiðslu­byrði íbúðalána. Og við sem höldum utan um ríkissjóð finnum fyrir auknum þunga vaxta­gjalda í öllum okkar rekstri. Verkefni númer 1, 2 og 3 núna er að ná verð­bólgunni niður. Það verður einungis gert með samstilltum aðgerðum allra,“ sagði Katrín. 

Hún ítrekaði hrós sitt til þeirra fyrir­tækja sem hafa svarað kalli um þjóðar­sátt og auglýsa nú verð­lækkanir til að ná árangri í þessu sameiginlega verkefni, og hvatti hún önnur til að fylgja þeirra fordæmi. 

„Og ítreka enn það sem ég hef áður sagt: Forstjórar sem skammta sér launa­hækkanir langt umfram launa­vísitölu og eigendur sem greiða sér út himinháan arð hella olíu á verðbólgu­elda. Enginn ætti að láta sér það koma á óvart að það verður ekki þannig að þeir sem lægst hafa launin eigi að bera mesta ábyrgð á efnahags­legum stöðug­leika,“ sagði hún. 

Meiri áhrif í ríkisstjórn

Katrín benti á að Vinstri græn hafi nú leitt ríkis­stjórn í fimm og hálft ár, og raunar hafi flokkurinn verið í ríkis­stjórn í næstum tíu ár á undan­förnum tuttugu árum og haft jákvæð áhrif á samfélagið með ýmsum hætti.

„Ég gæti staðið hér frameftir kvöldi og þulið upp hluti eins og þrepa­skipt skatt­kerfi, eflingu barna­bóta­kerfisins, eflingu almenna íbúða­kerfisins, friðlýst svæði um land allt, full­fjármagnaða aðgerða­áætlun í loftslags­málum, ný jafnréttislög, lögin um kynrænt sjálfræði, minni skerðingar í almanna­trygginga­kerfinu, bætta réttar­stöðu brotaþola, ný laga­ákvæði um umsáturs­einelti og kynferðis­lega friðhelgi, minni greiðslu­þátttöku sjúklinga og stór­eflingu heilsu­gæslunnar, Land­spítala og Sjúkra­hússins á Akureyri, lög um farsæld barna sem nálgast þau málefni með algjör­lega nýjum hætti í þágu barna, ný þungunar­rofslöggjöf, lenging fæðingar­orlofs og stytting vinnu­vikunnar. Ég gæti haldið lengi áfram en á því leikur enginn vafi að við höfum haft ómæld áhrif á samfélagið með þátttöku okkar í ríkis­stjórn, langt umfram stærð okkar. Mál sem jafnvel hafa þótt jaðarmál þykja nú sjálfsögð.“ 

Hún sagði hreyfinguna vilja hafa áhrif, og þau í Vinstri grænum viti ágætlega að það sé líka hægt að hafa áhrif í stjórnar­andstöðu. Áhrifin séu hins vegar meiri með sæti í ríkis­stjórn. 

„Þegar á móti blæs og við sitjum undir árásum þá er ágætt að hafa það hug­fast að and­stæð­ingar okkar vilja allt til vinna að kom­ast í rík­is­stjórn“
Katrín Jak­obs­dóttir

„Þegar á móti blæs og við sitjum undir árásum þá er ágætt að hafa það hugfast að andstæðingar okkar vilja allt til vinna að komast í ríkis­stjórn, til að gera sín eigin stefnumál að veruleika. Um þetta snúast stjórnmál, þau snúast um stefnu og áherslu og mögu­leikann á því að móta samfélag okkar,“ sagði hún.

Láta mótvind ekki buga sig

Katrín vakti athygli á því að alltaf sé hætta á þreytu þegar flokkar hafi verið lengi við stjórnvölinn. „Við liggjum lágt í skoðana­könnunum og finnum að mótvindurinn um þessar mundir er allnokkur. Ég hef hins vegar verið félagi í þessari hreyfingu ansi lengi, eða 21 ár, og ef ég þekki okkur rétt látum við mótvindinn ekki buga okkur. En í mótvindi getur verið gott að staldra við og leggja nýtt mat á stöðuna, finna bestu leiðina fram á við og halda svo ótrauð áfram,“ sagði hún. 

Katrín vakti svo máls á fjölda atriða, til dæmis þeim fregnum að íslensk tunga verði gjaldgeng í hugbúnaði stórra fyrir­tækja þegar kemur að gervi­greind sem séu jákvæðar fregnir fyrir viðhald tungu­málsins.

Hún fjallaði um loftslagssvána sem vofir yfir. „Við höfum sett aukið fjármagn í rann­sóknir og nýsköpun sem tengjast loftslags­málum. Við höfum fjölgað rafbílum á götunum og byggt upp nauðsyn­lega innviði fyrir orku­skipti í samgöngum. Við erum að fjárfesta í Borgar­línu, alvöru almennings­samgöngum á höfuð­borgar­svæðinu sem og umfangs­miklu stíga­kerfi til að geta boðið fólki upp á fjöl­breyttari ferðamáta og dregið úr losun.“

„Hatursorðræða er ofbeldi“

Katrín sagði Vinstri græna vera með vel mannað lið í ráðherra­stólum, á Alþingi, í sveitar­stjórnum, í stjórn hreyfingarinnar og svæðis­félögum um land allt, og að ráðherrarnir séu með mörg stór verkefni í höndunum. Sem dæmi þá hafi endur­skoðun örorku­lífeyris­kerfisins staðið yfir allt kjör­tímabilið og nú komi brátt að því að félags- og vinnu­markaðs­ráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandson, geti kynnt tillögur sínar „að rétt­látara, gagnsærra og einfaldara afkomu­trygginga- og þjónustu­kerfi. Þar eru markmiðin nokkur en þau stærstu eru þau tryggja afkomu fólks með skerta starfs­getu á sama tíma og gefa fleira fólki tækifæri til virkni og atvinnu­þátttöku, ekki síst ungu fólki sem hvorki er í námi né starfi. Ég hef væntingar um að frumvarp verði kynnt í vor og verði svo tekið fyrir á næsta þingvetri. Þetta verður eitt stærsta mál okkar Vinstri grænna á þessu kjör­tímabili.“

Um þessar mundir er tillaga Katrínar um aðgerðir gegn haturs­orðræðu til umræðu í þinginu. „Aðgerðunum er fyrst og fremst ætlað að efla fræðslu og umræðu í samfélaginu og tryggja þannig að við sem samfélag tökumst á við haturs­orðræðu. Haturs­orðræða er ofbeldi og við líðum hana ekki. Þetta er mikilvægt mál sem á sér margar hliðar, opin umræða þar sem allir geta óhræddir tekið þátt er til að mynda ein grundvallar­forsenda lýðræðis og opins samfélags. Raddir þeirra sem eru jaðar­settir og raddir þeirra sem tilheyra minnihluta­hópum eru nákvæmlega jafn mikil­vægar og stundum mikil­vægari en raddir annarra.“

„Hat­urs­orð­ræða vekur ótta og skemmir hratt út frá sér“
Katrín Jak­obs­dóttir

Hún sagði það því mikinn misskilning og hlutunum illilega snúið á hvolf þegar því sé haldið fram að aðgerðir gegn haturs­umræðu dragi úr tjáningar­frelsi. „Sú umræða er svona svipuð því að halda því fram að lög gegn ofsa­akstri dragi úr ferða­frelsi manna. En auðvitað hlustum við á öll sjónarmið í þessu máli og við vöndum okkur þannig að sem best sé tryggt að tjáningar­frelsi allra sé varið,“ sagði hún. 

Átakanlegar afleiðingar stríðsins

Þá beindi hún sjónum sínum til Úkraínu og sagði Vinstri græn hafa frá því stríðið skall á talað fyrir skýrum stuðningi við Úkraínu­menn en líka haldið á lofti að það megi aldrei útiloka friðsamlegar lausnir. Katrín sagði 2700 Úkraínu­menn hafa fengið vernd á Íslandi frá upphafi stríðsins sem sé bara hluti af þeim milljónum sem eru á flótta undan átökunum. 

„Ekkert er jafn átakanlegt, jafn sorglegt, jafn ömurlegt, og að sjá afleiðingar stríðs af manna völdum. Að heimsækja samfélag í stríði þar sem áfram þarf að reka skóla og sjúkrahús, áfram þarf að sinna alls konar störfum, áfram þarf að vera til en markmiðin eru í raun aðeins þau að lifa af. Allt það fallega í lífinu verður einhvern veginn dýrmætara, sjaldgæfara, einstakara,“ sagði Katrín. 

Þrátt fyrir stríð í Evrópu muni þau í Vinstri grænum ekki falla frá sannfæringu sinni um frið og mikilvægi þess að tala fyrir honum. 

„Við Íslendingar eigum alltaf að vera talsmenn friðar, talsmenn þess að alþjóðalög séu virt og réttur þjóða til að ráða sínum málum sjálfar sé virtur. Rödd okkar öðlast ekki styrk í krafti vopna, mann­fjölda eða ríkidæmis. En við höfum áhrif meðal annars vegna þess að við höfum byggt upp gott og friðsælt samfélag. Við höfum byggt upp samfélag velsældar og jöfnuðar, samfélag þar sem við öll eigum tækifæri til að láta draumana rætast og þroska hæfileika okkar. Samfélag þar sem við treystum hvert öðru og skipum okkur ekki í ólík lið heldur einmitt vitum að þegar á móti blæs tökum við höndum saman og róum öll í sömu átt. Samfélag sem ég veit að er dýrmætt í heiminum í dag, samfélag sem við sjálf höfum allt vald um hvernig við þróum og byggjum áfram upp,“ sagði Katrín. 

Lands­fundurinn heldur áfram í kvöld þar sem á dagskrá eru almennar stjórnmála­umræður. Fundinum er áfram haldið á morgun með hópa­starfi fasta­nefnda hreyfingarinnar sem síðan kynna stefnur sínar. Einnig verður kosið í stjórn á morgun. Landsfundar­gleði er þá um kvöldið. Þriðji og síðasti dagur lands­fundar er á sunnudag. Þá verður fjallað um ályktanir og fundi er slitið klukkan tvö. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár