982. spurningaþraut: Ekkert sjónvarp? Getur það verið?

Fyrri auka­spurn­ing:

Skjá­skotið hér að ofan er úr kvik­mynd sem gerð var 1914 og byggð á geysifrægri skáld­sögu. Hvað hét skáldsagan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Arsenal heitir fót­boltalið eitt á Englandi. Hvað þýðir orðið Arsenal?

2.  En í hvaða borg á Englandi hefur Arsenal aðsetur?

3.  „Litlu verður ... [hver] ... feg­inn,“ segir mál­tækið. Já, hver?

4.  Í mörg ár eftir að íslenskt sjón­varp var komið í fullan gang var samt ekki sjón­varpað á einum til­teknum viku­degi. Hvaða dag var það?

5.  Í þriðju sjón­varps­s­er­í­unni um Ófærð kom flokkur manna frá Danmörku og var til vand­ræða hér uppi á Íslandi. Hvers konar flokkur var þetta?

6.  Árið 1866 gaf breskur læknir út rit­gerð þar sem hann fjall­aði um ýmis stig geð­veilu og þroska­skerð­ingar. Þar greindi hann til dæmis til­tekin ein­kenni sem hann kenndi svo við ákveð­inn kyn­stofn manna. Lækn­ir­inn mun hafa verið hinn vænsti maður og bætti mjög hag skjól­stæð­inga sinn þótt það heiti sem hann valdi 1866 sé nú aflagt. Í stað­inn eru sömu ein­kenni nú kennd við hann sjálfan. Hvað hét þessi læknir?

7.  Í hvaða landi er borgin Jaffa?

8.  En í hvaða borg er hverfið Beverly Hills?

9.  Fyr­ir­brigði eitt er sam­sett úr róteindum, raf­eindum og nifteindum. Hvaða fyr­ir­brigði er þar um að ræða?

10.  Hver var sá vin­sæli tón­list­ar­maður (og Íslands­fari tveim árum seinna) sem átti eitt vin­sælasta lagið 2017 — The Shape of You?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þessi ungi maður?

***

Svör við auka­spurn­ingum:

1.  Vopnabúr.

2.  London.

3. .Vöggur.

4.  Fimmtu­dagur.

5.  Mót­or­hjóla­gengi.

6.  Down.

7.  Ísrael.

8.  Los Angeles.

9.  Atóm.

10.  Ed Sheeran.

The Shape of You, Sheeran karl­inn!

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Skjá­skotið efra sýnir and­ar­tak úr fyrstu kvik­mynd­inni sem gerð var eftir sög­unni Anna Karenina eftir Tolstoj. Skoðið mynd­ina, og ef þið þekkið sög­una, þá vit­iði af hverju þið áttuð að vita svarið.

Á neðri mynd­inni er Bob Dylan.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár