Leigufélagið Alma lánaði Mata-systkinunum 7 milljarða til að kaupa sig

Nýir eig­endur Ölmu leigu­fé­lags áttu í stór­felldum inn­byrðis við­skiptum með fyr­ir­tæki sín á sama tíma og þeir keyptu fyr­ir­tækið í fyrra. Alma fjár­magn­aði kaup Mata-systk­in­anna með láni og systk­inin seldu Ölmu leigu­fé­lag á rúma 11 millj­arða með láni. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir að hækk­anir Ölmu á leigu­verði séu ógeð­felldar en hann hefur reynt að fá fyr­ir­tækið til að sleppa því að hækka leig­una.

Leigufélagið Alma lánaði Mata-systkinunum 7 milljarða til að kaupa sig
Lán frá Ölmu Nýir eig­endur Ölmu leigu­fé­lags fengu lán frá félag­inu til að eign­ast það. Hér eru þrír af eig­end­unum: Gunnar, Eggert og Halldór Gísla­synir.

Leigu­fé­lagið Alma fjár­magn­aði að stærstum hluta kaupin á sjálfu sér þegar Mata-systk­inin eign­uð­ust leigu­fé­lagið á síð­asta ári. Alma, sem leigir út 1.100 íbúðir til ein­stak­linga og fjöl­skyldna, var áður í eigu Kviku banka. 

Í árs­reikn­ingi Ölmu íbúða­fé­lags kemur fram að félagið hafi í fyrra lánað út tæpa 7 millj­arða króna. Sama upp­hæð kemur fram í yfir­liti yfir ný lán í árs­reikn­ingi eign­ar­halds­fé­lags Mata-systk­in­anna, Langasjó ehf. Það félag heldur utan um eign systk­in­anna í Ölmu.

Lánið frá leigu­fé­lag­inu gerði Langasjó kleift að gera upp meiri­hluta kaup­verðs­ins, eða 7 millj­arða af þeim 11 millj­örðum króna sem Kvika fékk fyrir Ölmu.

Alma leigu­fé­lag fjár­magn­aði því stóran hluta af kaup­unum í sjálfu sér, sam­kvæmt þessu. 

Arfur frá GAMMA

Leigu­fé­lagið Alma hét áður Almenna leigu­fé­lagið og var stofnað af GAMMA á …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Haraldsson skrifaði
    Þetta er ógeðslegt og við látum þetta viðgangast.
    Verst af þessu öllu er að Ragnar Þór gaf eftir og samþykkti launalækkun með auka framlagi frá Ríkissjóði (okkur sjálfum) í leigubætur.
    0
  • sigursteinn Tómasson skrifaði
    Skipulega aðferðir til skattsvika.
    0
  • SE
    Sævar Einarsson skrifaði
    Djöfulsins snilld! maður getur bara lánað sér aur til að kaupa eitthvað, þetta er nottla bara snilld! Svo er víst hægt að breita skuldum í hlutafé, maður er bara á kolrangri hillu í lífinu!
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Leigufélagið Alma

FréttirLeigufélagið Alma

Leigu­fé­lagið Alma vill sækja þriggja millj­arða fjár­mögnun

Alma leigu­fé­lag heldur áfram að bjóða fjár­festum upp á skulda­bréf og víxla til að fjár­magna félagið. Stjórn­ar­for­maður félags­ins, Gunnar Þór Gíslason, hefur sagt að snið­ganga líf­eyr­is­sjóða á félag­inu grafi undan hús­næð­is­mark­aðnum en Alma hefur reynt að fá þá til að fjár­festa í félag­inu. Formaður VR. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, er á önd­verðum meiði og segir líf­eyr­is­sjóð­ina eiga að snið­ganga Ölmu.
GreiningLeigufélagið Alma

Leigu­fé­lagið Alma stærir sig af sam­fé­lags­legri ábyrgð og segir ávinn­ing hlut­hafa og almenn­ings fara saman

Í nýjum árs­reikn­ingi Leigu­fé­lags­ins Ölmu svarar félagið fyrir leigu­verðs­hækk­anir sínar. Félagið und­ir­strikar að það sé sam­fé­lags­lega ábyrgt og rök­styður að hækk­anir leigu­verðs séu stundum bæði eðli­legar og óhjá­kvæmi­legar. Félagið hefur verið harð­lega gagn­rýnt fyrir okur.
VettvangurLeigufélagið Alma

Saga Olgu: „Mér líður eins og svik­ara“

Úkra­ínskir flótta­menn í hót­el­í­búðum Ölmu við Lind­ar­götu þurfa að flytja út úr þeim í mars. Samn­ing­ur­inn sem gerður var við Ölmu er einn versti og óhag­stæð­asti leigu­samn­ingur sem íslenska ríkið hefur gert. Í hús­inu búa úkra­ínskir flótta­menn sem hafa lent sér­stak­lega illa í stríð­inu í Úkraínu. Meðal þeirra eru Olga, sem gat ekki verið við­stödd jarð­ar­för for­eldra sinna vegna flótt­ans og Dima, en fjöl­skylda hans hefur þrisvar sinnum þurft að flýja stríðs­á­tök Rússa.

16 mín. lestur

GreiningLeigufélagið Alma

Þúsund verð­tryggðir leigu­samn­ingar skila Ölmu 230 millj­ónum á mán­uði

Leigu­fé­lagið Alma hefur um eitt þús­und heim­ili til útleigu til ein­stak­linga. Íbúð­irnar eru aðal­lega stað­settar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Suð­ur­nesjum; um 800 íbúðir. Í hverjum mán­uði tikka 220 millj­ónir inn í kass­ann vegna þess­ara íbúða, auk þess sem virði þeirra hefur vaxið veru­lega á síð­ustu árum. Nær allir samn­ingar Ölmu við ein­stak­linga eru verð­tryggðir.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár