Létu maltverskt félag sitt lána sér fyrir leigufélaginu Ölmu og greiða háa vexti

Eigendur Ölmu leigu­fé­lags lán­uðu sjálfum sér pen­inga til að geta fært eign­ar­hald leigu­fé­lags­ins frá Möltu til Íslands. Þeir greiða sjálfum sér vexti af þessu láni og Alma þarf því að skila til­teknum arði til að dæmið gangi upp. Samtals fengu eig­endur Ölmu fimm millj­arða lán hjá eigin félögum á fimm til fimmtán pró­senta vöxtum til að kaupa þessi bréf.

Létu maltverskt félag sitt lána sér fyrir leigufélaginu Ölmu og greiða háa vexti
Frá Möltu til Íslands Eigendur Mata færðu eign­ar­haldið á Möltu­fé­lagi sínu til Íslands í fyrra, á sama tíma og þeir keyptu Ölmu íbúða­fé­lag. Gunnar Þór Gíslason er þekkt­astur systk­in­anna í Mata.

Eigendur leigu­fé­lags­ins Ölmu keyptu fyr­ir­tækið, og færðu eign­ar­hald þess svo úr skatta­skjól­inu Möltu til Íslands, á sama degi í apríl í fyrra. Þetta gerðu eig­end­urnir, Mata-systk­inin svoköll­uðu, með því að láta eign­ar­halds­fé­lag sitt á Möltu selja eign­ar­halds­fé­lagi í þeirra eigu á Íslandi malt­verska félagið með lánum. Kaupverð eign­ar­hluta félags­ins á Möltu sem á eign­ar­hlut­ann í Ölmu var rúm­lega fimm millj­arðar króna og er sam­svar­andi skuld við tengda aðila nú að finna í árs­reikn­ingi fyr­ir­tækis Mata-systk­in­anna á Íslandi. Dag­setn­ingin var 13. apríl 2021.

Mata-systk­inin keyptu Ölmu af Kviku-banka sem hafði eign­ast félagið með yfir­töku á sjóðs­stýr­inga­fyr­ir­tæk­inu Gamma þegar það lenti í rekstr­ar­erf­ið­leikum. 

„[H]efur ekk­ert með græðgi að gera heldur eðli­lega fram­legð af því fjár­magni sem bundið er í rekstr­inum.“
Gunnar Þór Gíslason, stjórn­ar­for­maður og …
Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Elías Sigurðsson skrifaði
    Eru þessir menn svona lélegir "businessmenn"?
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Þetta er örugglega ekki eina málið á Íslandi í formi skattsvika.
    1
  • Hef reyndar verið að furða mig á öllum þessum yfirgengileguhækunum hvar sem er bæði ætu og óætu en enginn skyldi samt deila við dómarann
    0
  • Gudmundur Audunsson skrifaði
    Þetta er þekkt aðferð til þess að færa tekjur í skattaskjól. Félag eigendanna á Möltu lánar sjálfum sér á Íslandi á háum vöxtum til þess að færa gróðann til Möltu. Brynja Bjarnadóttir og fleiri leigendur eru síðan látin borga vextina og gróðinn tekinn út í skattaskjólinu. Ógeðslegt, ekki er bara verið að okra á leigjendum heldur er gróðinn fluttur til Möltu til þess að lágmarka skattagreiðslur á Íslandi. Almenningur tapar allstaðar en braskararnir í Ölmu græða skattlaust.
    10
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Leigufélagið Alma

FréttirLeigufélagið Alma

Leigu­fé­lagið Alma vill sækja þriggja millj­arða fjár­mögnun

Alma leigu­fé­lag heldur áfram að bjóða fjár­festum upp á skulda­bréf og víxla til að fjár­magna félagið. Stjórn­ar­for­maður félags­ins, Gunnar Þór Gíslason, hefur sagt að snið­ganga líf­eyr­is­sjóða á félag­inu grafi undan hús­næð­is­mark­aðnum en Alma hefur reynt að fá þá til að fjár­festa í félag­inu. Formaður VR. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, er á önd­verðum meiði og segir líf­eyr­is­sjóð­ina eiga að snið­ganga Ölmu.
GreiningLeigufélagið Alma

Leigu­fé­lagið Alma stærir sig af sam­fé­lags­legri ábyrgð og segir ávinn­ing hlut­hafa og almenn­ings fara saman

Í nýjum árs­reikn­ingi Leigu­fé­lags­ins Ölmu svarar félagið fyrir leigu­verðs­hækk­anir sínar. Félagið und­ir­strikar að það sé sam­fé­lags­lega ábyrgt og rök­styður að hækk­anir leigu­verðs séu stundum bæði eðli­legar og óhjá­kvæmi­legar. Félagið hefur verið harð­lega gagn­rýnt fyrir okur.
VettvangurLeigufélagið Alma

Saga Olgu: „Mér líður eins og svik­ara“

Úkra­ínskir flótta­menn í hót­el­í­búðum Ölmu við Lind­ar­götu þurfa að flytja út úr þeim í mars. Samn­ing­ur­inn sem gerður var við Ölmu er einn versti og óhag­stæð­asti leigu­samn­ingur sem íslenska ríkið hefur gert. Í hús­inu búa úkra­ínskir flótta­menn sem hafa lent sér­stak­lega illa í stríð­inu í Úkraínu. Meðal þeirra eru Olga, sem gat ekki verið við­stödd jarð­ar­för for­eldra sinna vegna flótt­ans og Dima, en fjöl­skylda hans hefur þrisvar sinnum þurft að flýja stríðs­á­tök Rússa.

16 mín. lestur

GreiningLeigufélagið Alma

Þúsund verð­tryggðir leigu­samn­ingar skila Ölmu 230 millj­ónum á mán­uði

Leigu­fé­lagið Alma hefur um eitt þús­und heim­ili til útleigu til ein­stak­linga. Íbúð­irnar eru aðal­lega stað­settar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Suð­ur­nesjum; um 800 íbúðir. Í hverjum mán­uði tikka 220 millj­ónir inn í kass­ann vegna þess­ara íbúða, auk þess sem virði þeirra hefur vaxið veru­lega á síð­ustu árum. Nær allir samn­ingar Ölmu við ein­stak­linga eru verð­tryggðir.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár