„Við verðum sterkari og reiðari en við brotnum ekki“

Við breyttum bað­her­berg­inu í sprengju­skýli, segir Óskar Hall­gríms­son ljós­mynd­ari en hann og Ma Riika mynd­list­ar­kona búa í Úkraínu. Eftir að inn­rás Rússa hófst sköp­uðu þau list á vinnu­stofu sinni í Kyiv og neit­uðu að leggja á flótta. Stríðið hefur samt breytt þeim.

„Við verðum sterkari og reiðari en við brotnum ekki“

Óskar Hall­gríms­son er ljós­mynd­ari sem hefur unnið víða um heim und­an­farin ár. Ma Riika, sem er frá Úkraínu, er mynd­list­ar­maður en hefur einnig unnið við að húð­flúra und­an­farin ár.

„Ég var boð­inn til Kyiv í ágúst eða sept­em­ber 2019 til að kynna ljós­mynda­bók sem ég gerði um kyn­lífs­iðn­að­inn í Taílandi á Kyiv Photo Book International Festival. Á öðrum degi mínum í borg­inni sett­ist ég við borð með bók­ina mína og var að tala við eitt­hvert fólk og þangað kom Ma Riika og nú erum við gift og búum í Kyiv.“

Var það ást við fyrstu sýn?

„Nánast. Hún er tattú­artisti og sett­ist við borðið hjá mér og add­aði mér á Instagram. Ég sá á síð­unni hennar að hún var að gera tattú og ég er eins og skissu­bók; ég er allur í tattúum. Ég sendi henni síðar skila­boð og spurði hvort ég gæti komið í tattú til hennar og ég gerði það. Síðan leiddi eitt af öðru.“

Ma Riika teikn­aði grímu á maga Óskars. „Ég er ekki grannur þannig að þetta tók langan tíma,“ segir hann og hlær.

Óskar var í Kyiv í um þrjár vikur og fór síðan til Dubai, þaðan til Indlands og  og að lokum til Georgíu. Hann og Ma Riika voru í net- og síma­sam­bandi á meðan hann flakk­aði á milli landa.

Hvað var  það sem heill­aði hana í fari hans? „Per­sónu­leiki hans. Ég veit það ekki. Hann ferð­að­ist mikið eftir að við kynnt­umst og hann sýndi mér svo mik­inn stuðn­ing þegar hann tal­aði við mig í síma. Hann vildi alltaf hringja í mig. Ég var í ömur­legu starfi,“ segir Ma Riika og Óskar segir að hún hafi unnið hjá banda­rísku fyr­ir­tæki sem hafi ráðið ódýrt vinnu­afl frá Úkraínu í gegnum netið. Starf hennar fólst í að fylla út Excel-skjöl með tölum sem hún fann á net­inu. „Þetta var ógeðs­lega leið­in­legt. Þetta var hræði­legt. Ég hefði skotið mig eftir mánuð ef ég hefði unnið við þetta,“ segir hann, „og það var ekki gott fyrir and­lega heilsu hennar og helm­ing­ur­inn af sam­töl­unum fór í að hún fékk tæki­færi til að fá útrás út af þessu starfi.“

Hvað vissi Ma Riika um Ísland áður en hún hitti Íslend­ing­inn sem fékk grímu á mag­ann? „Ég vissi að það var mjög fal­legt. Ég man að amma sagði eftir að ég kynnt­ist Óskari að mig hafi dreymt alla ævi um að fara til Íslands.“ Hún hlær og seg­ist ekki muna eftir þessu. „Hún mundi að ég hafði ein­hvern tím­ann sagt það. Ég hafði gleymt því. Svo hitti ég Óskar,“ segir Ma Riika sem er frá Odesa en hafði búið í Kyiv í um mánuð þegar hún hitti Óskar þar. 

Eins og í transi

Aðfara­nótt 24. febr­úar voru hjónin sof­andi á heim­ili sínu í Kyiv og vökn­uðu við spreng­ingar.

Búist hafði verið við að eitt­hvað gæti gerst og íbúum í Úkraínu bent á að hafa töskur til­búnar með helstu nauð­synjum og skjölum. „Við höfðum allt sem við þurftum til­búið, þannig að ef við þyrftum að yfir­gefa íbúð­ina skyndi­lega þá gætum við það. Við vissum að þetta gæti gerst en við sögðum að Rússar myndu aldrei gera þetta. En svo auð­vitað gerðu þeir það,“ segir Óskar.

„Það er mjög súr­r­eal­ísk upp­lifun að ganga í gegnum þetta. Þetta er til­finn­inga­leg rús­sí­bana­ferð. Við ákváðum að taka engar ákvarð­anir í paniki. Það var fyrsta regla. Við sögðum að ef við tækjum ákvörðun þá tækjum við hana saman og afslöppuð. Jafnvel þótt við hefðum lít­inn tíma þá myndum við alltaf ræða hverjir mögu­leikar okkar væru og hvers vegna þessi leið væri betri en ein­hver önnur,“ segir hann og bætir við að það hafi verið góð ákvörðun að taka enga ákvörðun meðan þau voru í miklu upp­námi. 

„Það var bein bíla­lína til Vest­ur­landa frá Úkraínu og allar lestir voru fullar af fólki klukku­tímum saman; kannski 13-16 tíma ferðir frá Úkraínu,“ segir Ma Riika og Óskar bætir við að þegar fólk hafi verið komið á ákvörð­un­ar­stað hafi lítið sem ekk­ert tekið á móti því enda um að ræða um milljón flótta­fólks sem kom skyndi­lega í litla borg. 

„Við sáum þetta. Ég komst snemma í áreið­an­leg gögn og byggði allar okkar ákvarð­anir á þeim, ekki á fréttum. Við lásum þessar skýrslur og sáum hvar her­deildir Rússa voru og fórum ekki eftir fréttum sem ýktu stundum.“
Óskar segir að þau hafi kom­ist í þessar skýrslur; þetta séu opnar skýrslur sem komi frá stórum hópi rann­sak­enda.  „Við sáum hver staðan var við landa­mærin í Vestur-Úkraínu, við sáum borg­ina okkar víg­bú­ast svaka­lega og við sáum að loft­varnir og annað varð betra með hverjum degi sem leið og þannig séð varð Kyiv aldrei fyrir neinni árás. Þeir komu í borg­ina fyrstu tvo dag­ana en var svo ýtt út.“

Hjónin ákváðu því að vera um kyrrt í Kyiv. „Við höfðum alltaf mögu­leik­ann á að fara út á lest­ar­stöð sem er í tíu mín­útna göngu­fjar­lægð. Það er öruggt vest­an­megin við Kyiv. Það voru engir rúss­neskir her­menn þar. Það er ekk­ert stríð í gangi þar. Þannig að það er alltaf leið út úr borg­inni. Við sáum hvað vinir okkar voru að ganga í gegnum sem frík­uðu út. Á fyrsta degi settu þeir bara eitt­hvað í töskur og hlupu út um dyrnar. Þeir voru ekki með neinn pen­ing og sváfu ein­hvers staðar á gólf­inu. Við vorum bara heima hjá okkur í hlýj­unni að horfa á Netflix. Við lentum aldrei í neinu ves­eni við að vera heima. Það var miklu örugg­ara fyrir utan að and­lega heilsan var miklu betri hjá okkur heldur en vinum okkar sem völdu að vera flótta­menn.“

Ma Riika segir að fyrstu mán­uð­ina hafi þetta verið sér­stak­lega erfitt. Hún hafi ekki vitað hvort hún gæti farið að teikna fyrstu mán­uð­ina eftir inn­rás­ina. „Ég var eins og í transi. Ég gat ekki trúað öllu þessu ofbeldi í garð almennra borg­ara. Rússar vörp­uðu ekki bara sprengjum á hern­að­ar­lega mik­il­væg skot­mörk heldur líka á almenna borg­ara. Ég byrj­aði síðan að teikna og vildi breyta þess­ari orku í eitt­hvað gott og gagn­legt.“

Og Ma Riika lagði sitt af mörkum til úkra­ínskra hers­ins því hópur húð­flúr­ara tók sig saman og tólf helgar í röð húð­flúr­uðu þeir fólk alla laug­ar­daga og í stað­inn fyrir að borga þeim rann allur ágóði til hers­ins.

Óskar segir að ein stór­kost­leg­asta mann­eskja sem hann hafi kynnst sé Olga Babentsova sem rekur lítið kaffi­hús nálægt heim­ili hjón­anna. „Eftir inn­rás­ina sagð­ist hún þurfa að gera eitt­hvað og í litlu eld­húsi kaffi­húss­ins var farið að elda fyrir 1.000-1.500 úkra­ínska her­menn á dag. Ég er að tala um sam­stöðu. Fólk í Kyiv þurfti stundum að bíða klukku­stundum saman í röð við versl­anir til að geta fyllt poka af mat­vörum bara til að fara með í eld­húsið svo hægt væri að elda fyrir her­menn­ina. Þetta er eitt dæmi af fjöl­mörgum. Við gætum talað allan dag­inn um svona dæmi. Ég verð stoltur þegar ég hugsa um þetta.“

Fjöldagrafir

Ma Riika segir að Rússar vilji að Úkra­ínu­menn lifi í ótta. Það sé mark­mið þeirra. „Við ætlum ekki að gera þeim það til geðs; við verðum sterk­ari og reið­ari en við brotnum ekki.“

Óskar segir að þetta sé alveg rétt. „Í fyrstu vorum við nátt­úr­lega ótta­slegin. Hjá mér gekk það fljótt yfir af því að við ákváðum að leyfa ekki Pútín að ter­r­orisera okkur. Auðvitað verðum við reið. Ég fór til dæmis til Bucha fjórum dögum eftir að þeir opn­uðu borg­ina og var að mynda fjölda­grafir. Auðvitað verður maður rosa­lega reiður en í stað þess að verða ótta­sleg­inn og leyfa þeim þannig að vinna ákváðum við að flýja ekki. Ég veit að þetta hljómar fárán­lega en það er alveg hægt að taka ákvörðun um þetta: Nei, við ætlum ekki að leyfa þetta; við ætlum ekki að panika og ætlum að halda áfram okkar lífi eins og við getum í þessum aðstæðum. Við stjórnum ekki aðstæð­unum en við getum stjórnað því hvernig við dílum við þær. Og það er það sem við gerðum.“

Fjölda­grafir. Það var erfitt að sjá það. 

„Ég bjó mig undir það and­lega að ég væri að fara inn í Bucha. Það var ekk­ert búið að gera nema pikka upp eig­in­lega öll líkin af göt­unum. Það var rosa­leg upp­lifun og rosa­lega erfitt. Það sem hefur verið erf­ið­ast fyrir mig í þessu stríði eru hlut­irnir sem maður býr sig ekki undir. Þetta hefur svo margar hliðar og það eru svo ógeðs­lega margar hliðar sem þú býrð þig ekk­ert undir. Erfiðast hefur verið fyrir mig per­sónu­lega að fara inn á heim­ili fólks, svo sem í Bucha og Irpin. Þar eru nýbygg­ingar; þetta er eins og að fara í Graf­ar­holtið. Það hefur margt hræði­legt gerst á heim­ilum þar; þú sérð kannski blóð á gólf­inu eða að rúss­neskir her­menn hafa hreiðrað þar um sig meðan á umsátr­inu stóð. Þar er líf fólks gjör­sam­lega tekið og rústað. Ég fer alltaf á þessum stöðum inn á heim­ili fólks til þess að fá ein­hverja teng­ingu við þetta,“ segir Óskar, sem myndar fyrir Morg­un­blaðið auk þess að mynda fyrir ýmsa erlenda aðila. Hann hefur hitt fórn­ar­lömb stríðs­ins og fjöl­skyldur fórn­ar­lamba. „Það er eitt­hvað sem er mjög erfitt. Kyn­ferð­is­of­beldi er búið að vera eitt af þessum „ter­r­orista tactics“ hjá Rússum; og það er mjög algengt.“

„Ég er bara mann­eskja sem hef upp­lifað traumat­íska atburði stans­laust í fimm mán­uði“
Óskar

Óskar segir að þetta hafi breytt sér. „Það er erfitt að koma þessu í orð en þetta hefur kannski breytt mér. En ég er enn þá sami ég. Ég er ekk­ert orð­inn ný mann­eskja eftir þetta. Ég er bara mann­eskja sem hef upp­lifað traumat­íska atburði stans­laust í fimm mán­uði. En við tvö erum rosa­lega gott team upp á að díla við þetta. Við höfum haldið hvort öðru til­tölu­lega sane í gegnum allt þetta rugl.“

Ætt­ingjar Ma Riika eru í Odesa. Óskar segir að sumir vinir þeirra hjóna sem flúðu til ann­arra landa hafi komið aftur til Úkraínu. „Það er mikið af fólki frá Kyiv sem er komið til baka. Kyiv er mikið að vakna til lífs­ins. Stríðið gengur svaka­lega illa hjá Rússum og á eftir að ganga enn verr á næst­unni þannig að það er komin von­ar­glæta í okkur um að þessu ljúki. En við erum raunsæ og vitum að þetta er ekki að verða búið á morgun og ekki í næstu viku. Þetta verða ein­hverjir mán­uðir pott­þétt og örugg­lega eitt­hvað inn í vet­ur­inn. Síðan eftir að stríðið er búið, hvenær svo sem það verður, þá eru ein­hver ár í upp­bygg­ingu. Þetta er eitt­hvað sem allir þurfa að díla við.“

Liggja saman á bað­her­berg­inuVerk af þeim liggj­andi inni á bað­her­bergi heima, en því breyttu þau í sprengju­skýli.

Ljómandi þægilegt

Hjónin komu til Íslands fyrir nokkrum vikum til að setja upp sýn­ing­una Ljómandi þægi­legt í Gallery Porti sem er nú lokið. Verkin unnu þau eftir að stríðið skall á og er um að ræða hand­saumuð teppi úr ull og akríl. Um sýn­ing­una segir: „ Nafn sýn­ing­ar­innar, Ljómandi þægi­legt, vísar í ljósið sem hlýjar í lægðum, ljósið við end­ann á göng­unum, ljó­mann sem skín af þeim sem sýna dug og spyrna á móti þegar vindar blása, ljóma sem við fáum frá hvert öðru í sam­stöðu og ljó­mann sem við munum finna innan frá þegar þessu lýkur. Verkin eru hand­saumuð teppi úr ull og akríl. Teppin tengj­ast öll saman sem ein sería til að skapa ímynd­aðan heim.“

Óskar segir að fyrir þessa sýn­ingu hafi þau hjónin tekið eigin raun­veru­leika og klætt hann í þeirra eigin heim; eins og þau myndu setja hann í ný föt.

Hann talar um eitt verkið á sýn­ing­unni sem kall­ast Ömmublóm. Það teng­ist því þegar gömul, úkra­ínsk kona henti sól­blóma­fræjum í rúss­neskan her­mann, húð­skamm­aði hann og sagði að hann ætti að koma sér heim og að ef mamma hans vissi hvað hann væri að gera þá myndi hún skamm­ast sín fyrir hann. „Hún sagði „taktu þessi fræ og settu þau í vas­ann hjá þér svo þau vaxi úr þér þegar þú ert dauður svo það sé eitt­hvert gagn af þér í Úkraínu“. Núna er þessi gamla kona sam­ein­ing­ar­tákn í Úkraínu. Líka sól­blómið sjálft,“ segir Óskar en sól­blómið er jú þjóð­ar­blóm lands­ins. „Það er þessi til­finn­ing sem við reyndum að fjalla um á sýn­ing­unni; þessi blanda af mót­stöðu, sam­hug, sam­kennd og að láta ekki hræða sig af því að það er það sem Pútín vill.“

Óskar segir að þau Ma Riika hafi unnið verkin eins og það séu alltaf þau sem eru á mynd­unum. „Það getur þó hver og einn fundið sjálfan sig í verk­unum af því að þetta er í raun og veru ekki 100% bein teng­ing við stríðið en fyrir okkur er það svo. Stærsta verkið er svart­hvítt; það er mynd af okkur liggj­andi inni á bað­her­bergi heima hjá okkur. Við breyttum bað­her­berg­inu í sprengju­skýli. Við settum teppi á gólfið og vorum þar með sæng­ur­föt og gerðum það umhverfi kósí. Þegar loft­varna­bjöll­urnar byrj­uðu að óma og sprengj­urnar byrj­uðu að falla í hverf­inu okkar þá hlupum við þangað inn,“ segir Óskar og bætir við að þrisvar sinnum hafi verið gerð árás í um eins kíló­metra fjar­lægð frá heim­ili þeirra og í hvert skipti hafi þrjú til fjögur flug­skeyti fallið. „Þú finnur vel fyrir því þegar flug­skeyti lendir einn kíló­metra frá þér. Við vorum í byrjun stríðs­ins mikið inni á kló­setti, sem var örugg­asti stað­ur­inn til að vera á í bygg­ing­unni. Kjall­ar­inn var örugg­asti stað­ur­inn en við búum uppi á 8. hæð og við nenntum ekk­ert að hlaupa upp og niður átta hæðir fjórum til fimm sinnum á dag.“

Óskar er virkur á Instagram og gefur reglu­lega upp­lýs­ingar um stríðið. instagram.com/skari

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár