Hér er sérstakt hættusvæði hjá eldgosinu

Göngu­leið að eld­gos­inu liggur yfir áætl­aðan kviku­gang þar sem þykir mögu­legt að hraun geti komið upp úr jörðu með litlum fyr­ir­vara.

Hér er sérstakt hættusvæði hjá eldgosinu
Gossprungan og lík­legur kviku­gangur Ljós­myndin er Almanna­varna frá því í gær en áætl­uðum kviku­gangi hefur verið bætt gróf­lega við á þeim for­sendum að hann liggi í beinu fram­haldi af gossprung­unni. Gosop geta þó opn­ast víðar. Mynd: Almannavarnir

Kviku­gangur í fram­haldi af gossprung­unni í Mera­dölum liggur undir land­svæð­inu norð­austur af sprung­unni og lík­lega í beinu fram­haldi af henni. Fólk sem er á ferli þar getur átt von á því að nýjar gossprungur opn­ist með gló­andi hrauni án fyr­ir­vara.

Magnús Tumi Guð­munds­son jarð­eðl­is­fræð­ingur benti á það í dag að vís­bend­ingar væru um að sprungan myndi opn­ast til norð­urs og rennsli gæti auk­ist. 

„Svo er nátt­úru­lega ekki víst að þetta sé enda­hnykk­ur­inn,“ sagði Magnús Tumi í sam­tali við hádeg­is­fréttir RÚV. „Það er mögu­leiki, sem er ekki hægt að úti­loka, að sprungan muni lengj­ast til norð­urs. Það eru hreyf­ingar þar oghafa verið hreyf­ingar þar. En það mun skýr­ast á næstu dögum, hvort gosið er að valda því að þrýst­ingur er að lækka þarna eða hvort hann er ennþá vax­andi á ein­hverjum hluta sprung­unnar.“

Gosið er kraft­meira en síð­asta gos, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Eldgos við Fagradalsfjall

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár