Einar Þorsteinsson er næsti borgarstjóri Reykjavíkur

Eftir 18 mán­uði tekur Einar Þor­steins­son, sjón­varps­maður úr Kast­ljós­inu, við sem borg­ar­stjóri Reykja­víkur. Hann verður fyrsti Fram­sókn­ar­mað­ur­inn í emb­ætti borg­ar­stjóra.

Einar Þorsteinsson er næsti borgarstjóri Reykjavíkur
Einar Þor­steins­son Leiddi blaða­manna­fund vegna mynd­unar nýs borg­ar­stjórn­ar­meiri­hluta í dag. Hér er hann ásamt Þórdísi Lóu Þór­halls­dóttur, odd­vita Við­reisnar, sem verður for­seti Borg­ar­stjórnar. Mynd: RÚV

Eftir að hafa yfir­gefið Kast­ljósið og lofað að sam­eina Reyk­vík­inga, frá úthverfum til mið­borgar, hefur Einar Þor­steins­son náð að tryggja sér borg­ar­stjóra­stól­inn í Reykja­vík. Þetta var til­kynnt rétt í þessu á blaða­manna­fundi nýs meiri­hluta í Borg­ar­stjórn Reykja­víkur í Elliða­ár­dal.

Nýr meiri­hluti í borg­ar­stjórn hefur verið inn­sigl­aður með brott­hvarfi Vinstri grænna og inn­komu Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem fær borg­ar­stjóra­stól­inn í árs­byrjun 2024. Þá verður odd­vit­inn Einar Þor­steins­son fyrsti borg­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins til að gegna emb­ætti borg­ar­stjóra Reykja­víkur eftir sögu­lega upp­risu flokks­ins í 18,7% fylgi úr 3,2% fjórum árum fyrr.

Meiri­hluta­samn­ingur Fram­sókn­ar­flokks, Sam­fylk­ingar, Pírata og Við­reisnar telur 33 síður og er kynntur undir 18 punktum. Hann felur meðal ann­ars í sér stór­á­tak í upp­bygg­ingu hús­næðis og áfram­hald­andi áherslu á borg­ar­línu. And­spænis nýjum meiri­hluta standa síðan flokkar frá vinstri og hægri, ann­ars vegar Sós­í­alista­flokk­ur­inn og Vinstri græn, og hins vegar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Mið­flokk­ur­inn.

„Ég verð að segja fyrir mitt leyti að ég er ákaf­lega ánægður með þennan sátt­mála, hann svarar að öllu leyti kröfu Fram­sóknar um breyt­ingar á þessu kjör­tíma­bili,“ sagði Einar á fund­inum fyrir skemmstu.

„Það er mik­ill fersk­leiki yfir þessum nýja meiri­hluta“
Dagur B. Egg­erts­son
Borg­ar­stjóri og verð­andi for­maður Borg­ar­ráðs

„Einar byrjar á að leiða borg­ar­ráð, en verður síðan borg­ar­stjóri í byrjun árs 2024,“ sagði Dagur B. Egg­erts­son, sem situr áfram í stóli borg­ar­stjóra þangað til og hefur svo sæta­skipti við Einar. „Það er mik­ill fersk­leiki yfir þessum nýja meiri­hluta,“ sagði Dagur.

„Meiri­hlut­inn féll, en minni­hlut­inn gerði það líka,“ sagði Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, odd­viti Við­reisnar, sem verður for­seti Borg­ar­stjórnar.

Mesta uppbyggingarskeið sögunnar

Að sögn Dags er framundan „mesta upp­bygg­ing­ar­skeið í sögu borg­ar­innar“.

„Þetta er meiri­hluta­sam­starf um að þróa borg­ina áfram og í græna átt og ég er sam­mála því sem hér er sagt að við erum sam­eig­in­lega að reyna að svara kalli um að við séum að fara inn í mesta upp­bygg­ing­ar­skeið í sögu borg­ar­innar. Ekki síst í hús­næð­is­málum en líka í sam­göngu­málum, borg­ar­línu, Sunda­braut og fleiri verk­efni sem við höfum náð saman um, for­gangs­raðað og sett niður á blað. Þetta er verk­efna­á­ætlun um leið og þetta er sam­starfs­yf­ir­lýs­ing.“

Einar var sáttur með margt

Einar sagði á blaða­manna­fund­inum að hann hefði í kosn­inga­bar­átt­unni til­tekið að margt gott hefði verið gert í Reykja­vík og byggt yrði á því.

„Kosn­inga­bar­áttan leiddi í ljós kröfu um breyt­ingar í hús­næð­is­málum, sam­göngu­málum og ýmsum vel­ferð­ar­málum. Ég held að það sé óhætt að segja að við náðum mjög vel saman utan um þessi mál í okkar við­ræðum. Ég er þakk­látur fyrir það að við öll hér vorum lausn­a­miðuð og sam­starfs­fús og mjög ein­beitt í því að ná saman texta sem tryggir áfram­hald­andi veg­ferð í borg­inni og vel­ferð, aukna upp­bygg­ingu í hús­næð­is­málum og ýmsu slíku.“

Píratar yfir umhverfi og skipulagi

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata, verður for­maður skipu­lags­ráðs sem taka mun yfir umhverf­is­mál.

„Loftags­málin eru leið­ar­ljós í gegnum þennan sátt­mála, lýð­ræði, gagnsæði og rétt­lætt og gott vel­ferð­ar­sam­fé­lag fyrir öll og alla hópa. Við erum gríð­ar­lega ánægð og hlökkum til og höldum að þetta geti orðið gjöf­ult sam­starf öllum borg­ar­búum til heilla. Þetta end­ur­spegl­ast meðal ann­ars í því að við erum að taka umhverf­is­málin aftur inn í skipu­lags­málin, með sam­ein­uðu ráði umhverfis- og skipu­lags­mála og fleiri áherslum,“ sagði Dóra rétt í þessu.

Þórdís Lóa tók undir með Dóru Björt um grænar áherslur.

„Ætlum að taka sér­stak­lega utan um atvinnu- og nýsköp­un­ar­mál, tryggja upp­bygg­ingu atvinnu­mála og fyr­ir­tækja í borg­inni. Við erum sér­stak­lega að taka mjög vel utan um loft­lags­málin og græna þróun. Og við erum hér með metn­að­ar­fulla sýn í skóla­þróun og vel­ferð­ar­málum, menn­ingar- og íþrótta­málum og svona get ég lengi upp talið, því þetta er allt saman á þessum tæp­lega 40 síðum.“

Brú milli úthverfa og miðborgar

Einar Þor­steins­son er fæddur á aðfanga­dag árið 1978 og er með BA-gráðu í stjórn­mála­fræði. Hann hóf þátt­töku í stjórn­málum í Sjálf­stæð­is­flokknum og var for­maður Félags ungra sjálf­stæð­is­manna í Kópavogi, en gekk í Fram­sókn­ar­flokk­inn í vor. Hann er kvæntur Millu Ósk Magn­ús­dóttur, fyrr­ver­andi frétta­konu á RÚV, sem gegnt hefur stöðu aðstoð­ar­manns Lilju Alfreðs­dóttur og Willums Þórs Þórs­sonar, ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Einar hefur starfað sem frétta­maður, nú síð­ast sem stjórn­andi í Kast­ljós­inu, þar til hann sagði stöðu sinni lausri í árs­byrjun. Hann til­kynnti um fram­boð sitt í Fram­sókn­ar­flokknum í þætt­inum Vikunni með Gísla Marteini á RÚV í byrjun mars. 

„Maður er að þjóna almenn­ingi og áhorf­endum sem eru að horfa. Og svo þegar ég fór að máta mig við stjórn­mála­flokka þá var það ein­hvern veg­inn bara aug­ljóst mál að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er eini flokk­ur­inn sem ég get verið í af því að þar er verið að skoða hlut­ina frá báðum hliðum – og öfga­laust,“ sagði hann þá.

Einar bauð sig fram undir þeim for­merkjum að sam­eina klofna borg. Þannig væru íbúar úthverf­anna reiðir vegna áherslu á borg­ina vestan Elliðaáa. „Það er eins og það búi tvær þjóðir í Reykja­vík,“ sagði hann í við­tali við Morg­un­blaðið. Það var einmitt við Elliða­árnar sem hann leiddi blaða­manna­fund um nýjan borg­ar­stjórn­ar­meiri­hluta í dag.

Fyrir kosn­ingar vildi hann bjóða börnum frítt í sund og frítt í Strætó, auk þess að tvö­falda frí­stunda­styrk. Hann boð­aði einnig að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn vildi flýta upp­bygg­ingu á Keldum, byggja meira upp í Úlf­arsár­dal og Örfirisey, og þétta byggð í Graf­ar­vogi og Breið­holti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Ekki vera hissa ef samstarfið spryngur innan 18 mánuða ef vænlegri möguleikar bjóðast til að Dagdraumur haldi stólnum. Píratar og Vonbrigði munu styðja þá setu fram í rauðan dauðann. Hvað varðar vonarloforð um fleiri lóðir þá er ekkert sem tryggir ekki að þær verði ekki dýrari en það sem núna er í boði... og þarf af leiðandi dýrari íbúðir... svo þetta eru innantóm loforð eins og sést ef gömlum blöðum er fletti. Pavel verður ennþá við stýrið við að smíða rándýrar lóðir undir formerkjun "þétting byggðar" en sú hugmyndarfræði er á réttri íslensku "minni þjónusta og dýrari íbúðir en áframhaldandi ábyrgðarleysi á þessarri vítsvél fjárplógsaðila (oft kallaðir fjármálakerfið)".
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2022

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár