KGB-maðurinn lokar safni andófsmannsins á „afmæli“ innrásar

KGB-maðurinn lokar safni andófsmannsins á „afmæli“ innrásar
Sakharov og Pútin. Annar þeirra barð­ist ein­arð­lega fyrir mann­rétt­indum og helgi mann­lífs­ins. Hinn berst jafn ein­arð­lega gegn hvoru tveggja.

Einn hug­rakkasti and­ófs­mað­ur­inn gegn þeirri kúgun og þeim mann­rétt­inda­brotum sem við­geng­ust í Sov­ét­ríkj­unum var kjarneðl­is­fræð­ing­ur­inn Andrei Sakharov. Hann átti á sínum tíma mik­inn þátt í að þróa sov­ésku vetn­is­sprengj­una en sner­ist síðan gegn stjórn­völdum í landi sínu og hóf óþreyt­andi bar­áttu gegn kúg­un­ar­stjórn­inni.

Árið 1975 fékk Sakharov frið­ar­verð­laun Nóbels fyrir bar­áttu sína. Hann fékk að sjálf­sögðu ekki að fara til Stokk­hólms að taka við verð­launum en það gerði kona hans Yelena Bonner fyrir hans hönd.

Síðar var Sakharov sendur í „útlegð inn­an­lands“ eins og það var kallað og dvaldi í mörg ár í borg­inni Gorkí. Alltaf hélt hann mann­legri reis sinni.

Þetta var á árunum 1980-1985.

Sakharov dó 1989 og lifði því ekki að sjá upp­lausn kúg­un­ar­rík­is­ins þótt mjög væri þá farið að trosna úr því.

Yelena Bonnervar ekki síður hug­rakkur and­ófs­maður en eig­in­maður hennar. Hún skrif­aði líka stór­merkar æviminn­ingar. Yelena dó 2011.

Hug­dirfska og æðru­leysi Sak­harovs gagn­vart drunga­legu ægi­valdi Komm­ún­ista­flokks­ins og leyni­þjón­ust­unnar KGB verða lengi í minnum höfð.

Einmitt til að halda þeirri minn­ingu á lofti var veg­legu safni um Sakharov komið upp í Moskvu árið 1996 og var lengi fjöl­sótt.

En sama árið og Sakharov fékk Nóbels­verð­launin gekk 23 ára piltur frá Lenín­grad til liðs við leyni­þjón­ust­una KGB.

Sá hafði hvorki hug­mynda­flug né hug­rekki né mann­kær­leik til að berj­ast gegn kúgun og ofríki. Þvert á móti sá hann ekk­ert athuga­vert við þvíum­líkt og vildi taka þátt í að við­halda því.

Og þegar Sakharov var í útlegð í Gorkí var ungi KGB-mað­ur­inn kom­inn til starfa í Austur-Þýska­landi við að berja niður frels­is­þrá fólks bæði þar og ann­ars staðar.

Vladimír Vla­dimírovitsj Pútin.

Og um síðir náði KGB aftur völdum í Rúss­landi í líki hans.

Árið 2014 byrj­aði gamli KGB-mað­ur­inn að þjarma að safn­inu um and­ófs­mann­inn knáa. Pútin var þá far­inn að viðra næsta opin­ber­lega þann draum sinn að end­ur­reisa Sov­ét­ríkin sem Sakharov hafði barist gegn.

Safnið um hinn hug­rakka and­ófs­mann var þá flokkað sem óvinur rík­is­ins því það „veitti útlend­ingum aðstoð“ — ein­hvern veg­inn svo­leiðis var það orðað. Og þar með var safnið svipt öllum opin­berum stuðn­ingi.

Og nú á dög­unum var safn­stjór­anum til­kynnt að loka ætti safn­inu eigi síðar en 24. febr­úar.

Sakharov-safn­inu í Moskvu er gert að loka end­an­lega.Myndina tók Marina Turtén­kova fyrir Le Monde.

Dag­setn­ingin er vita­skuld ekki út í hött, þótt safn­stjór­inn Natalja Tjúrina hafi ekki viljað lesa neitt í það þegar blaða­menn Le Monde í Frakk­landi höfðu sam­band við hana á dög­unum.

Hún var þá önnum kafin við að pakka niður safn­grip­unum svo allt yrði örugg­lega komið út á til­settum degi.

Þeim degi þegar gamli KGB-mað­ur­inn mun „halda upp á “ að rétt ár verður liðið frá inn­rás hans í Úkraínu. 

Enn eitt dæmið um að end­ur­reisn Sov­ét­ríkj­anna er í fullum gangi.

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár