984. spurningaþraut: „Fleira er á himn'og jörð en heimspekin þín fær upphugsað.“

Fyrri auka­spurning:

Hver málaði málverkið hér að ofan?

***

Aðal­spurningar:

1.  Eins og allir vita gerist harm­leikurinn um Hamlet í borginni Elsinore, sem svo heitir í leikriti Shakespeares. Hvað köllum við nú Elsinore?

2.  Hver af þessum evrópsku höfuð­borgum er syðst: Berlín — Bern — Búdapest — Brussel — eða Búkarest? 

3.  Íslenskur æringi eða svokallaður lífskúnstner kallaði sig hertogann af St.Kildu. St. Kilda er eyja sem tilheyrir hvaða ríki?

4.  „Rós er rós er ...“ Er hvað?

5.  Hver skrifaði þetta upphaf­lega?

6.  Í hvaða heimsálfu er smáríkið San Marino?

7.  Hvað heitir næst­stærsti þing­flokkurinn á sænska þinginu, sem upphaf­lega er sprottinn úr nýnasista­hreyfingum ýmsum?

8.  Hver söng um Ziggy Stardust?

9.  En hvaða tónlistar­maður, sem nú er orðinn Íslend­ingur, flutti lagið Greatest Motherfucker in the World — öðru nafni GMF?

10.  „There are more things in Heaven and Earth [...] than are dreamt of in your philosophy,“ segir Hamlet við vin sinn þar sem þeir ræðast við í Elsinore. Sem mætti þýða svo: „Fleira er á himn'og jörð en heim­spekin þín fær upphugsað.“ En hvað heitir heimspeki­stúdentinn vinur Hamlets?

***

Seinni auka­spurning:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Helsingja­eyri.

2.  Búkarest.

3.  Bretlands.

4.  Rós. Raunar var rósin nefnd fjórum sinnum í hinum uppruna­lega texta.

5.  Gertrude Stein.

6.  Evrópu.

7.  Svíþjóðar­demó­kratarnir.

8.  David Bowie.

9.  Grant.

10.  Hóras, Horace.

***

Svör við auka­spurningum:

Matisse málaði myndina.

Á neðri myndinni er söngkonan Bríet.

  

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár