Frá Berlín til Íslands – Útvíkkun á formi, afbygging og póstdramatík

Bára Huld Beck spjallaði við íslenskt leik­húsfólk sem hefur starfað á leikhús­senunni í Berlín og flutt stefnur og strauma á milli Berlínar og Reykja­víkur – já, Íslands – og endurnýjað um margt hugmyndir landans um leikhús.

Volksbühne er frægt m.a. fyrir að vera í fremstu röð varðandi listrænt hugrekki en það hefur þó tekið ýmsum breytingum síðustu ár. Arnbjörg segir að áhugaverð þróun eigi sér nú stað með innkoma sterkra kvenradda sem komi ekki úr hinni hefðbundnu leikhússenu.
Volks­bühne er frægt m.a. fyrir að vera í fremstu röð varð­andi list­rænt hug­rekki en það hefur þó tekið ýmsum breyt­ingum síð­ustu ár. Arnbjörg segir að áhuga­verð þróun eigi sér nú stað með inn­koma sterkra kven­radda sem komi ekki úr hinni hefð­bundnu leik­hús­senu. Mynd: Bára Huld Beck

Tenging hefur verið á milli þýsks leikhúss og þess íslenska síðan íslenskir listamenn fóru að venja komur sínar í leikhús sérstak­lega í Berlín á tíunda áratug síðustu aldar. Áhrifin voru áþreifanleg í íslensku leikhúsi um og eftir aldamótin og fram á nýja öld þar sem afbygging var áberandi – og hrist var upp í viðteknum venjum, normið rifið niður og eitthvað nýtt byggt úr rústunum.

Breytti lífinu að kynnast þessari leikhúsmenningu

Egill Heiðar„Ef múr­inn gat fallið þá geta hin fag­ur­fræði­legu prinsipp líka fallið – og hefðir.“

Egill Heiðar Anton Pálsson býr nú í Noregi en hefur dvalið lang­dvölum síðustu áratugi í Berlín – og hefur því mikið verið á ferðinni um Evrópu. Hann fór fyrst til Berlínar árið 1995 þegar hann var búinn með fyrsta árið í Leiklistar­skólanum. „Þar sá ég í fyrsta sinn leiklist í Berlín og þá þetta fræga leikhús Volksbühne.“ Hann segir að sú reynsla hafi breytt lífi sínu. „Af því að ég sá leiklist þarna sem ég hafði aldrei séð áður. Í formi sínu og innihaldi og leikstíls sem ég hafði aldrei kynnst áður, sem varð til þess að ég hélt áfram í leiklist og lærði leik­stjórn.“

Hann segir að þetta hafi haft gríðarleg áhrif á sig sem listamann, þetta þýska leikhús. „Fyrir mér breytti það lífi mínu að kynnast þessari borg – þessari leiklistar­menningu sem er þar.“

Eftir heimkomu í kringum árið 2002 miðlaði hann reynslu sinni í Lista­háskólanum ásamt öðrum sem höfðu verið úti. Hann segir að útgangs­punkturinn hafi verið: „Breytingin byrjar í menntuninni.“ Þannig hafi áhrif þýsks leikhúss farið beint inn í æðar íslenska leik­hússins.

Schaubühne, ásamt Volks­bühne, end­ur­skil­greindi á síð­ustu ára­tugum fyrir og eftir alda­mót hvað leik­hús væri. Egill vann þar um tíma sem aðstoð­ar­leik­stjóri Thomasar Ostermeier. „Þetta hafði gríð­ar­leg áhrif á mig sem lista­mann, þetta þýska leik­hús.“

„Ef múrinn gat fallið þá geta hin fagurfræðilegu prinsipp líka fallið – og hefðir“

Að mati Egils hefur afbygging Franks Castorf, fyrrum leik­hússtjóra í Volksbühne og leik­stjóra, haft mikil áhrif á íslenskt leikhús. Egill útskýrir afbyggingu sem svo að hún sé verkfæri póst­módernismans. „Þú afbyggir samfélagið til að komast að því hverjar byggingar­einingarnar séu.“ Hann segir að listamenn hafi notað ýmsar aðferðir til þess, m.a. með því að leika illa, vera þau sjálf, lesa upp sviðs­lýsingar – sem sagt ekki gert það sem var ætlast til af þeim. Þannig hafi þeir „tekið heiminn í sundur, rifið hann niður“.

