Stjarnfræðilegur kostnaður Úkraínustríðsins

Mörg hundruð falla í innrás Rússa í Úkraínu á degi hverjum, mann­tjónið eykst sífellt og ólýsanlegar hörmungar þar víða daglegt brauð. Þess utan eru efna­hags­legar hamfarir að eiga sér stað í Úkraínu en þær voru raunar hafnar áður en innrásin hófst. Útlitið var svart fyrir en nú er stór hluti landsins ein rjúkandi rúst og vegna land­lægrar spillingar mun reynast erfitt að fá fjárhags­aðstoð erlendis frá til uppbyggingar að stríðs­lokum.

Ef þú hefðir sagt venju­legum Úkraínu­manni fyrir rúmu hálfu ári að hagkerfið ætti brátt eftir að falla í skuggann á stærri vanda­málum, hefði hann vart trúað þér. Sé litið til þjóðar­framleiðslu miðað við höfðatölu var Úkraína líklega fátækasta ríki Evrópu, í 42. sæti á lista þar sem Ísland er í 5. sæti. Fjórðungur ungs fólks á vinnu­markaði var án atvinnu og mikill spekileki átti sér stað þar sem þeir sem áttu þess kost flúðu land í leit að betra lífi. 

Almenningur bar lítið traust til stjórn­valda, enda yfir­gengileg spilling á öllum stigum stjórn­kerfisins og lítill hópur útvaldra stjórnaði með því að deila út bitlingum til þess að halda klíkum á sínu bandi. Sumir hinna spilltu eru kjörnir fulltrúar, aðrir stjórna ríkis­reknum fyrir­tækjum. Þeir eru svokallaðir ólígarkar, líkt og flestir kannast við úr umræðunni um valda­jafnvægið í Rússlandi.

Hvað varðar Zelensky forseta hafði hann valdið nokkrum vonbrigðum frá því …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Úkraína var ein helsta perla keisaradæmisins og síðan Sovétríkjanna; ætli Rússland sjálft sé nokkuð síður spillt og rotið en aðrir hlutar hins fallna veldis.
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Stjarnfræðilegur kostnaður Úkraínustríðsins"
    En hvað mun enduruppbyggingin kosta?
    Og hver eða hverjir munu borga?
    0
    • ÞI
      Þorsteinn Ingimundarson skrifaði
      Við að sjálfsögðu ásamt öðrum viljugum . Eitt er alveg öruggt Bandaríkin borga ekki sent .
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár