988. spurningaþraut: Hvaðan koma naggrísir? Já, hvaðan kom naggrísir?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir land­svæðið á miðri mynd­inni hér að ofan? Svo er lár­við­ar­stig fyrir að nefna þrjú önnur land­svæði á mynd­inni.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Árið 1886 var Þjóð­verj­inn Wilhelm Steinitz fyrsti við­ur­kenndi heims­meist­ar­inn á ákveðnu sviði. Hvaða svið var það?

2.  Í hvaða landi er Ulf Kristers­son for­sæt­is­ráð­herra?

3.  Á sext­ándu öld var tekið upp víð­ast í Evrópu svo­nefnt Gregórískt tíma­tal. Hver var sá Gregór­íus sem tíma­talið var kennt við?

4.  Milli hvaða tveggja fjarða á Íslandi liggur Öxna­dals­heiði?

5.  Hvaða söng­kona og rapp­ari sendi frá sér lagið Super Bass árið 2011?

6.  En hvaða hljóm­sveit sendi frá sér lagið Where the Streets Have No Name árið 1987?

7.  Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Rabat?

8.  Trú­ar­brögð sem spruttu fram um 1500 telja nú um 30 millj­ónir fylgj­enda. Um er að ræða ein­gyð­is­trú og algeng­asta nafnið yfir guð er Wahuguru. Hvað kall­ast fylg­is­menn þess­ara trú­ar­bragða?

9.  Náfræna app­el­sín­unnar er mandar­ínan. Hvar var mandar­ínan fyrst ræktuð?

10.  Naggrísir eru upp­runnir í einum miklum fjall­garði, raunar einum þeim mesta í heimi. Hvaða heita fjöllin þau?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Á mynd­inni má sjá flug­vél­ar­teg­und sem er komin vel til ára sinna en þó mun vélin enn í brúki. Hvað heitir teg­undin?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Skák.

2.  Svíþjóð.

3.  Hann var páfi.

4.  Skaga­fjarðar og Eyja­fjarðar.

5.  Nicki Minaj.

6.  U2.

7.  Marokkó.

8.  Sikhar.  

9.  Í Kína.

10.  And­es­fjöll.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á miðri efri mynd­inni er Katar, ríki nokk­urt í Persaflóa. Hlutar af þremur öðrum ríkjum sjást og á mynd­inni.

Á neðri mynd­inni er banda­rísk njósn­a­vél af gerð­inni U2.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár