1008. spurningaþraut: Bækur og mótorhjól

1008. spurningaþraut: Bækur og mótorhjól

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað er að ger­ast á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver er höf­uð­borgin í ríki Palest­ínu­manna?

2.  Hvers konar dýr er íbis?

3.  Skáldsagan Lungu fékk Íslensku bók­mennta­verð­launin á dög­unum — eða öllu heldur höf­undur hennar. Hvað heitir hann?

4.  En hvað heitir jarð­skjálfta­fræð­ing­ur­inn sem vann verð­laun í flokki fræði­bóka?  

5.  Á sínum tíma var jarð­skjálfta­fræð­ing­ur­inn einna kunn­astur fyrir póli­tíska bar­áttu sína sem hann háði lengst af innan sam­taka sem nefnd­ust ... hvað?

6.  Chianti rauð­vín er fram­leitt í ... hvaða landi?

7.  Á sínum tíma bár­ust reglu­lega fréttir af blóð­ugri bar­áttu tveggja mót­or­hjóla­klúbba um völdin í und­ir­heimum Norð­ur­land­anna. Annar klúbbanna og sá fræg­ari var stofn­aður í Banda­ríkj­unum 1948 en telur nú klúbba í 59 löndum þegar síð­ast frétt­ist. Klúbb­ur­inn hefur m.a.s. reynt að hasla sér völl á Íslandi. Hvað nefn­ist þessi frægi mót­or­hjóla­klúbbur?

8.  Meðlimir klúbbs­ins láta helst ekki sjá sig nema á einni til­tek­inni gerð af mót­or­hjólum. Hvað heitir sú gerð?

9.  En um það bil hversu margir skyldu vera með­limir í þessum klúbbi um víða ver­öld? Eru sannir með­limir um það bil 3.500 — 35.000 — 350.000 — eða 3,5 milljón?

10.  Hvað er híjab?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Konan á mynd­inni hér að neðan var kosin for­seti í landi sínu árið 2020, fyrst kvenna. Hún er reyndar ekki þjóð­kjörin, heldur kaus þingið í land­inu hana, enda hefur for­seti lítil völd í þessu landi. Í hvaða landi er þessi kona for­seti?

Og svo er sér­stakt for­seta­stig í boði fyrir þau (eflaust sára­fáu) sem vita hvað konan heitir!

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Jer­úsalem.

2.  Fugl.

3.  Pedro Gunn­laugur Garcia. Skírn­ar­nöfnin duga.

4.  Ragnar Stef­áns­son, en ég ætla líka að gefa rétt fyrir Ragga skjálfta!

5.  Fylk­ingin.

6.  Ítalíu.

7.  Hells Angels.

8.  Harley Davidson.

9.  Með­lim­irnir eru víst ekki nema um 3.500.

10.  Slæða sem múslim­skar konur vefja um hár og höfuð — en hylur and­litið vel að merkja ekki.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er breskt her­skip að sigla á íslenskt varð­skip í einu þorska­stríð­anna. Nákvæmara þarf svarið ekki að vera.

Á neðri mynd­inni er for­seti Grikk­lands, Katerina Sakellaropoulou. Skírn­ar­nafn hennar dugar til for­seta­stigs.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár