987. spurningaþraut: Kastvopn með óvenjulegan eiginleika

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvers konar dýr má sjá á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Árið 1929 var nýr stjórn­mála­flokkur stofn­aður á Íslandi þegar tveir flokkar á þingi runnu saman. Hvað var hinn nýi flokkur kall­aður?

2.  Og hvað hét fyrsti for­maður þessa nýja flokks?

3.  Tígraí heitir hérað eitt í til­teknu ríki. Þar var fyrir fáeinum árum gerð upp­reisn gegn stjórn­völdum í land­inu en hún koðn­aði niður — í bili að minnsta kosti — seint á nýliðnu ári. Hvaða Afr­íku­ríki er hér um að ræða?

4.  Frá hvaða landi kemur hinn eini sanni feta­ostur?

5.  Hvernig mjólk er uppi­staðan í þeim osti?

6.  Hvaða ríki sprengdi árið 1961 öfl­ug­ustu kjarn­orku­sprengju sem sprengd hefur verið?

7.  Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir situr í borg­ar­stjórn Reykja­víkur fyrir ... hvaða flokk eða sam­tök?

8.  Tón­list­ar­maður vakti fyrst athygli á unga aldri árið 2020 með lag­inu I'm Not Supposed to Say This. Síðan hefur tón­list­ar­mað­ur­inn gefið út lög á íslensku, svo sem Röddin í klett­unum, Frosið sól­ar­lag og Annar séns. Hvað heitir þessi tón­list­ar­maður?

9.  Hvað nefn­ist kast­vopn eitt sem er svo lagað að sé því kastað á réttan hátt þá snýr það aftur til þess sem kastaði?

10.  Í hvaða núver­andi ríki var kast­vopn þetta þróað?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Úr hvaða bíó­mynd frá 1991 er skjá­skotið hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

2.  Jón Þor­láks­son.

3.  Eþíópíu.

4.  Grikk­landi.

5.  Kinda­mjólk. Þess eru dæmi að geita­mjólk sé blandað út í kinda­mjólk­ina en kinda­mjólk er þó eina rétta svarið hér.

6.  Sov­ét­ríkin. Rússland dugar að sjálf­sögðu ekki.

7.  Sós­í­alista­flokk­inn.

8.  Gugusar — eða Guðlaug Sóley.

9.  Búmerang.

10.  Ástralíu.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Dýrið á efri mynd­inni er lemúr.

Skjá­skotið er úr kvik­mynd­inni Thelma and Louise.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár