986. spurningaþraut: Nord Stream, Bítlarnir og janúar

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér að ofan má sjá stúlku tæp­lega tví­tuga halda ræðu. Hún er nú tæp­lega fimm­tug og var um tíma á síð­asta ári í ágætri aðstöðu til að hrinda ýmsu því í fram­kvæmd sem hún krafð­ist áður fyrr. Hvað heitir hún?

***

Aðal­spurn­ingar:

1. Í hvaða landi er hér­aðið eða fylkið Saskatchewan?

2. Hvaða fyr­ir­tæki tengj­ast þau Arn­þrúður Karls­dóttir og Pétur Gunn­laugs­son?

3. Einn Norð­maður hefur þjálfað karla­lið Manchester United í fót­bolta. Hvað heitir hann?

4.  Hvaða fyr­ir­bæri eru Nord Stream 1 og 2?

5.  Frá hvaða borg voru Bítl­arnir?

6.  Hvað hét reyfari Ragnars Jóns­sonar og Katrínar Jak­obs­dóttur sem út kom fyrir jólin?

7.  Janúar er nefndur eftir guð­inum Janusi. Í goða­fræði hvaða ríkis var hann í hávegum hafður?

8.  Lík­am­lega var eitt nokkuð sér­kenni­legt við guð­inn Janus. Hvað var það?

9. Hvað eiga stjórn­mála­menn­irnir Björn Jónsson, Kristján Jónsson, Sigurður Eggerz og Einar Arn­órs­son helst sam­eig­in­legt?

10. Hvað hét helsti aðstoð­ar­maður lög­reglu­for­ingj­ans Morse meðan hann var og hét?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Úr hvaða kvik­mynd er skjá­skotið hér að neðan? Og svo er lár­við­ar­stig fyrir að nefna BÁÐA leik­ar­ana.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1. Kanada.

2. Útvarpi Sögu.

3. Ole Gunnar Sol­skjaer.

4. Gasleiðslur.

5. Liverpool.

6.  Reykja­vík.

7.  Róma­veldis.

8.  Hann hafði tvö and­lit.

9. Ásamt Hannesi Hafstein gegndu þeir allir emb­ætti ráð­herra Íslands meðan ráð­herr­ann var aðeins einn á tímum heima­stjórn­ar­innar.

10. Lewis.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Liz Truss sem varð for­sæt­is­ráð­herra Breta í sept­em­ber síð­ast­liðnum og lét fljót­lega af emb­ætti. 

Liz Truss

Á neðri mynd­inni stíga þau Uma Thurman og John Travolta dans í mynd­inni Pulp Fiction. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Allt rétt ásamt lárviðarstigi, nema ráðherfurnar tvær.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár