796. spurningaþraut: Það er kominn júlí! Árið er hálfnað!

796. spurningaþraut: Það er kominn júlí! Árið er hálfnað!

Fyrri auka­spurn­ing:

Afmæl­is­barn dags­ins. Hvað heitir stúlkan á mynd­inni hér ofan, en hún fædd­ist 1. júlí 1961. 

***

1.  Fyrsti júlí er í dag, við höfum spurn­ing­arnar um þá stað­reynd að mestu, en við hvað eða hvern eða hverja er júlí kenndur?

2.  Tveir kon­ungar Dan­merkur (og þar með Íslands) fædd­ust 1. júlí — annar 1481 en hinn 1534. Báðir báru þeir núm­erið 2. sem sýnir að þeir hétu hvor sínu nafn­inu. Hvað hétu þessir dönsku kóngar?

3.  Á þessum degi árið 2000 var opnað á Norð­ur­lönd­unum rúm­lega 8 kíló­metra langt sam­göngu­mann­virki sem fólst í brú, vegi og jarð­göngum. Milli hvaða þétt­býl­is­staða?

4.  Á þessum degi 2004 lést banda­rískur leik­ari sem gerði garð­inn frægan í myndum eins og Apocalypse Now! og Guð­föð­urnum 1, en hann lék líka pabba Súper­manns! En hann varð kannski allra frægastur þegar hann hafn­aði Ósk­arsverð­laun­unum. Hvað hét hann?

5.  Á þessum degi 1978 fædd­ist íslenskur rit­höf­undur sem hefur gefið út fjöl­margar skáld­sögur sem sumar hafa vakið heil­mikla athygli. Hinar nýj­ustu heita t.d. Einlægur Önd, Hans Blær, Heimska og Illska. Höf­und­ur­inn skartar yfir­leitt fögrum svörtum kúlu­hatti þegar til hans sést. Hvað heitir þessi höf­undur?

6.  Á þessum degi 1986 var fyrsta konan á Íslandi skipuð Hæsta­rétt­ar­dóm­ari. Hver var hún?

7.  1. júlí 1908 var þriggja stafa Morse-tákn tekið upp sem alþjóð­leg hjálp­ar­beiðni eða neyð­ar­kall. Hvaða tákn?

8.  Þann 1. júlí 2013 bætt­ist 28. ríkið í Evr­ópu­sam­bandið og síðan hafa ekki fleiri bæst við. Hvaða ríki var þetta?

9.  En eitt ríki hefur hins vegar heltst úr lest­inni síðan svo ríkin eru nú aðeins 27. Hvaða ríki var það?

10.  Þann 1. júlí 1975 fædd­ist banda­rískur tón­list­ar­maður sem kom í heim­sókn til Íslands 2006 og hélt tvenna tón­leika í Frí­kirkj­unni í Reykja­vík af öllum stöðum. Hann hefur gefið út margt og mikið, en vakti sér­staka athygli þegar hann lýsti því yfir 2003 að hann ætl­aði að gefa út 50 plötur sem hver um sig yrði helguð einu ríki Banda­ríkj­anna. Ekki veit ég samt til þess að út hafi komið nema tvær plötur, svo lagði hann áform sín á hill­una. En hvað hét hann? Sérstakt Frí­kirkju­stig er í boði fyrir þau sem geta nefnt a.m.k. annað af ríkj­unum tveim sem hann náði að gefa út plötur um.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þessi græja kom á markað 1. júlí 1979. Hvað hét hún?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Júlíus Caesar.

2.  Kristján 2. og Friðrik 2.

3.  Kaup­manna­hafnar og Málm­eyjar.

4.  Marlon Brando.

5.  Guðrún Erlends­dóttir.

6.  Eiríkur Örn Norðdahl.

7.  SOS.

8.  Króatía.

9.  Bretland.

10.  Sufjan Stevens.  Ann­að­hvort nafnin dugar. Ríkin tvö voru Michigan og Illinois Hér er brot úr tón­leikum Stevens í Frí­kirkj­unni:

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Díana, síðar prinsessa.

Á neðri mynd­inni er Walkman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár