Íslenskir línumenn og -konur slá í gegn á Discovery

Áhafnir tveggja íslenskra línu­skipa eru í aðal­hlut­verki í þátt­unum Ice Cold Catch sem sjón­varps­stöðin Discovery fram­leiddi og teknir voru á mið­unum fyrir norðan og vestan land í fyrra­vetur. Heim­ildin ræddi við skip­stjór­ann á Páli Jónssyni GK og breska háset­ann, Caitlin Krause, sem reyndi fyrir sér á Íslands­miðum.

Íslenskir línumenn og -konur slá í gegn á Discovery
Áhöfnin á Brosanum Áhöfnin á Páli Jónssyni GK stillir sér upp á mynd ásamt Caitlin Krause sem var munstruð í áhöfn­ina ásamt tökuliði Discovery síð­ast­liðin vetur og fræð­ast má um í þátt­unum Ice Cold Catch. Mynd: Úr einkasafni

Þótt starf sjó­manns­ins sé alla jafna erfitt er puðið og fyr­ir­höfnin mis­mun­andi eftir því hvaða veið­ar­færum er beitt. Ein teg­und veið­ar­færa er meira spenn­andi en önnur. Þannig útskýrði vanur sjó­hundur eitt sinn hversu illa honum var við neta­veiðar með eft­ir­far­andi sögu: Það væri svo leið­in­legur veiði­skapur, að jafn­vel Jesús Kristur hefði gengið í land, í miðjum túr á Galí­leu­vatni. Með fylgdi svo sög­unni, að guðs­son­ur­inn hefði meira að segja fúlsað við fari í land með línu­bát, af ótta við að um borð væri beitn­ing­ar­vél, sem hann þyrfti að taka vakt­ina á.

Svo erfið væri vinnan um borð í línu­bátum.

Lík­leg­ast er sagan hér að ofan lygi, þó að hún lýsi ágæt­lega við­horfum sjó­manns­ins sem sagði hana.  Jesús gekk heldur aldrei í land, heldur úr landi áleiðis um borð í bát læri­svein­anna sem höfðu ætlað yfir Galí­leu­vatn en hreppt óvænt veður. En það er önnur saga. Rétt eins og sú af því hvernig yfir­völd sjáv­ar­út­vegs­mála leystu það að sami Jesús gerði þús­undir fiska úr tveimur. Dugði honum kvóti fyrir tveimur fiskum eða öllum fimm þús­und?

Áhöfn­inni á Páli Jónssyni GK, sem er önnur tveggja áhafna íslenska línu­skipa­flot­ans sem er í for­grunni raun­veru­leika­sjón­varps­ins Ice Cold Catch á sjón­varps­stöð­inni Discovery, myndi seint líð­ast að koma í land með þús­und þorska, haf­andi ein­ungis kvóta fyrir tveimur. Þætt­irnir voru nýlega sýndir í Banda­ríkj­unum og víðar, en hafa verið aðgengi­legir áskrif­endum Stöðvar 2 síðan um ára­mót og vakið nokkra athygli.

Þætt­irnir hverf­ast um tvo land­krabba sem sendir eru til Íslands, þar sem þeir þurfa að sanna sig í háseta­störfum um borð í tveimur grind­vískum línu­skipum, Valdi­mari GK og Páli Jónssyni. Þætt­irnir byggja á vin­sældum þátt­anna Dea­d­liest Catch, sem fjalla um bar­áttu krabba­veiði­manna á aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna. Caitlin Krause, ung bresk kona, var annar þátt­tak­enda í þætt­inum. Hún munstr­aði sig um borð í Pál Jónsson haustið 2021, í þeirri von að geta haldið og stað­ist þriggja vikna reynslu­tíma og þannig öðl­ast rétt til að róa áfram í mánuð í við­bót. Verð­launin voru sann­kallað slor, en veg­leg: fleiri millj­óna króna háseta­hlutur á afla­hæsta skipi ver­tíð­ar­innar.

„Þetta byrj­aði þannig að vin­kona mín tagg­aði mig við Facebook-póst þar sem aug­lýst var eftir nýliðum til að fara um borð í tog­ara í sjón­varps­þætti,“ segir Caitlin Krause, í sam­tali við Heim­ild­ina. Hún ákvað að slá til, efins um að hún yrði fyrir val­inu. Eftir að hafa verið kölluð í við­tal, og tvö til við­bótar, var henni boðið með. Eftir tafir vegna Covid kom svo kallið í sept­em­ber 2021.

„Geturðu komið til Íslands eftir mánuð?“ hefur Caitlin eftir sím­talið frá fram­leið­endum þátt­anna. Hún hafði í milli­tíð­inni ákveðið að ná sér í rétt­indi til að starfa á sjó og farið úr því að vinna við rafsuðu í það að vera þerna um borð í lúx­us­snekkju sem sigldi um Mið­jarð­ar­hafið. Hvorugt þess­ara starfa hafi þó und­ið­búið hana undir það sem beið hennar á bryggj­unni á Skaga­strönd mán­uði eftir sím­talið.

„Ég kom til Íslands tíu dögum fyrr og var síðan vakin einn morg­un­inn, bundið fyrir augun á mér og síðan leyst frá,“ segir Caitlin sem kveðst hafa orðið fyrir áfalli þegar rann upp fyrir henni hvert og út í hvað hún væri nú komin. 

„Það mun­aði svo litlu að ég færi bara að gráta þar sem ég stóð þarna á bryggj­unni og þetta risa­stóra skip blasti við mér.“

Í aðgerðCaitlin Krause með tvo væna þorska í tak­inu.

Lyktin, hávað­inn og allt þetta fram­andi umhverfi um borð var yfir­þyrm­andi. „Þarna var ég, rúm­lega einn og fimm­tíu á hæð, og allir háset­arnir risa­stórir og sterkir. Þegar ég labb­aði upp land­gang­inn, eftir að hafa verið sagt að um borð biði mín skip­stjór­inn með frek­ari fyr­ir­mæli, sagði ég við sjálfa mig: Hvað ertu búinn að koma þér í, Caitlin? Ég hafði ekki hug­mynd um hvern djöf­ul­inn ég hafði komið mér út í. Ég vissi ekk­ert um hvað sneri upp eða niður á þessu veið­ar­færi, hvað þá hvernig unnið væri með það eða yfir­leitt þarna um borð.“ 

Á leið­inni út Húnafló­ann um kvöldið var Caitlin sagt að eflaust færi best á því að hún reyndi að leggja sig fyrir vakt­ina sem hæf­ist klukkan fjögur að morgni næsta dags. 

„Um nótt­ina bankar Ingó vakt­formaður hjá mér og segir mér að nú sé komið að þessu. Fyrsta verkið mitt var að taka afþíddan smokk­fisk og raða í beitn­ing­ar­vél,“ segir hún og hryllir sig við til­hugs­un­ina um fyrstu vakt­ina. Lyktin, lætin og hreyf­ingin á skip­inu voru upp­skrift að sjó­veiki. Fyrstu vakt­ina stóð Caitlin því ýmist við beitn­ing­ar­vél­ina og rað­aði smokk­fiski eða við borð­stokk­inn og ældi.

„Þetta var aga­legt og auð­vitað gat ég ekki gert það sem mig lang­aði helst, að til­kynna þeim að þetta væri orðið ágætt en nú færi ég bara að hvíla mig,“ segir hún hlæj­andi og prísar sig sæla að hafa losnað snemma við sjó­veik­ina og ekki fundið fyrir henni þann tíma sem hún var í áhöfn Páls, þó vissu­lega hafi brælt hressi­lega. Um það hvernig svo gekk hjá Caitlin og kollega hennar á Valdimar er ekki rétt að upp­lýsa um frekar, fyrir þá sem ekki hafa séð þætt­ina, sem hafa notið óvæntra vin­sælda hér á landi.

Þegar Stöð 2 ákvað að taka þá til sýn­ingar var til að mynda lítið gert af því að aug­lýsa þætt­ina sér­stak­lega og því hafa vin­sældir þeirra að sögn komið mjög á óvart.

Kafteinn Benni

Ice Cold Catch lýsa ekki ein­göngu bar­áttu land­krabbanna við að fóta sig um borð í línu­bát­unum íslensku. Í aðal­hlut­verkum eru einnig nokkrir áhafn­ar­með­limir, og þá ekki síst hin brosmilda afla­kló „captain Benni“, skip­stjóri á Páli Jónssyni GK. Benedikt Páll Jónsson heitir skip­stjór­inn fullu nafni. Og, já, þeir eru nafnar skip­stjór­inn og skipið. Um til­urð þátt­anna segir Benni, í sam­tali við Heim­ild­ina:

„Við vorum kall­aðir á fund hjá útgerð­inni ein­hverjum mán­uðum áður og sagt að Discovery væri að fal­ast eftir þessu. Við hefðum auð­vitað getað neitað en við fundum það alveg að það var svona frekar ætl­ast til þess að við létum slag standa.“ 

Kafteinn­inn við rattið. Aflaklóin úr Arn­ar­firði, Benedikt Páll Jónsson, stuttu áður en lagt var í hann úr höfn í byrjun febr­úar frá Skaga­strönd.

Sjálfum leist Benna vel á hug­mynd­ina og eftir sam­ræður við karl­ana um borð hafi verið ákveðið að slá til.

„Eðlilega voru menn mis­hrifnir af því að vera þátt­tak­endur í sjón­varps­þætti og sumir báðu um að vera ekki í mynd, sem var bara sjálf­sagt og eitt­hvað sem fram­leið­end­urnir sam­þykktu.“ Benni seg­ist hafa litið á þætt­ina sem tæki­færi til að gefa fólki, ekki síst hér á Íslandi, smá inn­sýn inn í lífið til sjós. 

„Það hefur orðið mikil breyt­ing og þetta starf svo­lítið að fjar­lægj­ast okkur, frá því sem var þegar þetta var það sem allir ungir menn horfðu helst til að gera, eins og þegar ég var að alast upp.“ Sam­starfið við tökuliðið og fram­leið­end­urna þann tíma sem á tökum stóð segir hann hafa gengið vel.

„Það er auð­vitað hell­ings álag að fá allt í einu tveggja manna tökulið um borð, sem stendur yfir okkur svo að segja allan sól­ar­hring­inn. Það þurfti auð­vitað að gera smá til­fær­ingar hér hjá okkur um borð en það tókst allt saman. Við fengum líka ágætis inn­sýn í hversu mikil vinna er á bak við svona sjón­varps­upp­tökur. Álagið var ekki síst á töku­menn­ina. Maður dáð­ist alveg að því hvað þeir, eða öllu heldur þær, stóðu sig vel.“

Keypti sinn eigin Pál Jónsson

Skip­stjór­inn á Páli seg­ist ánægður með útkom­una. Þætt­irnir virð­ast líka fara vel í land­ann og spyrj­ast vel út. Gamlir sjó­hundar og land­krabbar í bland, segja honum að þeir hafi fest yfir þátt­unum og bar­áttu Benna og hans fólks við dyntótt veður og veiði á mið­unum. En líka bar­átt­unni um bleyð­una, veiði­svæðin.

Og um háset­ann, land­krabbann Caitlin, segir Benni:

„Hún stóð sig alveg djöf­ull vel. Það verður líka að segj­ast að ég hafði ekki mikla trú á þess­ari písl sem mætti um borð. En ég var líka með það í huga að oft hefur það gerst að þessir stóru og sterku eru oft þeir sem gef­ast fyrst upp, á meðan hinir sem líta kannski ekki út fyrir að vera til stór­ræð­anna end­ast miklu betur í þessum störfum um borð. Og það átti sann­ar­lega við um hana.“

Það er á þeim báðum að heyra að milli Caitlin og áhafn­ar­innar hafi mynd­ast gott vina­sam­band. Caitlin sjálf lýsir áhöfn­inni eins og einni stórri fjöl­skyldu. Sem hún er að vissu leyti bók­staf­lega. Til að mynda eru þrír synir Benna skip­stjóra í áhöfn­inni. En þar fyrir utan sé áhöfnin sam­stillt og virð­ing borin fyrir hverjum og einum um borð.

Caitlin og Páll IICaitlin nýtti háseta­hlut­inn eftir ver­tíð­ina á Páli GK meðal ann­ars til þess að kaupa sér þennan hús­bíl. Bílinn nefndi hún PJ eftir upp­hafs­stöfum línu­báts­ins grind­víska.

„Áhöfnin á Páli er svo­lítið eins og ein stór fjöl­skylda sem ég gekk bara inn í og hugs­aði rosa­lega vel um mig. Og þá á ég ekki við að þeir hafi hlíft mér við stör­f­unum um borð eða gefið mér ein­hvern afslátt af vinn­unni, alls ekki,“ segir Caitlin. Hún seg­ist hafa orðið mjög með­vituð um það að á henni hvíldi umfram pressa, að standa sig. Áskorun sem hún kveðst hafa tekið.

„Ég kveið því ekk­ert sér­stak­lega að fara að vinna á svona karla­vinnu­stað, ég hafði alveg verið eina stelpan á stórum karla­vinnu­stað áður. Ég var mjög með­vituð um það strax í upp­hafi að ég væri þarna stelpan í þætt­inum og ég hugs­aði oft um það að ég mætti hvorki slá slöku við eða gef­ast upp því það yrði mögu­lega notað til þess að afgreiða alla kven­þjóð­ina sem ófæra um að sinna þessu starfi. Það hjálp­aði hell­ing, þegar ég var við það að bug­ast, sem ég var auð­vitað oft, enda er þessi vinna erfið og aðstæð­urnar enn erf­ið­ari. Og ég vil að konur og stelpur horfi á þetta og sjái að úr því að ég gat stað­ist þessar vikur þarna um borð, geti þær það.“

Caitlin seg­ist halda sam­bandi við áhöfn­ina eftir ver­una um borð í fyrra­vetur. Á meðan hefur hún komið sér fyrir um borð í nýjum Páli Jónssyni, þar sem hún er sjálf við stýrið. 

„Ég keypti mér  hús­bíl, sem gefur mér tæki­færi til að ferð­ast og skoða heim­inn. Ég fór til að mynda til Wales í síð­asta mán­uði og ferð­að­ist um í bílnum, það var frá­bært. Ég nefndi bíl­inn PJ, eftir Páli Jónssyni,“ segir hún. Aðspurð um hvort vin­sældir þátt­anna, eftir sýn­ingu þeirra víða um heim, hafi fært henni frægð og frama: „Ég hef bætt við mig ein­hverjum 300 fylgj­endum á Instagram, það er nú allt og sumt,“ segir hún glettin um við­brögðin og kveðst vel til­búin í aðra þátta­röð af Ice cold catch. „Ég væri alveg til í sum­ar­ver­tíð núna, þó ekki nema til að sjá dags­ljósið aðeins,“ sagði Caitlin Krause, fyrr­ver­andi háseti á Páli Jónssyni GK í sam­tali við Heim­ild­ina.

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár