Nýtt efni

Íhugar að láta handtaka Netanyahu
Hann á heima í Haag, segir Zoran Mamdami, borgarstjóri New York, um forsætisráðherra Ísraels sem stefnir á fund hjá Sameinuðu þjóðunum.


Borgþór Arngrímsson
Ruslið eftir Kanana á Grænlandi
Í tengslum við yfirlýsingar og áhuga Donald Trump um yfirráð og kaup á Grænlandi hefur lítið verið talað um viðskilnað bandaríska hersins á fyrrverandi herstöðvum í landinu. Í þeim efnum er síður en svo allt í sómanum.


Kristinn Sv. Helgason
Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi
Upptöku evru myndu fylgja margar áskoranir fyrir stjórnvöld og aðila vinnumarkaðarins, sem þarf að mæta svo forðast megi harkalega lendingu.

Hótar nágrönnum vegna skógarelda
Reyk leggur yfir hluta Bandaríkjanna vegna skógarelda í Kanada. Bandaríkjaforseti er ósáttur.

Heimsminjar í hættu fá flýtimeðferð hjá Sameinuðu þjóðunum
Náttúruminjar og sögulegir staðir eru í hættu vegna stríðsátaka og loftslagsbreytinga. Staðir á sögulegum svæðum þar sem Ísrael stundar hernað fá flýtimeðferð.
„Ég elska þig á íslensku“ – endurreisnarmaður íslenskunnar
„Fáir ef nokkrir listamenn hafi haft jafn mikil áhrif á íslenska tungu í samtímanum og Bubbi Morthens,” segir lærður viðmælandi í grein þessari af tilefni sjötugsafmælis hans. Annar segir hann vera mikilvægan endurreisnarmann íslenskunnar. Þennan listamann þjóðarsálarinnar sem ýmsir smættuðu þó í upphafi sökum meintrar skrifblindu.


Ásgeir Daníelsson
Áhætta og hagsmunatengsl við ávöxtun séreignarsparnaðar
Ásgeir Daníelsson fjallar um áhættu, ávöxtun og hagsmunatengsl í fjárfestingum séreignarsparnaðar.

Segir Pútin leiða Rússland í ringulreið
Maður sem boðið hefur Vladimír Pútín byrginn varar við því að Rússland stefni í óefni. Hann hefur verið boðaður fyrir dóm fyrir að „sýna tákn öfgastefnu“ þegar hann birti mynd af látnum stjórnarandstæðingi.

Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
Kröfur upp á 981 milljón eru undir í beiðni um nauðungarsölu á lóðum félagsins Render Centium ehf. í Mosfellsbæ. Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, og faðir hans eiga félagið sem átti að byggja þjónustuíbúðir fyrir aldraða á lóðinni en hefur rift samningnum. Málið varpar ljósi á byggingarverkefni þingmannsins víða um land en hann segist sína aðkomu ekki tímafreka.

Kalla eftir alþjóðlegum aðgerðum gegn „öfgafullu vinstri fólki“
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir „hryðjuverkafólk“ undir yfirskini „jafnréttis, réttlætis og frelsis“ vera „einstaka illsku“. Stephen Miller, hægri hönd forsetans, segir vinstrimenn dreifa „krabbameini“ í samfélaginu. „Þau eru öll afmynduð á einhvern hátt í útliti, klæðaburði og háttalagi,“ segir hann.

Máttur gervigreindar vekur ótta um að menn verði heimskari
Í nýrri rannsókn kom fram að notkun gervigreindar bætti frammistöðu þátttakenda til skamms tíma en til lengri tíma dró hún úr árangri þeirra og vilja. „Hættan á of miklu hugrænu framsali er raunveruleg,“ sagði fulltrúi bandaríska hugbúnaðarrisans Microsoft.

Rúm milljón kvenna og stúlkna hefur misst aðgang að mannúðaraðstoð
„Kvennasamtökin sem eiga í hættu á að verða lokað eru í fremstu víglínu alvarlegustu mannúðarkreppu heims,“ segir yfirmaður mannúðarstarfs hjá UN Women. Níutíu prósent kvennasamtakanna segjast ekki geta sinnt þjónustu sinni. Kynferðisofbeldi á átakasvæðum hefur tvöfaldast og færri stúlkur fara í skóla.

„Við getum haft raunveruleg áhrif“
„Við getum enn haft áhrif á nákvæmar afleiðingar og líkur á stöðvun AMOC,“ segir haffræðingurinn Paul Holland. Alþjóðlegur hópur vísindamanna siglir í dag frá Bretlandi til Grænlands til að rannsaka hraða bráðnun íssins og kortleggja áhrif á hafstrauma.

„Eftir HM munu mjög líklega einhverjir leita sér aðstoðar“
Áætlað er að heimsmeistaramót karla í knattspyrnu sem nú fer fram verði stærsti veðmálaviðburður í heimi. Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður SÁÁ segir Ísland ekki undanskilið slíkri spá. Innan við tíu prósent af þeim sem glíma við spilafíkn leita sér aðstoðar.

Athugasemdir