Hann segir að byltingin sem kom í kjölfar fall Berlínar­múrsins hafi haft þau áhrif að fólk uppgötvaði að ekkert væri eilíft. „Ef múrinn gat fallið þá geta hin fagur­fræðilegu prinsipp líka fallið – og hefðir.“ Hann segir að í því felist gríðarlegt frelsi og mikil orka.

Varðandi íslenskt leikhús þá segir Egill að við þjáumst af „hræðilegri minni­máttarkennd“ en út frá „brjáluðum egóisma“. „Þetta er svo skemmtilega banvæn blanda. Íslensk leiklist býður upp á alla flóru sem þú finnur hvar sem er, í hvaða borg sem er.“

Egill segir þannig vera mikla breidd í íslenskri leiklist. „Mér finnst geggjað að koma heim til Íslands og fylgjast með leik­húsinu þar,“ segir hann og bætir því við að sú menntun sem finna má á Íslandi sé á mjög háu stigi. Hann telur að við eigum að hrósa okkur fyrir það og ekki endilega vera góð með okkur – heldur sátt.

Útvíkkun á „hvað er leikhús“

Arnbjörg María„Helsti mun­ur­inn á íslensku sen­un­inni og þeirri þýsku fyrir utan stærð­ina er þessi mikli nún­ingur á milli stofn­ana­leik­húss og frjálsu sen­unnar og ann­arra list­greina.“

Arnbjörg María Danielsen hefur starfað í sviðs­listum erlendis til fjölda ára. Hún segir að þýska leikhúsið hafi upp úr aldamótum 2000 gengið í gegnum mikla sviptingar hvað varðar aðferða­fræði og nálgun. Þarna byrjaði fólk að skilgreina hið „póst­dramatíska leikhús“ til aðgreiningar frá hinu hefð­bundna „dramatíska“ talleikhúsi.

„Þó að í praxis hafi það sem er kallað póst­dramatískt svo sem alltaf verið til staðar í ýmsum öngum leik­hússins í áratugi og fræðimenn rannsakað þessa þróun í lengri tíma. En þetta verður svona megin­straums­umræða í leikhúsi á þessum tíma. Þessi útvíkkun á „hvað er leikhús“, aukin tenging við gjörninga­list, tækni, hljóðlist, starfræna miðla, endur­skoðun á viðfangs­efnið, persónur og leikendur. Við sjáum mikla aukningu á samvinnu við einstaklinga úr öðrum senum og jaðar­settum hópum í bland við leikara. Og leikara sem eru ekki leikarar. Þar var mikil útvíkkun á forminu og heillandi persónu­leikar sem drifu þetta áfram, ekki hefð­bundnir leik­stjórar.“

Hún segir að áhugavert sé að eitt þekktasta póst­dramatíska leik­skáldið, Renée Pollesch, sé nú leik­hússtjóri í Volksbühne, og stýri þar ásamt öfluga tónlistarkúratornum Marlene „Bürgerkurator“. „Þar er maður að sjá mjög áhuga­verða þróun og það allra áhuga­verðasta þar er innkoma mjög sterkra kvenradda sem koma ekki úr hinni hefð­bundnu leikhús­senu, sem eru að skapa stór­brotin sviðsverk sem sprengja út formið án mála­miðlana.“

Spennandi raddir og tilraunir sem mættu fá meira vægi á Íslandi

Margir hópar í Þýska­landi, óháð Berlín, fá leiða á hinu svokallaða klassíska talleikhúsi og viðfangs­efnum þess, að sögn Arnbjargar Maríu. Hún segir að sjálf­stæðir hópar fari sínar eigin leiðir, skapi á eigin forsendum utan stofnana­leikhússins og séu þannig með allt aðra nálgun á leikhús. „En þau eru í dag orðin nokkurs konar stofnun sjálf,“ bætir hún við.

Þá bendir hún á að í dag lifi hið póst­dramatíska leikhús góðu lífi hlið við hlið hins „klassíska leikhúss“. Margir sem voru í sjálf­stæðu senuninni séu sýnilegir í stóru stofnunum í dag og fagur­fræði og aðferðir víxl­verkandi. „Helsti munurinn á íslensku senuninni og þeirri þýsku fyrir utan stærðina er þessi mikli núningur á milli stofnana­leikhúss og frjálsu senunnar og annarra list­greina.“ Hún segir að á Íslandi hafi ýmsir í gegnum tíðina reynt að hrista upp í íslensku leikhúsi en hún bendir á að það sé frekar hefð­bundið og megin­straums í eðli sínu – þó að það séu virkilega góðar sýningar inn á milli. „En það eru spennandi raddir og tilraunir sem mættu fá meira vægi. Eitthvað sem við sjáum miklu meira af í dans­senunni, mynd­listinni og sjálf­stæðu leikhús­senunni, það er miklu betri umgjörð og fjár­mögnun.“

„Gjörbreytti hugmyndum mínum um hvað leikhús gæti verið“

Þor­leifur Örn„Ísland er mikið nær skand­in­av­ískum nat­úr­al­isma en þarna er tæki afbygg­ing­ar­innar komið inn í leik­húsið í Þýska­landi.

Þorleifur Örn Arnarsson hefur gert garðinn frægan í Berlín og víðar í Þýska­landi en hann hefur sett upp tugi sýninga þar í landi. Hann fór til Berlínar í leikstjóranám eftir að hafa útskrifast sem leikari hér heima.

Hann var alinn upp í ákveðinni leikhús­hefð á Íslandi en ákvað, eftir að hafa farið í heimsókn til Berlínar og séð sýningar þar sem heilluðu hann upp úr skónum, að breyta til og flytja út. Hann heillaðist af aðferða­fræðinni og frelsinu í bæði formi og hugsun. „Þetta gjör­breytti hugmyndum mínum um hvað leikhús gæti verið og ég hugsaði að ef ég ætlaði mér að forma mitt eigið leikhús þá yrði ég að komast inn í þennan skóla í Berlín – og ég komst inn. Þá fór mér að skiljast að ólíkt Íslandi, sem er með tvö stofnana­leikhús og síðan frjálsa leikhópa, þá eru 180 stofnana­leikhús í Þýska­landi og hundruð leikhópa. Í þannig umhverfi er nátt­úrlega framþróun, samtal og suðu­pottur af nýjungum – og af nýrri hugsun,“ bendir hann á.

Leikhús hefur samfélagslegt mikilvægi fyrir Þjóðverja eins og bókmenntir fyrir Íslendinga

Þýska tungu­málið og þjóðríkið sem verður til á ofan­verðri 18. öld og byrjun 19. aldar byggir að svo stórum hluta sjálfs­mynd sína á stóru þýsku skáldunum, að hans sögn. Leikhús hafi samfélagslegt mikilvægi fyrir Þjóðverja á meðan á Íslandi sé það bókmennta­arfurinn. „Ísland er mikið nær skandinavískum natúralisma en þarna er tæki afbyggingarinnar komið inn í leikhúsið í Þýska­landi. Það var búið að frelsa leikhúsið undan höftum hinnar aristótelísku frásagnar­aðferðar.“

Hann bendir jafnframt á að leik­stjórinn hafi gríðarlegt vægi sem annar höfundur í Þýska­landi, enda eru og voru mörg stór skáld þar í landi einnig leik­stjórar. „Í svona samhengi eru takmörk þess sem hægt er að gera svo miklu víðari.“

Þorleifur er með ýmis verkefni í vinnslu, bæði hér heima sem og erlendis, en hann fluttist frá Berlín til Íslands fyrir nokkrum árum. Hann segist vera spenntur fyrir íslensku leikhúsi um þessar mundir þar sem mikil gróska sé innan þess. „Nú þegar miklar samfélags­breytingar standa yfir og raddir sem lengi hafa verið þaggaðar niður fá sviðið, þá getur það ekki annað en haft jákvæð og spennandi áhrif á leikhúsið sem samfélags­lega rannsóknarstöð.“

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár