Útsýni og innsýn

Guðrún Eva hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem einn besti skáld­sagna­höf­undur sem skrifar á íslensku og höf­und­ar­verkið er orðið mikið að vöxtum á þeim tæpa ald­ar­fjórð­ungi sem lið­inn er síðan fyrsta bók hennar kom út.

Útsýni og innsýn
Bók

Útsýni

Höfundur Guðrún Eva Mínervudóttir
Bjartur
368 blaðsíður
Gefðu umsögn

Nýjasta skáld­saga Guðrúnar Evu Mínervu­dóttur, Útsýni, fjallar um útsýni en hún fjallar ekki síður um inn­sýn í líf ólíks fólks við marg­vís­legar aðstæður. Tit­ill­inn er margræður. Það má skilja hann á að minnsta kosti tvo, kannski þrjá, ólíka vegu. Aðal­per­sóna sög­unnar og sögu­maður er ung kona, Sig­ur­lilja. Hún er gædd þeim óvenju­lega hæfi­leika að í svefni lifir hún lífi ann­arra. Hana dreymir ekki, heldur er eins og hún taki sér ból­festu í öðru fólki, sjái út um þeirra augu, skynji það sem það skynjar og finni til þegar það finnur til. Þennan hæfi­leika má rekja til atviks sem Sig­ur­lilja verður fyrir eina haustnótt í Valla­hverf­inu í Hafn­ar­firði. Á þeim fremur óskáld­lega stað verður hún vitni að óvenju­legum ljósa­gangi á himni, kannski er þar geim­skip á ferð, kannski ein­hvers konar ofsjónir. Les­and­inn – og sögu­konan sjálf – geta ekki alveg verið viss um hvað það er sem hún verður fyrir.

…

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár