985. spurningaþraut: Þegar íslenskir karlar unnu verðlaun í handbolta

Fyrri auka­spurn­ing:

Ungi pilt­ur­inn á mynd­inni hér að ofan er löngu dáinn — reyndar í hárri elli. Hvað hét hann?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Norður af hvaða tveimur löndum er Barents­haf?

2.  Árið 2016 mun­aði ekki nema því sem mun­aði að Halla Tóm­as­dóttir fengi eft­ir­sótt starf. Hvaða starf var það?

3.  Hvar eru Langer­hans-eyj­arnar? Eru þær milli Borneo og Súmötru — í bris­inu — á yfir­borði tungls­ins Ganý­medesar — í Karí­ba­hafi — í óshólmum Rínar í Hollandi — eða við Suð­ur­skauts­landið?

4. Í febr­úar 2000 hófst stutt eld­gos í fjalli einu og er helst eft­ir­minni­legt vegna gríð­ar­legs umferð­ar­öng­þveitis sem varð þegar fólk á höf­uð­borg­ar­svæð­inu brun­aði út í snjó­komu og fjúk og fjöldi bíla fests­ist í Þrengsl­unum. Hvaða fjall vakti slíka for­vitni?

5. Hvað nefn­ist sjón­varps­þáttur þeirra Bjargar Magn­ús­dóttur og Braga Valdi­mars Skúla­sonar um íslenska tungu?

6. Um hvaða höf­uð­borg í Evrópu fellur áin Liffey?

7.  Ein er sú teg­und lít­illa fiska sem fjölga sér með óvenju­legum hætti. Frjóvg­unin fer þannig fram að hrygnan verpir eggjum í sekk á kvið hængs­ins. Hann frjóvgar þau síðan í sekknum og gætir eggj­ana þar þangað til þau klekj­ast. Litlar lirfur synda svo úr sekknum og takast á við lífið án verndar for­eldr­anna. Hvers konar fiskar eru þetta?

8.  Íslenska hand­boltalands­liðið í karla­flokki hefur tví­vegis unnið til verð­launa á stór­mótum. Einu sinni vann liðið silf­ur­verð­laun eftir að hafa tapað úrslita­leik. Á hvaða móti var þetta? Svarið þarf að vera nokkuð nákvæmt.

9.  En hverjir voru það sem sigr­uðu Íslend­inga í þessum úrslita­leik og unnu því gullið á mót­inu?

10.  Tveim árum eftir að hafa unnið þessi silf­ur­verð­laun, þá vann Ísland brons­verð­laun eftir að hafa unnið Pólverja í leik um 3ja sæti. Á hvaða móti var þetta? — og hér þarf svarið ekki að vera eins nákvæmt og í 8. spurn­ingu.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Í hvaða stór­borg er myndin hér að neðan tekin?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Noregi og Rúss­landi.

2.  Starf for­seta Íslands.

3.  Í bris­inu.

4.  Hekla.

5.  Kappsmál.

6.  Dublin.

7.  Sæhestar.

8.  Ólymp­íu­leik­arnir í Bejing 2008.

9.  Frakkar.

10.  Evr­ópu­móti — það dugar.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Pilt­ur­inn á efri mynd­inni hét Winston Churchill og var um tíma for­sæt­is­ráð­herra Breta.

Neðri myndin er tekin í Barcelona.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár