Efling mun ekki afhenda félagatal sitt

Efling stétt­ar­fé­lag neitar að afhenda rík­is­sátta­semj­ara félaga­tal sitt og telur að hann hafi engar heim­ildir til að fá það afhent. Meðan svo er er ekki hægt að greiða atkvæði um miðl­un­ar­til­lögu rík­is­sátta­semj­ara í kjara­deilu Eflingar og SA. Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar gagn­rýnir Aðal­stein Leifsson rík­is­sátta­semj­ara harð­lega og segir hann hafa kynnt full­trúum ann­arra stétt­ar­fé­laga að hann hyggð­ist leggja fram miðl­un­ar­til­lögu en aldrei hafa haft sam­ráð við Eflingu.

Efling mun ekki afhenda félagatal sitt
Telur rík­is­sátta­semjar ekki hafa kynnt sér málin Sólveig Anna er ómyrk í máli um fram­göngu Aðal­steins Leifs­sonar rík­is­sátta­semj­ara í kjara­deilu Eflingar og SA. Mynd: Heiða Helgadóttir

Efling hyggst ekki afhenda rík­is­sátta­semj­ara félaga­tal sitt. Með því er rík­is­sátta­semj­ara ókleift að láta kjósa um miðl­un­ar­til­lögu þá sem hann setti fram í kjara­deilu stétt­ar­fé­lags­ins og Samtaka atvinnu­lífs­ins (SA) í gær, til­lögu sem gengur út á að Efl­ing­ar­fólk greiði atkvæði um það til­boð sem SA hefur lagt fram. Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar og for­maður samn­inga­nefndar stétt­ar­fé­lags­ins, segir að rík­is­sátta­semj­ari hafi ekk­ert sam­ráð haft við Eflingu um þá til­lögu og að sjón­ar­miða Eflingar gæti hvergi þar. Aftur á móti viti hún til þess að rík­is­sátta­semj­ari hafi rætt áform sín við full­trúa ann­arra verka­lýðs­fé­laga, áður en hann kynnti Sólveigu Önnu þau.

„Miðl­un­ar­til­laga getur ekki verið ein­hliða þving­unar­úr­ræði, eins og þessi til­laga er. Það var ekki neitt sam­ráð haft við Eflingu, ekki neitt. Ég hef tölvu­póst­sam­skipti sem sýna með skýrum hætti og stað­festa að ekk­ert sam­ráð var haft við Eflingu,“ segir Sólveig Anna í sam­tali við Heim­ild­ina.

Segir ríkissáttasemjara reyna að hrifsa til sín kosninguna

Sólveig Anna segir enn fremur að öll máls­með­ferð sem Aðal­steinn Leifsson rík­is­sátta­semj­ari hafi við­haft sé í and­stöðu við ákvæði laga um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur, og að máls­með­ferðin gangi gegn anda stjórn­sýslu­laga. „Það er engin heim­ild sem rík­is­sátta­semj­ari hefur til að hrifsa til sín kosn­ing­una og afhenda hana til Advania. Þegar að miðl­un­ar­til­lögur hafa farið í kosn­ingu þá hefur það verið fram­kvæmt af stétt­ar­fé­lög­unum, rík­is­sátta­semj­ari hefur ekki heim­ild til að taka þær kosn­ingar til sín og vísar enda ekki í neinar slíkar heim­ildir. Þarna er um við­kvæmar per­sónu­upp­lýs­ingar að ræða sem frá­leitt er að við afhendum með aðeins þetta í hönd­unum frá rík­is­sátta­semj­ara. Að svo komnu máli hyggj­umst við ekki afhenda rík­is­sátta­semj­ara félaga­tal Eflingar, það er ein­fald­lega of mörgum spurn­ingum ósvarað af hálfu rík­is­sátta­semj­ara. Í þeim ákvæðum sem hann vitnar til í sínu erindi er ekk­ert sem segir að stétt­ar­fé­lög séu skyldug til að afhenda emb­ætt­inu félaga­tal sitt.“

Spurð hvort að með þess­ari afstöðu sinni sé Efling ekki bara að tefja hið óhjá­kvæmi­lega, að greidd verði atkvæði um miðl­un­ar­til­lög­una, svarar Sólveig því að það sé ekki til­fellið. Það sé ein­fald­lega of mörgum spurn­ingum ósvarað um máls­með­ferð­ina. Hún gagn­rýnir Aðal­stein harð­lega fyrir hans fram­göngu. „Efling hefur farið eftir öllum lögum og reglum sem um félagið gilda, í kjara­samn­ings­við­ræðum, í verk­falls­boðun og svo verk­falls­kosn­ingu. Svo ger­ist þessi ótrú­legi atburður. Rík­is­sátta­semj­ari ætlar sér að þvinga upp á okkur kosn­ingu um kjara­samn­ing sem við getum ekki tekið við. Við höfum ítrekað reynt að koma á fram­færi, með mál­efna­legum og skýrum hætti, að ef við sættum okkur við kjara­samn­ing SGS værum við ekki bara að fá mun lak­ari kjara­samn­ing en þann sem Efling hefur barist fyrir heldur jafn­framt væru hækk­an­irnar sem koma til Efl­ing­ar­fólks allt að 20 þús­und krónum lægri en til ann­arra laun­þega, og stundum enn lægri.“

„Mín afstaða er sú að rík­is­sátta­semj­ari hafi aldrei sett sig inn í málin“
Sólveig Anna Jóns­dóttir
for­maður Eflingar

Sólveig Anna lýsir einnig þeirri upp­lifun sinni að rík­is­sátta­semj­ari hafi verið algjör­lega áhuga­laus um að hlusta á það sem samn­inga­nefnd Eflingar hefði að segja, bæði á fund­inum í gær þegar hann til­kynnti um fram­lagn­ingu miðl­un­ar­til­lög­unnar, en eins fyrr í ferl­inu. „Í þessum svoköll­uðu við­ræðum, og þegar deilan harðn­aði, gerði rík­is­sátta­semj­ari ekki neitt til að ýta á við­semj­endur okkar um að koma með neitt að borð­inu. Hann hefur ekki gert neitt til að opna við­ræð­urnar. Hann hefur verið algjör­lega passívur í okkar garð.

Mín afstaða er sú að rík­is­sátta­semj­ari hafi aldrei sett sig inn í málin. Hann raun­veru­lega skilji ekki mál­flutn­ing Eflingar því hann hafi aldrei kynnt sér þau gögn sem við höfum verið að vinna með. Hann hefur aldrei sýnt því neinn áhuga, hann hefur aldrei óskað eftir því að við færum yfir þetta með honum á dýpt­ina, það hefur aldrei gerst.“

Ræddi miðlunartillöguna við fulltrúa annarra verkalýðsfélaga

Sólveig Anna greinir þá einnig frá því að hún hafi fengið upp­lýs­ingar um að rík­is­sátta­semj­ari hafi, án þess að hafa rætt við Eflingu, talað um það við annað fólk og Eflingu ótengt að hann hyggð­ist leggja fram miðl­un­ar­til­lög­una. „Atburð­ar­rásin er sú að klukkan þrjú í fyrra­dag barst mér sú vit­neskja frá þriðja aðila að rík­is­sátta­semj­ari væri í húsa­kynnum emb­ætt­is­ins að tala við aðila ótengda Eflingu, sem þar væru staddir við vinnu ann­arra kjara­samnn­inga, að hann væri að vinna að miðl­un­ar­til­lögu í kjara­deilu Eflingar og SA. Þá sendi ég honum póst og spurði hvort þetta væri virki­lega rétt. Eftir um tvö klukku­tíma svarar hann mér, fyrst með útúr­snún­ingum um að það sé af og frá að rík­is­sátta­semj­ari sitji á fundum með öðrum og ræði kjara­deilu Eflingar og SA. Svo segir hann: „Ég hef hins vegar ítrekað verið spurður að því, meðal ann­ars af fólki í öðrum stétt­ar­fé­lögum sem eru hér á fundum í ýmsum öðrum málum, hvort miðl­un­ar­til­laga kynni að vera til lausnar deil­unnar. Það hlýtur að vera áleitin spurn­ing.“

Á þeim tíma­punkti sem hann hefur ekki átt eitt ein­asta sam­tal við mig, for­mann Eflingar og for­mann samn­inga­nefndar, um að hann hygg­ist leggja fram miðl­un­ar­til­lögu, þá er hann að ræða það full­trúa ann­arra stétt­ar­fé­laga, og lætur það hljóma sem svo að þeir séu að ýta á hann að gera það.“

Heim­ildin hefur óskað eftir því við Eflingu að fá öll sam­skipti stétt­ar­fé­lags­ins við rík­is­sátta­semj­ara afhent. Enn hefur ekki verið tekin afstaða til þeirrar beiðni.

„Mér var hótað að gripið yrði til ein­hverra ótil­greindra aðgerða ef ég mætti ekki“
Sólveig Anna Jóns­dóttir
for­maður Eflingar

Sólveig Anna lýsir þá furðu sinni á fram­göngu rík­is­sátta­semj­ara varð­andi kynn­ingu á fram­lagn­ingu miðl­un­ar­til­lög­unnar. Hún hafi í eft­ir­mið­dag­inn 25. jan­úar verið boðuð á fund klukkan 9:30 að morgni 26. jan­úar hjá rík­is­sátta­semj­ara. Þangað hafi hún og samn­inga­nefnd Eflingar mætt enda hafi henni hún sætt hót­unum um hvað ger­ast myndi ef þau mættu ekki á þann fund. „Mér var hótað að gripið yrði til ein­hverra ótil­greindra aðgerða ef ég mætti ekki. Ég hef sent rík­is­sátta­semj­ara tölvu­póst þar sem ég óska eftir því að hann skýri hvaða aðgerðir það hefðu átt að vera. Þeim tölvu­pósti hefur ekki verið svarað. Klukkan 10:38, þegar fundi er að ljúka og við erum að ganga út þá spyr ég rík­is­sátta­semj­ara hvenær hann hygg­ist gera þessa miðl­un­ar­til­lögu opin­bera. Hann svarar: Seinna í dag. Þegar við löbbum svo út þá áttum við okkur á því að rík­is­sátta­semj­ari ætlar að halda blaða­mannafud klukkan 11:00. Það eru tutt­ugu mín­útur á milli og hann á þá eftir að tala við full­trúa Samtaka atvinnu­lífs­ins. Þetta er alveg ótrú­legt og ef fólk skilur ekki hversu sjúkt ástand þetta er og hversu ger­sam­lega óásætt­an­legt þetta er að öllu leyti, þá bara veit ég ekki hvað ég á að segja.“

Í tölvu­pósti sem Sólveig Anna sendi í gær fyrir hönd Eflingar í gær til rík­is­sátta­semj­ara sagði að Efling teldi nauð­syn­legt að dóm­stólar skæru úr um lög­mæti aðgerða rík­is­sátta­semj­ara. Spurð hvar slíkt sé á vegi statt og hvert yrði leitað í þeim efnum svar­aði Sólveig Anna ein­ungis: „Við erum að vinna í því í dag.“

Heim­ildin reyndi að ná sam­bandi við Aðal­stein Leifsson rík­is­sátta­semj­ara við vinnslu frétt­ar­innar, en án árang­urs. 

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Þetta er sannarlega helsjúkt ástand í þessu þjóðfélagi. Áfram Sólveig Anna!
    0
  • JT
    Jón Torfason skrifaði
    Er það rétt að ríkissáttasemjari sé eða hafi verið kennari við Háskólann í Reykjavík? Er það rétt að Halldór Þorbergsson sitji í skólanefnd þess skóla?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaradeila Eflingar og SA

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár