Alma frysti leiguna hjá fólki og vísaði til samfélagslegrar ábyrgðar

Leigu­félagið Alma frysti leiguna hjá leigjendum sínum um mitt ár á grund­velli aðstæðna í samfélaginu. Félagið sagði að frystingin gilti út þetta ár. Alma hefur nú boðað stífar hækkanir á nýjum leigu­samningum þrátt fyrir að aðstæður í samfélaginu hafi ekki breyst frá miðju ári.

Frystu á miðju ári en hækka níu
Frystu á miðju ári en hækka níu Leigu­fé­lagið Alma frysti leig­una hjá leigj­endum sínum um mitt ár en stífar hækk­anir taka gildi hjá ein­hverjum leigj­endum þess á nýja árinu. Hér eru þrír af eig­end­unum: Gunnar, Eggert og Halldór Gísla­synir.

Alma leigu­félag ákvað um mitt ár að frysta leiguna sem félagið innheimtir hjá leigu­tökum sínum út þetta ár og vísaði fyrir­tækið til samfélagslegra aðstæðna. Þessi frysting átti við um nýja leigu­samninga sem fyrir­tækið gerði við leigjendur sína þegar eldri samningar runnu út. Í tilkynningu frá fyrir­tækinu sagði: „Stjórn Ölmu íbúða­félags hf. hefur tekið ákvörðun um að frá og með morgun­deginum og út árið 2022 verði endurnýjaðir leigu­samningar ekki hækkaðir umfram hækkun vísitölu neyslu­verðs. Mikil óvissa er uppi um þróun efnahags­mála á Íslandi og í heiminum öllum á næstu misserum. Með þessari aðgerð vill stjórn Ölmu íbúða­félags koma til móts við leigutaka fyrir­tækisins og auka fyrirsjáanleika í útgjöldum þeirra á þessu og næsta ári.“

Frystingin hjá Ölmu kom eftir meðal annars þrýsting frá launþega­hreyfingunni, eins og Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hefur lýst í samtali við Stundina. Miðað við nýlegar boðaðar leigu­hækkanir hjá Ölmu þá eiga þau rök …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Björnfríður Þórðardóttir skrifaði
    Aumkunarvert þessi fjölskylda sem á meira enn nóg og vill meira á kostnað þeirra sem minnst hafa .... þyngra enn tárum taki - 77 ára kona með undir 300.000 kr fékk boð um hækkun leigu í febrúar - ellilífeyrisþega og laun duga ekki fyrir leigu eftir hækkun - hún skipti um íbúð í sumar vegna heilsubrest fór af 3 hæð niður á fyrstu og þótt íbúðin væri laus þurfti hún klára að borga eldri íbúð og byrja borga af hinni .....þetta er svo omanneskjulegt sem það getur orðið - vona að karma taki í þessi systkini
    0
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Mikilvægt er að leigjendur sem vilja framlengja leigusamning ÁN ÞESS AÐ LEIGUVERÐ HÆKKI, nýti sér þann rétt sem þeir eiga til þess samkvæmt húsaleigulögum:

    1. mgr. 51. gr.: "Leigjandi íbúðarhúsnæðis skal að umsömdum leigutíma loknum hafa forgangsrétt til leigu þess, svo fremi sem húsnæðið er falt til áframhaldandi leigu í a.m.k. eitt ár."

    1. mgr. 52. gr.: "Vilji leigjandi nota sér forgangsrétt skv. 1. mgr. 51. gr. skal hann tilkynna leigusala það skriflega og með sannanlegum hætti a.m.k. þremur mánuðum áður en leigusamningurinn rennur út við lok uppsagnarfrests eða við lok umsamins leigutíma. ..."

    1. mgr. 53. gr.: "Þegar samningur er endurnýjaður samkvæmt ákvæðum 51. og 52. gr. skal leigufjárhæðin vera sanngjörn og eðlileg í garð beggja aðila. Líkur eru fyrir því að sú leigufjárhæð, sem áður gilti, sé sanngjörn og verður sá sem vefengir það að sýna fram á annað. ..."

    Við þetta má bæta að telji leigjandi fjárhæð leiguverðs ósanngjarna er hægt að kæra hana til kærunefndar húsamála og ef um er að ræða framlengingu leigu á grundvelli forgangsréttar þyrfti leigusali þá að rökstyðja sérstaklega hækkun á leigufjárhæð og færa sönnur á nauðsyn hennar. Frá og með áramótum þarf slík kæra að berast kærunefndinni innan þriggja mánaða frá gildistöku leigusamnings eða samkomulags sem gert er síðar á leigutíma um breytingu á leigufjárhæð, en að öðrum kosti teljast aðilar leigusamnings una ákvörðun leigufjárhæðar.

    Nánari leiðbeininga er m.a. hægt að leita hjá Hagsmunasamtökum heimilanna.

    Leigjendur: verið á varðbergi og nýtið ykkur þann rétt sem þið eigið!
    1
    • Mummi! Þessi lög hef ég einmitt kynnt mér og ég sem leigusali hef haft þau til hliðsjónar gagnvart mínum leigusamningum síðan 2015
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Leigufélagið Alma

FréttirLeigufélagið Alma

Leigu­félagið Alma vill sækja þriggja milljarða fjár­mögnun

Alma leigu­félag heldur áfram að bjóða fjár­festum upp á skulda­bréf og víxla til að fjármagna félagið. Stjórnar­formaður félagsins, Gunnar Þór Gíslason, hefur sagt að sniðganga lífeyris­sjóða á félaginu grafi undan húsnæðis­markaðnum en Alma hefur reynt að fá þá til að fjárfesta í félaginu. Formaður VR. Ragnar Þór Ingólfsson, er á öndverðum meiði og segir lífeyris­sjóðina eiga að sniðganga Ölmu.
VettvangurLeigufélagið Alma

Saga Olgu: „Mér líður eins og svikara“

Úkraínskir flótta­menn í hótel­íbúðum Ölmu við Lindar­götu þurfa að flytja út úr þeim í mars. Samningurinn sem gerður var við Ölmu er einn versti og óhag­stæðasti leigu­samningur sem íslenska ríkið hefur gert. Í húsinu búa úkraínskir flótta­menn sem hafa lent sérstak­lega illa í stríðinu í Úkraínu. Meðal þeirra eru Olga, sem gat ekki verið viðstödd jarðarför foreldra sinna vegna flóttans og Dima, en fjöl­skylda hans hefur þrisvar sinnum þurft að flýja stríðs­átök Rússa.

16 mín. lestur

GreiningLeigufélagið Alma

Þúsund verð­tryggðir leigu­samningar skila Ölmu 230 milljónum á mánuði

Leigu­félagið Alma hefur um eitt þúsund heimili til útleigu til einstaklinga. Íbúðirnar eru aðallega stað­settar á höfuð­borgar­svæðinu og á Suðurnesjum; um 800 íbúðir. Í hverjum mánuði tikka 220 milljónir inn í kassann vegna þessara íbúða, auk þess sem virði þeirra hefur vaxið verulega á síðustu árum. Nær allir samningar Ölmu við einstaklinga eru verð­tryggðir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár