Bruðl ríku kallanna í Róm

Á tímum Rómverja voru það sérvitringar einir sem töldu að nægjusemi og hófsemd væru eftirsóknar­verðir eigin­leikar. Hér segir af ríkasta athafna­manni Róma­veldis og tveimur keisurum sem gengu í fjár­hirslur ríkisins eins og þær væru buddan þeirra sjálfra.

Rósaveisla í keisarahöllinni í Róm
Rósa­veisla í keis­ara­höll­inni í Róm Málverk eftir Lawrence Alma-Tadema. Myndin á reyndar að sýna bruðlið við hirð keis­ar­ans Elaga­balusar en hann dró mark­visst dám af Caligula og Nero í eyðslu­semi og bruðli.

Marcus Crassus

Sérlega erfitt er að meta auð manna í fornöld. Kóngar og keisarar gátu til dæmis oftast gengið í fjár­hirslur ríkja sinna að vild eins og hér á síðunni má sjá að þeir gerðu, keis­ararnir Caligula og Nero.

Hitt er ljóst að af athafna­mönnum rómverskum komst enginn í hálf­kvisti við Marcus Crassus. Hann var svo ríkur að hann er iðulega settur í sæti 7-8 á listum yfir ríkustu menn sögunnar, jafnvel þótt auðjöfrar nútímans séu taldir með.

Crassus var af auðugri yfirstétt. Nokkru fyrir miðja fyrstu öld fyrir Krist braust út lang­varandi borgara­styrjöld í Róm og þótt upphaf­lega hafi verið um stétta­baráttu að ræða umhverfðust átökin fljótt í valda­baráttu voldugra herstjóra, þá má segja að framan af hafi verið um stétta­baráttu að ræða.

Crassus var einn af helstu lautinöntum Corneliusar Sulla sem náði völdum laust fyrir árið 80 fyrir …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár