983. spurningaþraut: Vel að ykkur um uppfinningar og hernaðartól?

983. spurningaþraut: Vel að ykkur um uppfinningar og hernaðartól?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða íþrótt má ætla að karl­inn hér að ofan stundi?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Svíi nokkur var mik­ill iðn­jöfur og fann upp og fram­leiddi sitt af hverju. Frægastur var hann þó fyrir spengi­efnið dínamít. Hvað hét hann?

2.  Hvaða þjóð í síð­ari heims­styrj­öld þró­aði háþróuð leyni­vopn sem kölluð voru V-1 og V-2?

3.  Öllu eldra vopn og ein­fald­ara var stutt sverð sem kallað var gladius. Hverjir not­uðu fyrst og fremst gladius?

4.  Louis-Guillaume Perreaux hét franskur upp­finn­inga­maður sem fædd­ist 1816. Árið 1869 fékk hann einka­leyfi á tæki einu sem var sann­ar­lega bylt­ing­ar­kennt. Perreaux kom þá lít­illi gufu­vél, sem gekk fyrir alkó­hóli, fyrir á öðru tæki sem þegar hafði verið þróað, og umbylti þar sem hinu fyrra tæki. Tæki Per­r­eauxs þótti mikil bylt­ing - en gufu­vélin, þó lítil væri, þótti of stór og klunna­leg þegar til lengdar lét, svo tæki Per­r­eauxs var lítið notað. Þegar farið var að smíða hand­hægar litlar bens­ín­vélar í svipuð tæki, þá urðu þau hins vegar mjög útbreidd. Hver voru tæki Per­r­eauxs?

5.  Ef Hell­is­heiðin milli Reykja­víkur og Hvera­gerðis er lokuð, hvaða leið er þá oft hægt að fara í stað­inn?

6.  Maksymil­ian Faktorowicz hét pólskur Gyðingur, fæddur 1877. Hann var hug­vits­samur og líka mik­ill mark­aðs­maður og fór snemma að leggja drög að því að fram­leiða sínar eigin vörur. Árið 1904, þegar hann var 27 ára flutti hann til Banda­ríkj­anna til að forð­ast vax­andi Gyð­inga­of­sóknir í Póllandi. Vestan hafs hóf hann mikla fram­leiðslu á til­teknum vörum og gekk geysi­vel. Hvernig vörur fram­leiddi hann?

7.  Borgin Córdoba á Spáni var um eitt skeið aðsetur mik­illa höfð­ingja en líka alþekkt þá fyrir menn­ingu, vís­indi og listir. Hverjir réðu ríkjum í Córdoba á þessu blóma­skeiði borg­ar­innar?

8.  En Córdoba er líka nafnið á næst fjöl­menn­ustu borg­inni í ákveðnu stóru Suður-Amer­íku­ríki. Hvaða ríki hýsir þá Córdoba-borg?

9.  Gunnar á Hlíð­ar­enda var ein helsta hetja Íslend­inga­sagn­anna. Hann bjó yfir vopni einu sem ann­ars er varla minnst á í sög­unum. Hvaða vopn er það?

10.  En Gunnar átti og annað vopn sem hann beitti af mik­illi leikni, ekki síst þegar síð­ast var að honum sótt. Hvaða vopn var það?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Af hvaða sort er bíll sá er hér sést að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Nobel.

2.  Þjóð­verjar,

3.  Róm­verjar. Skylm­inga­þrælar eða gladi­atorar er ekki full­nægj­andi svar.

4.  Mót­or­hjól.

5.  Þrengsli.

6.  Snyrti­vörur, eftir að hafa stytt nafn sitt í Max Factor.

7.  Múslimar, Márar.

8.  Argent­ína.

9.  Atgeir.

10.  Bogi og örvar.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Karlinn stundar aug­ljós­lega póló.

Bíllinn er hins vegar Cadillac.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár