Alma frysti leiguna hjá fólki og vísaði til samfélagslegrar ábyrgðar

Leigu­fé­lagið Alma frysti leig­una hjá leigj­endum sínum um mitt ár á grund­velli aðstæðna í sam­fé­lag­inu. Félagið sagði að fryst­ingin gilti út þetta ár. Alma hefur nú boðað stífar hækk­anir á nýjum leigu­samn­ingum þrátt fyrir að aðstæður í sam­fé­lag­inu hafi ekki breyst frá miðju ári.

Frystu á miðju ári en hækka níu
Frystu á miðju ári en hækka níu Leigu­fé­lagið Alma frysti leig­una hjá leigj­endum sínum um mitt ár en stífar hækk­anir taka gildi hjá ein­hverjum leigj­endum þess á nýja árinu. Hér eru þrír af eig­end­unum: Gunnar, Eggert og Halldór Gísla­synir.

Alma leigu­fé­lag ákvað um mitt ár að frysta leig­una sem félagið inn­heimtir hjá leigu­tökum sínum út þetta ár og vís­aði fyr­ir­tækið til sam­fé­lags­legra aðstæðna. Þessi fryst­ing átti við um nýja leigu­samn­inga sem fyr­ir­tækið gerði við leigj­endur sína þegar eldri samn­ingar runnu út. Í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu sagði: „Stjórn Ölmu íbúða­fé­lags hf. hefur tekið ákvörðun um að frá og með morg­un­deg­inum og út árið 2022 verði end­ur­nýj­aðir leigu­samn­ingar ekki hækk­aðir umfram hækkun vísi­tölu neyslu­verðs. Mikil óvissa er uppi um þróun efna­hags­mála á Íslandi og í heim­inum öllum á næstu miss­erum. Með þess­ari aðgerð vill stjórn Ölmu íbúða­fé­lags koma til móts við leigu­taka fyr­ir­tæk­is­ins og auka fyr­ir­sjá­an­leika í útgjöldum þeirra á þessu og næsta ári.“

Fryst­ingin hjá Ölmu kom eftir meðal ann­ars þrýst­ing frá laun­þega­hreyf­ing­unni, eins og Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, hefur lýst í sam­tali við Stundina. Miðað við nýlegar boð­aðar leigu­hækk­anir hjá Ölmu þá eiga þau rök …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Björnfríður Þórðardóttir skrifaði
    Aumkunarvert þessi fjölskylda sem á meira enn nóg og vill meira á kostnað þeirra sem minnst hafa .... þyngra enn tárum taki - 77 ára kona með undir 300.000 kr fékk boð um hækkun leigu í febrúar - ellilífeyrisþega og laun duga ekki fyrir leigu eftir hækkun - hún skipti um íbúð í sumar vegna heilsubrest fór af 3 hæð niður á fyrstu og þótt íbúðin væri laus þurfti hún klára að borga eldri íbúð og byrja borga af hinni .....þetta er svo omanneskjulegt sem það getur orðið - vona að karma taki í þessi systkini
    0
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Mikilvægt er að leigjendur sem vilja framlengja leigusamning ÁN ÞESS AÐ LEIGUVERÐ HÆKKI, nýti sér þann rétt sem þeir eiga til þess samkvæmt húsaleigulögum:

    1. mgr. 51. gr.: "Leigjandi íbúðarhúsnæðis skal að umsömdum leigutíma loknum hafa forgangsrétt til leigu þess, svo fremi sem húsnæðið er falt til áframhaldandi leigu í a.m.k. eitt ár."

    1. mgr. 52. gr.: "Vilji leigjandi nota sér forgangsrétt skv. 1. mgr. 51. gr. skal hann tilkynna leigusala það skriflega og með sannanlegum hætti a.m.k. þremur mánuðum áður en leigusamningurinn rennur út við lok uppsagnarfrests eða við lok umsamins leigutíma. ..."

    1. mgr. 53. gr.: "Þegar samningur er endurnýjaður samkvæmt ákvæðum 51. og 52. gr. skal leigufjárhæðin vera sanngjörn og eðlileg í garð beggja aðila. Líkur eru fyrir því að sú leigufjárhæð, sem áður gilti, sé sanngjörn og verður sá sem vefengir það að sýna fram á annað. ..."

    Við þetta má bæta að telji leigjandi fjárhæð leiguverðs ósanngjarna er hægt að kæra hana til kærunefndar húsamála og ef um er að ræða framlengingu leigu á grundvelli forgangsréttar þyrfti leigusali þá að rökstyðja sérstaklega hækkun á leigufjárhæð og færa sönnur á nauðsyn hennar. Frá og með áramótum þarf slík kæra að berast kærunefndinni innan þriggja mánaða frá gildistöku leigusamnings eða samkomulags sem gert er síðar á leigutíma um breytingu á leigufjárhæð, en að öðrum kosti teljast aðilar leigusamnings una ákvörðun leigufjárhæðar.

    Nánari leiðbeininga er m.a. hægt að leita hjá Hagsmunasamtökum heimilanna.

    Leigjendur: verið á varðbergi og nýtið ykkur þann rétt sem þið eigið!
    1
    • Mummi! Þessi lög hef ég einmitt kynnt mér og ég sem leigusali hef haft þau til hliðsjónar gagnvart mínum leigusamningum síðan 2015
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Leigufélagið Alma

FréttirLeigufélagið Alma

Leigu­fé­lagið Alma vill sækja þriggja millj­arða fjár­mögnun

Alma leigu­fé­lag heldur áfram að bjóða fjár­festum upp á skulda­bréf og víxla til að fjár­magna félagið. Stjórn­ar­for­maður félags­ins, Gunnar Þór Gíslason, hefur sagt að snið­ganga líf­eyr­is­sjóða á félag­inu grafi undan hús­næð­is­mark­aðnum en Alma hefur reynt að fá þá til að fjár­festa í félag­inu. Formaður VR. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, er á önd­verðum meiði og segir líf­eyr­is­sjóð­ina eiga að snið­ganga Ölmu.
GreiningLeigufélagið Alma

Leigu­fé­lagið Alma stærir sig af sam­fé­lags­legri ábyrgð og segir ávinn­ing hlut­hafa og almenn­ings fara saman

Í nýjum árs­reikn­ingi Leigu­fé­lags­ins Ölmu svarar félagið fyrir leigu­verðs­hækk­anir sínar. Félagið und­ir­strikar að það sé sam­fé­lags­lega ábyrgt og rök­styður að hækk­anir leigu­verðs séu stundum bæði eðli­legar og óhjá­kvæmi­legar. Félagið hefur verið harð­lega gagn­rýnt fyrir okur.
VettvangurLeigufélagið Alma

Saga Olgu: „Mér líður eins og svik­ara“

Úkra­ínskir flótta­menn í hót­el­í­búðum Ölmu við Lind­ar­götu þurfa að flytja út úr þeim í mars. Samn­ing­ur­inn sem gerður var við Ölmu er einn versti og óhag­stæð­asti leigu­samn­ingur sem íslenska ríkið hefur gert. Í hús­inu búa úkra­ínskir flótta­menn sem hafa lent sér­stak­lega illa í stríð­inu í Úkraínu. Meðal þeirra eru Olga, sem gat ekki verið við­stödd jarð­ar­för for­eldra sinna vegna flótt­ans og Dima, en fjöl­skylda hans hefur þrisvar sinnum þurft að flýja stríðs­á­tök Rússa.

16 mín. lestur

GreiningLeigufélagið Alma

Þúsund verð­tryggðir leigu­samn­ingar skila Ölmu 230 millj­ónum á mán­uði

Leigu­fé­lagið Alma hefur um eitt þús­und heim­ili til útleigu til ein­stak­linga. Íbúð­irnar eru aðal­lega stað­settar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Suð­ur­nesjum; um 800 íbúðir. Í hverjum mán­uði tikka 220 millj­ónir inn í kass­ann vegna þess­ara íbúða, auk þess sem virði þeirra hefur vaxið veru­lega á síð­ustu árum. Nær allir samn­ingar Ölmu við ein­stak­linga eru verð­tryggðir.

Mest lesið

4
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár