Skýrslan um Laugaland tilbúin en verður ekki gerð opinber strax

Rann­sókn­ar­skýrslu um hvort ofbeldi hafi verið beitt á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi, áður Varp­holti, var skilað um síð­ustu mán­aða­mót. Engu að síður hefur hún ekki enn verið kynnt fyrir ráð­herrum. Fimmtán mán­uðir eru síðan rann­sóknin hófst. Vinna við rann­sókn á Breiða­vík­ur­heim­il­inu, sem var rekið lengur og fleiri börn dvöldu á, tók tíu mán­uði. Konurnar sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafa engar upp­lýs­ingar fengið um rann­sókn­ina.

Skýrslan um Laugaland tilbúin en verður ekki gerð opinber strax
Fátt um svör Fátt er um svör um ástæður þess að enn er ekki búið að birta skýrslu um rann­sókn á ofbeldi á með­ferð­ar­heim­ilnum Varp­holti og Lauga­landi. Þrátt fyrir að nefnd sem rann­sak­aði starf­sem­ina hafi skilað skýrsl­unni af sér um síð­ustu mán­aða­mót hafa kon­urnar sem lýst hafa ofbeldi sem þær urðu fyrir á heim­il­inu ekk­ert frétt enn. Mynd: Páll Stefánsson

Nefnd, sem falið var að kanna hvort börn sem vistuð voru á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi, áður Varp­holti, í Eyja­firði hefðu sætt illri með­ferð eða verið beitt ofbeldi, hefur lokið vinnu sinni og skil­aði skýrslu þar um um síð­ustu mán­aða­mót. Engu að síður hefur skýrslan enn ekki verið kynnt ráð­herra eða birt opin­ber­lega og þeim konum sem vistaðar voru á heim­il­inu hefur ekki verið gerð grein fyrir því sem í henni kemur fram.

Gæða- og eft­ir­lits­stofnun vel­ferð­ar­mála var falið að kanna rekstur Lauga­lands, áður Varp­holts, 23. febr­úar 2021. Skipuð var fjög­urra manna nefnd sem sinna átti þeirri könnun. Samkvæmt verk­á­ætlun voru aðilar máls­ins 101 tals­ins, að und­an­skildum starfs­mönnum barna­vernd­ar­nefnda, og átti að bjóða þeim öllum að taka þátt í könn­un­inni. Samkvæmt verk­á­ætlun átti könn­un­inni að vera lokið um síð­ustu ára­mót, en sú áætlun stóðst ekki og voru ekki settar fram neinar skýr­ingar þar á. Síðar var boðað að skila ætti nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laugaland/Varpholt

Stelpurnar af Laugalandi skila skömminni
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelp­urnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerf­is­bundnu and­legu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til for­stöðu­hjóna heim­il­is­ins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­vernd­ar­yf­ir­valda sem brugð­ust þeim.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár