Tekist á um völd seðla­banka­stjóra Í frum­varpi Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra um Seðla­banka Íslands og skýrslu þriggja erlendra sér­fræð­inga um bank­ann koma fram ólíkar hug­myndir um völd seðla­banka­stjóra í bank­anum. Ásgeir Jónsson er starf­andi seðla­banka­stjóri. Mynd: Heiða Helgadóttir

Átökin um völd Ásgeirs

Á bak við tjöldin eiga sér nú stað átök í stjórn­sýslu og stjórn­málum á Íslandi sem hverf­ast um emb­ætti og per­sónu seðla­banka­stjóra. Gagn­rýnendur Ásgeirs Jóns­sonar telja að völd hans séu orðin of mikil innan bank­ans á meðan aðrir telja að seðla­banka­stjóri þurfi þessi sömu völd, til að standa vörð um sjálf­stæði Seðla­bank­ans í bar­átt­unni við sér­hags­muna­öfl. Inn í þessi átök bland­ast svo for­sæt­is­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dóttir og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra.

Fyrir Alþingi liggur laga­frum­varp frá Katrínu Jak­obs­dóttur um Seðla­banka Íslands. Frum­varpið er veru­lega umdeilt sökum þess hvernig það gerir ráð fyrir því að auka völd seðla­banka­stjóra enn frekar frá því sem nú er.  Samkvæmt því á seðla­banka­stjóri, sem í dag er Ásgeir Jónsson, að verða for­maður fjár­mála­eft­ir­lits­nefndar bank­ans. Það er eina fasta­nefnd bank­ans sem seðla­banka­stjóri stýrir ekki, eins og staðan er í dag. Katrín Jak­obs­dóttir skip­aði Ásgeir sem seðla­banka­stjóra árið 2019. 

Aukin samþjöppun valds eða aukin valddreifing?

Þessi fyr­ir­hug­aða breyt­ing er gagn­rýnd í skýrslu þriggja erlendra sér­fræð­inga sem greindu hvernig sam­ein­ing Seðla­banka Íslands og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins í árs­byrjun 2020 hefði gengið og mæltu með öðrum leiðum til að bæta starf fjár­mála­eft­ir­lits­nefndar. Skýrslan kom út í lok jan­úar.

Höfundar skýrsl­unnar telja að of mikil sam­þjöppun valds sé hjá seðla­banka­stjóra og að þessi breyt­ing muni hugs­an­lega auka hana. Þetta er talið geta grafið enn frekar undan góðum stjórn­ar­háttum í bank­anum þar sem vald­dreif­ing …

Kjósa
43
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Johannes Karlsson skrifaði
    Það myndi auðvelda lestur mikið ef notast væri við hlekki á rammagreinar!
    0
  • Ásta Jensen skrifaði
    Ég vil að þessi Ásgeir verði rekin. Hann segir að hækkanir launa láglaunafólks sé ástæðan fyrir verðbólgu. Þessi maður þarf að fara frá
    1
    • Kári Jónsson skrifaði
      Eg vill fyrir hönd almennings landinu að fólkið sem Bjarni Ben skipar hirði pokann sinn, veruleikinn er að Bjarni Ben er nánast 100% valdaður af þessu fólki og kemst þannig upp með spillinguna sem blasir við öllu fólki með heila í hausnum, nkl einsog með Lindarhvols-skýrslu Sigurðar Þórðarsonar sem fæst ekki birt vegna neitunavalds Birgis Ármannssonar í forsætisnefnd, blaðamenn/stjórnarandstöðu-þingmenn eru úræðalausir gagnvart VALDNÍÐSLU Bjarna og Birgis. Minni á grein Þorsteins Sæmundssonar á Vísi þar sem hann skorar á Bjarna Ben að birta skýrslu Sigurðar Þórðarsonar, þar sem vitnað er til orða Bjarna í Silfrinu síðastliðin sunnudag, að þar sé ekkert sem þolir ekki dagsljósið. Auðvitað þolir sú skýrsla ekki dagsljósið, ella væri Birgir Ármannsson ekki búin að sitja á henni allan þennan tíma, það átti sig allir á því.
      1
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Var nú ekki hægt að vinna þessa fréttaskýringu betur?
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabanki Íslands og Ásgeir Jónsson

Mælt með að frumvarp um Seðlabankann verði samþykkt en að valdreifing verði tryggð
FréttirSeðlabanki Íslands og Ásgeir Jónsson

Mælt með að frum­varp um Seðla­bank­ann verði sam­þykkt en að valdreif­ing verði tryggð

Efnahags- og við­skipta­nefnd Alþingis leggur til að frum­varp um Seðla­banka Íslands, sem meðal ann­ars felur það í sér að seðla­banka­stjóri verði for­maður fjár­mála­eft­ir­lits­nefndar, verði sam­þykkt. Nefndin bendir hins vegar á að horft verði til gagn­rýni á stjórn­ar­hætti og verk­lag í Seðla­banka Íslands sem snýst um að tryggja betri vald­dreif­ingu frá seðla­banka­stjóra.
Þingmaður gagnrýnir að Bjarni skipi meirihluta fjármálaeftirlitsnefndar: „Galið fyrirkomulag“
FréttirSeðlabanki Íslands og Ásgeir Jónsson

Þing­maður gagn­rýnir að Bjarni skipi meiri­hluta fjár­mála­eft­ir­lits­nefndar: „Galið fyr­ir­komu­lag“

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar, segir enga arms­lengd á milli stjórn­mála og fjár­mála­eft­ir­lits ef fjár­mála­ráð­herra skipar meiri­hlut­ann í fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd. Hún spurði Bjarna Bene­dikts­son út í málið í nóv­em­ber en hefur enn ekki fengið svör. Spurn­ingar Þor­bjargar tengj­ast þeirri umræðu sem nú fer fram innan stjórn­mála og stjórn­kerfis um Seðla­banka Íslands og fjár­mála­eft­ir­litið.
Starfsmaður fjàrmálaráðuneytisins víkur sæti við meðferð Íslandsbankamálsins
FréttirSeðlabanki Íslands og Ásgeir Jónsson

Starfs­maður fjàr­mála­ráðu­neyt­is­ins víkur sæti við með­ferð Íslands­banka­máls­ins

Guðrún Þor­leifs­dóttir, skristofu­stjóri í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, hefur vikið í sæti við umfjöllun fjár­mála­eft­ir­lits­nefndar á Íslands­banka­mál­inu. Fjár­mála­ráðu­neytið segir að að þetta sé vegna aðkomu ráðu­neyt­is­ins að mál­inu. Fjár­mála­eft­ir­lits­nefndin stýrir því hvernig Íslands­banka­mál­inu lýkur hjá Seðla­banka Íslands.
Forsætisráðherra vill áfram skipa pólitískt í æðsta stjórnvald fjármálaeftirlits
FréttirSeðlabanki Íslands og Ásgeir Jónsson

For­sæt­is­ráð­herra vill áfram skipa póli­tískt í æðsta stjórn­vald fjár­mála­eft­ir­lits

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að gagn­rýni á fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á stjórn­skipu­lagi Seðla­banka Íslands sem hún hefur lagt fram séu ekki and­stæðar þeim hug­myndum sem koma fram í skýrslu þriggja sér­fræð­inga um bank­ann. Hún er ekki sam­mála því að hætta eigi að skipa ytri nefnd­ar­menn í fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár